Dagblaðið


Dagblaðið - 04.08.1981, Qupperneq 13

Dagblaðið - 04.08.1981, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981. Kjallarinn BragiJösepsson 14) , Indland (6—14), ítalla (6—14), Island (7—15), Pólland (7—15), Sví- þjóð (7—15), Ráðstjórnarríkin (7— 15) , Júgóslavia (7—15, (5). 7 ára skólaskylda: Argentina (6—13), (6). 6 ára skólaskylda: Grikkland (6— 12), Mexikó (6—12), Portúgal (6— 12), Kúba (6—12), Kýpur (6—12), Egyptaland (6—12), Kórea (6—12). Framangreindar heimildir eru úr International Yearbook of Edu- cation, 1980. Það sem m.a. vekur athygli i sambandi við ofangreindar tölur er hversu mikil áhersla er lögð á, að skyldunám hefjist hjá 6 ára börnum, og er þetta sérstaklega athyglisvert hjá þeim þjóðum sem hafa tiltölulega stutta skólaskyldu. Norðurlönd og Rússar Þá er ekki óeðlilegt þótt sú spurning vakni hvers vegna engin Norðurjandaþjóðanna hafí enn tekið upp skólaskyldu 6 ára barna. Sama má einnig segja um Ráöstjórnarríkin, Júgóslavíu og Pólland þar sem skóla- skylda hefst með 7 ára aldri. Um skipan skólamála i Ráðstjórnarríkjunum gilda að vísu mjög sérstakar aðstæður, og sama má einnig segja um flest eða öll hin kommúnistaríkin í Autur-Evrópu. í öllum þessum löndum er veruleg áhersla lögð á forskólanám. Um þessa skóla gildir þó sú meginregla, á sama hátt og um háskólana, að þeir eru ekkifyrir alla. Ef litið er á Sviþjóð sem eitt dæmi um stöðu þessara mála á Norðurlöndum, er ljóst, að allveruleg þjónusta er fyrir hendi fyrir börn á forskólaaldri. Hér er fyrst og fremst um að ræða hinar ýmsu tegundir dag- vistarstofnana, barnaheimila og leikskóla, en einnig forskóla með svipuðum hætti og þar sem hefðbundið skólanám hefst við 6 eða 5 ára aldur. Enda þótt fjárframlög til þessara síofnana séu nokkuð rúm er ýmislegt sem bendir til þess að viðhorf sænskra ráðamanna í skólamálum hafi staðnað við hugmyndafræði sem þótti nokkuð athyglisverð fyrir tveim til þrem áratugum, það er, að börn innan sjö ára aldurs ættu ekki að fást við vitræn viðfangsefni, nema að svo miklu leyti sem þau tengjast því uppeldis- og félagsmótunarstarfi sem unnið er á þessum stofnunum. Með vitrænum viðfangsefnum á ég hér við námsgreinar svo sem lestur, stærðfræði, eðlisfræði og skrift, svo dæmi séu tekin. Skólasky Ida frá 6 ára aldri strax Það er skoðun mín, að taka beri upp skólaskyldu frá 6 ára aldri. Eins og þegar hefur verið bent á eru 6 ára bekkir starfræktir um allt land, en á mjög ófullnægjandi hátt. í fyrsta lagi vegna þess að daglegur skólatími er •of stuttur og í öðru lagi vegna þess að foreldrar þurfa sjálfir að greiða ákveðinn kostnað, þ.e. námsgögn, sem foreldrar annarra barna þurfa ekki að greiða. Af þessum sökum má veraljóst, að ekki yrði um stórkostlegt stökk að ræða þótt stjórnvöld tækju þá á- kvörðun, að hefja skólaskyldu ári fyrr en nú er. Jafnhliða þessu þyrfti að vinna að því að endurskipuieggja menntun forskólakennara og stefna að því, svo fljótt sem kostur er, að skólaskylda hefjist enn fyrr eða á því ári sem barnið verður 5 ára. Að þvi hlýtur að draga fyrr eða siðar. Bragi Jósepsson, lektor. ..........." Kommaforingjarnir stríða við það að skapa hér „sælunnar reit”. Fyrirhuguð sæla er af því tagi, sem segir til sín í Póllandi. í augnablikinu heyrist mest í Hjörleifi Guttormssyni. Og það verður