Dagblaðið - 04.08.1981, Page 18

Dagblaðið - 04.08.1981, Page 18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981. -n Véðrið Gert er ráð fyrir mildu og góðu veðri (dag. Skýjað að mestu um allt land, smáskúrir á Suöu ■ og Vestur- landi en þokuloft viö nlorður og austurströndina I nótt. Klukkan 6 var austan 2, rigning og 11 stig í Reykjavik, sunnan 2, rlgning og 11 stig á Gufuskálum, norðan 2, skýjað og 10 stig á Galtarvita, vest- norðvestan 2, alskýjað og 10 stig á Akureyri, austnorðaustan 2, þoka og 7 stig á Raufarhðfn, austan 1, þoka og 7 stig á Dalatanga, breytileg átt 2, rigning og 10 stig á Höfn og austan 3, þoka og 10 stig á Stórfiöfða. ( Þórshöfn var atekýjað og 12 stig, léttskýjað og 18 stig í Kaupmanna- höfn, skýjað og 16 stig I Osló. Skýjað og 15 stig f Stokkhólmi, þoka og 16 stigí London, þokumóða og 16 sti^ I Hamborg, heiðsklrt og 18 stig I Perte, skúrir og 19 stlg ( Madrid og skýjað og 23 stig f New York. Sveinn Jónsson Egilsstöðum sem lézt 26. júlí fædist 8. janúar 1893. For- eldrar hans voru Jón Bergsson og Margrét Pétursdóttir. Sveinn stundaði nám í búnaðarskólanum á Eiðum, síðar hélt hann til Danmerkur til frekara náms. Árið 1920 tók hann við búi á Egilsstöðum þar sem hann bjó síðan. Árið 1941 —1968 var Sveinn í stjórn Búnaðarsambands Austurlands, búnaðarþingsfulltrúi 1931 —1970. Hann var oddviti í Vallahreppi 1919— 1943 og síðan í Egilsstaðahreppi 1947— 1966 og í sveitarstjórn þess hrepps til 1974. Sveinn var gerður að heiðurs- borgara Egilsstaðahrepps frá 1976. Hann var oftar en einu sinni í framboði til Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sveinn var kvæntur Sigríði Fanneyju Jónsdóttur og áttu þau 3 börn. /2 SVÍNAskrokkar I trystjnn Verð kr. 45,00 pr. kg. VERZLIO VIÐ FAGMENN Maria Guðmundsdóttir sem lézt 22. júlí sl. fæddist 15. sept., 1931 að Núpi. undir Vestur-Eyjafjöllum. Foreldrar hennar voru Sigríður Sigurðardótlir og Guðmundur Árnason. Árið 1950 stofn- aði María heimili með Jóni Bjarnasyni, bjuggu þau fyrst á Hvolsvelli, en árið 1959 hófu þau búskap að Dufþaksholti þar sem þau bjuggu siðan. Þau María og Jón áttu 7 börn. Camilla Björnsdóttir, Ásvallagötu 9, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. ágúst kl. 10.30. Linda Christine Breckman frá Winni- peg í Kanada, lézt í Reykjavík 22. júlí sl. Kveðjuathöfn hefur farið fram. Útför hennar fer fram í Winnipeg. Ingvar Ernir Pálsson, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Margrét Runólfsdóttir, Furugrund 26, Kópavogi, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni, þriðjudaginn 4. ágúst kl. 15. Álfheiður Sigurðardóttir, Hátúni 23, sem lézt í Borgarspítalanum 18. júlí sl. verður jarðsungin í dag 4. ágúst kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Ingvar Haukur Sigurðsson, Túngötu 37, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju í dag 4. ágúst kl. 13.30. Friðjón Vigfússon, frá Siglufirði, sem lézt á Hrafnistu 25. júlí sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag 4. ágúst kl. 15.00. Hálfdán Þorstelnsson frá Vattarnesi Selvogsgötu 8 Hafnarfirði verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni Hafnar- firði þriðjudaginn 4. ágúst kl. 14.00. Rakarastofan Klapparstíg Sími12725 