að heyja stéttastríð, segir Svavar. Málflutningur HG sýnir, að hann telur liðsafnaðinn auðveldaðan með því að vekja öfund, ágirnd og útlendingahatur. Það skipti minnstu, finnst honum, þótt þjóðin bíði álitshnekki og annað tjón vegna þessháttar málflutnings. „Hækkun í hafi” virðist hafa gufað upp sem ásökunarefni og upphæðin lækkað úr $47,5 m i $16 m. Ráðherr- ann hefir því orðið uppvís að róg- burði. Hann sagði að endur- skoðunarskrifstofan brezka hefði lagt mat á málsbótaratriði Alusuisse, þegar hún ekki hafði gert það. Hann er þvi ber að lygum. Fleira mætti telja. En þungamiðja málsins er sú, sem snýr að þjóðinni sjálfri og hennar raunverulegu hagsmunum, ekki að persónu HG, þótt hann sé veginn og léttvægur fundinn. Það er um þetta, sem ég hefi kallað raunverulega hagsmuni, sem ég ætla að fara nokkrum orðum. Virkjanir aðalatriðið ör virkjun fallvatnanna og jarðhitans til raforkuframleiðslu er í sannleika mikið hagsmunamál þjóðarinnar. Tengt þessu máli er svo nauðsyn nýrra atvinnutækifæra. Hvort tveggja, virkjun og atvinna, tengist orkufrekri stóriðju. Sá sem leggur stein í götu stóriðjunnar er þar með að tefja eða koma í veg fyrir virkjanirnar, sem mala þjóðinni gull. Stóriðjunni má skipta í tvö horn. Sú sem liggur beinast við er iðjuver reist af útlendingum og í þeirra eigu, framleiðslan til útflutnings. Hin er iðjuver reist af íslendingum, með erlendu fjármagni samt, framleiðslan fyrir innlendan markað. Til dæmis mætti hugsa sér að höggvið yrði á hnútinn, sem vefst fyrir HG, með þvi að ákveða að framleiða vetni fyrir vélarnar: bíla, skip, flugvélar. Ég tel sennilegt að þetta verði fljótlega hag- kvæmt, þegar allar hliðar málsins hafa verið athugaðar. En það sem næst liggur er að taka ákvarðanir um erlenda stóriðju og virkjanir. Og með brambolti sínu hefir HG tekizt að beina athyglinni frá aðalatriðinu: virkjununum, og að því sem er í rauninni ekki aðalatriðið: stóriðjunni. Takist honum að eyðleggja tækifærin og möguleikana í stóriðjumáiunum, en þau snúast í augnablikinu um erlenda stóriðju, þá hefír honum þar með tekizt að koma í veg fyrir að ört verði virkjað. Hinn ámælisverði málflutningur HG er því ekki hættulaus. Traust og trúnaður Þegar menn trúa öðrum fyrir peningum sinum eða öðrum eignum, þá gera þeir það, vegna þess að þeir treysta orðum þeirra. Union Carbide greiddi upphæð sem nam milljónum doilara til Jjess að vera laus við samninga sína við íslendinga. Ég er þeirrar skoðunar að vestur í Ameriku séu nú menn, sem mæla á þessa leið: Hvað sagði ég ykkur? Úti á íslandi eru kommúnistar áhrifamiklir. Nú eru þeir farnir að spila fínt á strengi öfundar, ágirndar og útlendinga- haturs. Við sluppum billega. Reynsla hér sem annars staðar er sú, að atvinnutæki reist af út- lendingum verða fyrr eða síðar eign fólksins sem landið byggir. Á öllum helztu verzlunarstöðum hér á landi voru miklar eignir erlendra kaupmanna. Seinna voru hér hvalveiðistöðvar í eigu útlendinga. Og enn er fjöldi manns á lifi, sem sá i starfi verksmiðjur Dr. Pauls, Goos og Holdös á Norðurlandi, svo og særtska frystihúsið hér í Reykjavik. Ekki má heldur gleyma íslands- banka, því að með hans hjálp viku miðaldirnar í atvinnulífinu. Allt er þetta fyrir löngu orðið eign þjóðarinnar. Eins og nú er ástatt þurfum vér að fá útlendinga til þess að koma hingað með framtak sitt, tækniþekkingu og — fjármagn. Ónauðsynlegar ýfingar við þá sem fyrir eru, að ég nú ekki tala um róg og lygi í þeirra garð, er heimska, andstæð efnahagslegum hagsmunum þjóðarinnar, enda uppi haft af mönnum, sem vilja skapa hér sinn „sælunnar reit”. Þegar ríkið rekur atvinnutækin, þá er mörg matar- holan fyrir pólitíska gæðinga. Þetta er sú hugsun sem er á bakvið eyra hjá Reitur sælunnar ^ „Það einkennilega er, að hvergi eru laun verkamannsins hærri en í löndum þar sem stórfyrirtækin yfirgnæfa, einokunarhring- irnir svokölluðu voldugastir, auðsöfnunin aug- ljósust og arðránið mest, samkvæmt hjá- fræðum marxista.” *% ’ *. " * Í *' ;ÉiWÍ „ 6B«:í j V | gliil Mi wfo mmt Wk W Sá sem leggur stein 1 götu stóriðjunnar er þar með að tefja eða koma 1 veg fyrir virkjanirnar, sem mala þjóðinni gull, segir dr Benjamin meðal annars. Myndin er af túrbinum f BúrfeUsvirkjun. kommaforingjunum. Áður en farið er að flýta sér í eignarréttarmálinu, þá væri góður undirbúningur fólginn í því, meðal annars, að gera rækilega úttekt á sögu og rekstri þeirrar stóriðju, sem nú þegar er í höndum íslenzkra yfirvalda, fyrst og fremst með áburðarverksmiðju og sements- verksmiðju. Slík úttekt hefir aldrei farið fram, svo sjálfsögð sem hún er. Arðránið Það bezt verður séð, fer fram skipulagður áróður gegn stórfyrir- tækjum hér á landi. Ég nefni Flugleiðir, Eimskip og ísal. Það er því full ástæða til þess að ræða eina höfuðákæruna á hendur hinu frjálsa atvinnulífí. Það einkennilega er, að hvergi eru laun verkamannsins hærri en í löndum þar sem stórfyrirtækin yfirgnæfa, einokunarhringarnir svokölluðu voldugastir, auðsöfnunin augljósust og arðránið mest, sam- kvæmt hjáfræðum marxista. Þar sem auðsöfnunin er mest, arðránið mest útfært, þar eru launin hæst, hin almenna velmegun mest. Arðrán, i marxískum skilningi, er þvi ekkert áþreifanlegt eða raunverulegt. Það er sem sé ekki um neitt rán að ræða, aðeins tungumálið gert að umskiptingi. Það liggur alveg öfugt í málinu. Enda liggja fulltrúar fátæku þjóðanna á hnjánum, biðjandi um framkvæmdir hjá sér, er þýða launa- vinnu, sem samkvæmt marxískri hjá- fræði er ekkert annað en arðráns- kerfi. Þessar þjóðir biðja um arðrán og þá velmegun, sem fylgir þvi. Hér er því um að ræða afbökun og afskræmingu málsins til fram- dráttar lyginni. Arðrán er sálarástand sem marxistárnir reyna af fremsta megni að brýna, en ekki raunverulegt rán af neinu tagi. Arðrán er sálará- stand. Það er öfund hins van- máttuga, þess manns sem getur hvorki skapað sér né öðrum at- vinnutækifæri. Þessi ðfund er öflug lyftistöng lýðskrumara og valda- braskara. Hugvit, framtak og dugnaður er ekki allra, og þá ekki heldur sjálfsafneitun, ráðdeild og stjórnsemi. Mennirnir eru misjafnir að upplagi og þeim ber að taka lffinu samkvæmt því. Allir bera þeir á- byrgð. Þeir sem mest hafa hlotið í vöggugjöf bera þyngstu ábyrgðina. Af þeim verður mest krafizt. Það þarf enginn annan að öfunda í þeim efnum. Falsguðinn Hjörleifur Guttormsson skorar á þjóðina að efla samstöðu sína utan um hagsmuni sína, gegn Aiusuisse. Þetta sem hann kaliar hagsmuni er falsguð, marghöfðaður þurs. HG kom i útvarpið fyrir nokkru. kokhraustur yfir hinni beittu sveðju sinni, skýrslu brezku endur- skoðendanna, því að hans ósk er