Hárgreiðslustofa Kiapparstíg Tímapantanir 13010 Guðrún Sveinsdóttir sem lézt 25. júlí sl. fæddist 30. marz 1922. Foreldrar hennar voru séra Sveinn ögmundsson og Helga Sigfúsdóttir. Guðrún var sett í fóstur til ögmundar Sigurðssonar og Guöbjargar Kristjánsdóttur eftir að móðir hennar lézt. Árið 1943 giftist hún Arnóri Sigurðssyni bjuggu þau allan sinn búskap að Suðurgötu 20 Sauðárkróki. Þau áttu tvö börn. Guðrún var jarðsungin frá Sauðár- krókskirkju sl. laugardag. Artdlát VANTA5,C FRAMRUÐU? Ath. hvort viögetum aðstoðaó. TOhM ísetningar ú staðnum. BÍLRÚÐAN UM HELGINA ÚTVARP Á FERD Það er best að taka það fram strax að ég var ekki á faraldsfæti þessa verslunarmannahelgi eins og helftin af landsmönnum. Því fór ég á mis við verðlaunin i umferðargetrauninni, sárabindin, kompásana, slökkvitæk- in eða hvað það nú annars var sem fólk fékk fyrir að hafa börnin í aftur- sætinu (hvar ættu -þau annars að vera?), spenna á sig beltin og segja til nafns. Og þar sem ég er fremur lög- hlýðinn og smeykur við lögregluna, er ég viss um að ég hefði farið á taugum, dottiö út úr sætisbeltinu og sagst heita Skarphéðinn Njálsson ef lögreglan hefði stöðvað mig til að verðlauna mig fyrir að vera eins og sæmilega siðaður maður á þjóðveg- unum. Eins og mig vantar bráðnauð- synlega sjúkrakassa og kompás i bíl- inn. Einn kunningi minn var hins vegar áfjáður i að vinna til þessara verð- launa og setti sig aldrei úr færi að aka með miklum bravúr og ökuljósum i hvert sinn sem hann sá lögreglubil í grenndinni. í Grímsnesinu datt hann loksins í lukkupottinn því ein svört María veitti honum eftirför, stöðvaði hann — og sektaði fyrir of hraðan akstur. Annars er ég ekki viss um að út- varpshlustun min hefði borið mikinn árangur, þótt ég hefði verið á fleygi- ferð á undan regninu þessa helgi með útvarp i bílnum. Ég er nefnilega frekar á móti bílaútvörpum, tel þau beinlínis hættuleg í sumum tilfellum. Útvarpshávaði í bíl deyfir athyglina og getur oft ýfirgnæft önnur hljóð sem bílstjóri þarf að heyra, svo sem sirenuvæl, bilflaut, hikst í vél og kveinstafi eiginkonunnar. Ég var alltaf að vona að Óli H. Þórðarson mundi benda vegfarendum á þennan möguleika á sinn þægilega hátt í um- ferðarþáttum sínum um helgina. En þar með hefði hann verið að biðja fólk að hlusta ekki á sig, svo maður skilur umburðarlyndi hans í málinu. En þessir þættir Óla & Co gerðu mér kleift að ferðast i huganum, taka nótis af grýttum vegum fyrir austan, ryki á þjóðveginum frá Höfn, heilsa upp á FÍB 5 að Kirkjubæjarklaustri. Þetta hét einu sinni að „ferðast á öldum ljósvakans” meðan Gufu- radíóið var og hét. En hvað sem það nú var og hét, er engan veginn hægt að segja að út- varpið sé ólýðræðisleg stofnun. Sértu hagyrðingur, smásagnahöfundur, pólitískur kverúlant, hreinn exi- bisjónisti og ekki áberandi geðveikur, þá er þér tekið opnum örmum í útvarpi og þú færð að flytja þitt efni einhvers staðar í dagskránni — í kvöldvöku, í deginum og veginum, eftir kvöldfréttir eða þá að þú færð að búa þér til nýjan þátt. Slfkir þættir tröllriðu dagskránni í fyrravetur og allir gengu þeir út á „blandað efni”, þ.e. tónlist og næga brandara. Nú viðurkenni ég fúslega að ég hef ekki hlustað á röð þátta sem nefnast öreigapassían (sunnud.), en af síð- asta þætti að dæma þá hlýtur maður að álykta að óvenju mikið umburðar- lyndi hafi þeir sýnt sem dagskránni ráða. Efnið var fasisminn, hvorki meira né minna, og væri út af fyrir sig guðsþakkarvert ef reynt væri á lifandi hátt að kanna eðli þess skrýmslis í útvarpi, ekki aðeins út frá sögulegu og hagfræðilegu sjónar- miði, heldur einnig út frá sáiarfræð- inni: fasismanum í okkur flestum. Þess í stað var ( öreigapassíunni flutt frasakennd tónlist eftir austurrískan músíkhóp og islenskar þýðingar kyrj- aðar yfir þeim söng. Reynum fyrir alia muni að búa til svona þætti sjálf í stað þess að fá boðskapinn lánaðan frá Austurríki. En þetta var alls ekki leiðinleg út- varpshelgi. Um það sá Flosi Ólafsson á laugardagskvöldið og Óskar Ingi- marsson í þætti sinum um Harald Björnsson á sunnudag. Helga Káradóttir Kapiaskjólsvegi 27 andaðist í Borgarspítalanum föstu- daginn31. júll. Guðný Guðmundsdóttir Norðurbrún 1 lézt í Landakotsspítala fimmtudaginn 30. júlí sl. Sigriður Ketilsdóttir Melabraut 63 Sel- tjarnarnesi sem lézt á Landspítalanum hinn 25. júlí sl. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15.00. Ingibjargar Slgriðar Jónasdóttur Njáls- götu 4 B verður minnst í Dómkirkj- unni í Reykjavik miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður að Borg á Mýrum fimmtudaginn 6. ágúst kl. 14.00. íslandsmótið í knattspyrnu 1981 Þriðjudagur 4. ágóst KÓPAVOGSVÖLLUR ÍK—Leiknir 2. H. C. kl. 20 NORÐFJARÐARVÖLLUR Þróttur—Grótta 2. fl. C kl. 20 VOPNAFJARÐARVÖLLUR Einherji—Haukar 2. fl. C kl. 20. Pundir AA-samtökin í dag þriðjudag veröa fundir á vegum AA-samtak- anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 12010), græna húsið, kl. 14 og 21; Tjamargata 3 (s. 91-16373), rauöa húsiö, kl. 12 (samlokudeild) og 21; Neskirkja kl. 21. Akureyri, (s. 96-22373) Geislagata 39 kl. 21; ísa- fjöröur, Gúttó við Sólgötu kl. 20,30, Keflavík (s. 92- 1800), Klapparstig 7 kl. 21, Keflavikurflugvöllur kl. 11,30, Laugarvatn, Barnaskóli kl. 21, ólafsvík, Safnaöarheimili kl. 21, Siglufjörður, Suöurgata 10 kr. 21, StaðarfeU Dalasýslu(s. 93-4290) kl. 19. í hádeginu á morgun, miövikudag, verða fundir sem hérsegir: Tjarnargata 5 (s. 91-12020) kl. 12 og 14 Minningarspiöid ........ •• 'A Minningarspjöld Blindrafélagsins fást á skrifstofu Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17. simi 38180 og hægt cr að fá þau afgreidd mcð simtali Ennfremureru þau afgreidd i Ingólfsapóteki. Iðunna' apóteki, Háaleitisapóteki, Vesturbæjarapóteki, Garðs apóteki, Kópavogsapóteki. Apóteki Hafnarfjarðar.: Apóteki Keflavikur. Apóteki Akureyrar og hjá Ástu' Jónsdótturá Húsavik. Minningarkort Styrktar- og minningarsjóðs Samtaka gegn astma og ofnæmi fásl á eftirlöldum stöóum: Á skrifstofu samtakjnna að Suöurgötu 10, simi 22153, á skrifstofu SlBS, slmi 22150, hjá Magnúsi, simi 75606, hjá Mariasi, sim 32354, hjá Páli. simi 18537 og i-sölubúðinni á Viíils stöðum, simi 42800. Fyrirsjáanleg mikil vöntun á dagmömmum í Reykjavík Þar sem nú fer I hönd sá tími sem fólk leitar mjög eftir dagvistun fyrir börn sín og þegar er að mestu búið að ráðstafa öllum plássum á dagheimilum og leikskólum, þykir rétt að vekja athygli á að fyrir- sjáanleg er mikil vöntun