illdeilur við útlendingana. Hann kom Kjallarinn Dr. Benjamín H .1. □ríksson svo aftur í hádegisútvarpið hinn 22.7. Nú kom hann á ný. kunnugiega fyrir. Hann var aftur orðinn skjálfradd- aður. Hann skoraði á þjóðina að mynda samtök um hagsmuni sína, falsguðinn. Hann talaði ekki um þá spurningu, hvað væri satt og rétt, sem er það sem Alusuisse vill tala um. En það er áriðandi að íslenzka þjóðin skipi sér um sannleikann og rétt- lætið. Þetta hvort tveggja eru hennar raunverulegu hagsmunir. Gæti hún þeirra, þá hefir hún gætt alls annars að auki, sem mun þá skila sér í fyllingu tímans. Ég held, þrátt fyrir allt, að á heillastundum sínum viti þjóðin betur en svo, að hún láti lýðskrumarana í forystu Alþýðubandalagsins lítillækka sig til þess að rækta með sér óvild til út- lendinga. Þrátt fyrir langvarandi erlenda stjóm og hernám og hersetu, þá hefír það alltaf þótt til vansæmdar á íslandi að láta ekki út- lenda menn njóta sannmælis. Og þeir útlendingar, sem hér er um að ræða, hafa komið hingað með framtak, tækniþekkingu og mikið fjármagn, sem margar þjóðir biðja um, en fá ekki. íslenzka rikisstjórnin á að halda sig við lög og samninga, og þess vegna krefjast hins sama af öðrum. HG talar með belgingi um það, að fullvalda ríki ráði yfír tækjum sem dugi. Svona tal í nafni islenzku þjóðarinnar á þessum vettvangi er svívirðilegt og á ekki að heyrast, því að það er hótun um ofbeldi gegn því sem er sagt, rétt og sanngjarnt. Hvað vakir fyrir lýðskrumurum og blekkingarmeisturum Alþýðubandalagsins? Völd, þeir vilja meiri völd. Fyrir sumum þeirra vakir það að verða þingmenn, jafnvel ráðherrar. En fyrir flestum þeirra vakir það að skapa hér nýtt þjóðfélag — „sælunnar reit”. Þaö þarf ekki að fara i neinar grafgötur um það, hvað sé um að ræða. Þetta nýja þjóðfélag hefir verið í sköpun í Sovétríkjunum í meir en 60 ár, í Austur-Evrópu í 35 ár, annars staðar skemur. Einn „sælunnar reitur” heitir Pólland. Austar heita sælueyjarnar Gulag-eyjar. í hinu nýja þjóðfélagi reynist allt svo fullkomið, nema mannfólkið. Það kvartar sífellt. Sumir sem kvarta eru sendir á geðveikrahæli, sem er ný stjórnlist. í hinu nýja þjóðfélagi er yfirfljótanlegt af öllu, segja fjöl- miðlarnir heimafyrir, nema helzt mat og frelsi. Fólkið er óánægt og kvartar bara af því að það vantar mat og frelsi! Já, þetta litilræði: mat og frelsi! Hinn kommúnisiki „sælunnar reitur” er því í reynd þjóðfélag hinnar miklu mannlegu óhamingju, gjaldþrot — efna- hagslegt, siðferðislegt og umfram allt — pólitiskt. Hvernig stendur á fátækt kommúnismans? Hún stafar af þvi að lindir velmegunarinnar hafa þornað: Hugvit, framtak og ráðdeild Um leið og óeðlileg höft hafa verið lögð á þessar hliðar mannlífsins — athafnafrelsið — eða þær aðeins vanmetnar og vanræktar, þá þorna uppsprettur gæðanna. Hönd embættismannavaldsins, sem á að koma í stað þessara þátta, reynist ófrjó og refsigjörn — hönd kúgunarinnar. Svona einfalt er þetta! Svona þýðingarmikið er frelsið og hið rétta leiðarljós frjálsra manna: sannleikur og réttlæti, þvi að án þeirra ekkert frelsi. Það gildir því að hafna hinu eitraða hunangi lýðskrumara Alþýðubandalagsins. Það er íslenzkri alþýðu lífs- nauðsynlegt að losa sig úr viðjum Alþýðubandalagsins sem allra fyrst.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.