á dagmömmum. í öllum hverfum borgarinnar eru nú of fáar dag- mömmur ef aðeins eru undanskilin Fella- og Selja- hverfi í Breiðholti. Á biðlista eru verulegur hópur barna auk þess, sem vitað er að eftirspurnin eykst stórlega i ágúst og september. Hér er um að ræða börn á ýmsum aldri, þó fyrst og fremst kornabörn og fram til 3ja ára aldursins, og svo skólabörn úr yngstu bekkjum grunnskólans. Er t.d. áberandi hve mikið er spurt eftir dagvistun fyrir börn, sem sækja munu Mela- skólann. Þeim tilmælum er hér með beint til þeirra sem hefðu hug á að taka börn til dagvistar að hafa sam- band við umsjónarfóstru með dagvistun barna á einkaheimilum sem allra fyrst. Þær eru til viðtals I síma 27277 alla virka daga milli kl. 13 og 14ogisíma 85911 á þriðjudögum — föstudaga kl. 9—10. Afmælisrit Lúðvfks Kristjánssonar Eins og skýrt var frá í vor mun Sögufélag gefa út rit í tilefni sjötugsafmælis dr. Lúðvíks Kristjánssonar hinn 2. sept. nk. Frestur til aö láta skrá nafn sitt á heillaóskalista og verða áskrifandi aö ritinu rennur út hinn 5. ágúst. Þeir sem vilja heiöra Lúðvik ineð þessum hætti eru vinsamlega beðnir að tilk., þaö á afgreiöslu Sögufélags, Garðastræti 13 B, opið virka daga kl. 14—18, eöa í síma 14620. — Verð ritsins er kr. 200. í ritinu verður m.a. eftirfarandi efni: Á sjötusaf- mæli Lúðvíks Kristjánssonar eftir Einar Laxness, heillaóskalisti (tabula gratulatoria), átján ritgerðir eftir Lúðvik Kristjánsson. Auk þess verður ritskrá Lúðvíks Kristjánssonar. Útgáfuna annast Einar Laxness og Bergsteinn Jónsson. Haf narböðin opnuð aftur eftir eins árs lokun Um sl. mánaðamót voru Hafnarböðin Grandagarði opnuð aftur eftir eins árs lokun. í Hafnarböðunum eru sturtur og búningsklefar og þar er einnig hægt að fá rakvélar lánaðar og kostar það 8 kr. Sælgætis- sala er einnig í Hafnarböðunum og munu ham- borgarar verða seldir þar á næstunni. Hafnarböðin eru opin frá kl. 8—22 daglega og hefur aðsókn verið góð. Þeir sem nota þessa aðstöðu eru mestmegnis sjómenn og starfsmenn í frystihúsunum á Granda- garði og voru þeir mjög ánægðir er böðin voru opnuð aftur eftir lokunina. Á myndinni sjáum viö þá Þorberg Sveinsson og Ragnar Jónsson, en þeir reka böðin. Reykjavíkurhöfn á húsið, en þeir félagar sjá um reksturinn og hafa þeir hugsað sér aö stækka við sig þegar fram líða stundir. GENGIÐ GENGISSKRÁNING Ferðamanna- NR. 142 — 30. JÚLl 1981 gjaldeyrir Einingkl. 12.00 Raup Sala Sala 1 Bandarikjadollar 7,500 7J»20 8,272 1 Stariingspund 13,864 13,901 16,291 1 Kanadadollar 6,129 6,146 8,781 1 Dönskkróna 0,9678 0,9704 1,0674 1 Norsk króna U179 1,2212 U433 1 Sænsk króna 1,4306 1,4344 1.5778 1 Hnnsktmark 1,6383 1,6407 1,8048 1 Franskur franki 1,2811 U845 1,4130 1 Belg. franki 0,1858 0,1861 0,2047 1 Svtesn.franki 3,5088 3,5181 3,8699 1 Hollenzk florina 2,7383 2,7436 3,0180 1 V.-þýzktmark 3,0401 3,0482 3,3530 1 ftölsk Ifra 0,00611 0,00613 0,00674 1 Austurr. Sch. 0,4324 0,4338 0,4770 1 Portug. Escudo 0,1145 0,1148 0,1263 1 Spánskur pesetí 0,0758 0,0760 0,0836 1 Japansktyen 0,03131 0,03139 0,03453 1 írsktound 11,089 11,118 12,230 SDR (sérstök dráttarréttindi) 8/1 8,4279 8,4505 Sfcnsvari vegna gengisskráningar 22190. fl

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.