Dagblaðið - 01.09.1981, Page 1
tríálst,
úháð
riayhlaS
7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR1. SEPTEMBER1981. —196. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
Embættistaka
sr.Péturs
Sigurgeirssonar:
Athöfn í
Dómkirkj-
unni 27.
september
Embættistaka sr. Péturs Sigur-
geirssonar mun fara fram í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík sunnu-
daginn 27. september nk. Þá mun
sr. Pétur flytja sina fyrstu
biskupsmessu. Störf sín sem
biskup mun hann þó ekki hefja
fyrren 1. október.
Biskupsvígsla er óþörf þar sem
sr. Pétur er þegar vígður vígslu-
biskup.
Fulltrúar frá öðrum löndum
verða viðstaddir embættistöku
hins nýja biskups. Að sögn herra
Sigurbjörns Einarssonar biskups
er búizt við því að frá hverju
Norðurlandanna komi einn
biskup til að samfagna íslenzku
kirkjunni.
-KMU.
Sr.ÓlafurSkúlason
um ákvörðun
fjórmenninganna:
„Virði og
styðvilja
11
„Auðvitað harma ég að þau
fengu ekki notið réttar sins. En ég
virði og styð vilja þeirra til að við
fáum einingu i kirkjunni,” sagði
sr. Ólafur Skúlason dómprófast-
ur i morgun í tilefni fréttatilkynn-
ingar frá eigendum þeirra
fjögurra kjörseðla sem kjörstjórn
mat ógilda i biskupskjöri.
Fjórmenningamir hafa lýst því
yfir að þeir muni ekki kæra úr-
skurð kjörstjórnar. Vilja fjór-
menningarnir i þess stað hvetja
allt kirkjunnar fólk til að standa
saman um orðinn hlut. Þeir taka
þó fram að þeirra skoðun sé að
atkvæðin umdeildu hefðu átt að
teljast með. Ekki náðist i séra
Pétur Sigurgeirsson 1 morgun.
-KMU.
Pétur Sigurðsson var kvaddur með gjöfitm I gœr er hann lét af störfum. Starfsmenn Landhelgisgtezlunnar fcerðu honum mikla blómakörfu og Gunnar Bergsteinsson
fœrði honum, fyrir hönd Sjómœiinga, skyrtuhnappa með merki Sjómœlinganna. Pétur lét af störfum sem yfirmaður Sjómœlingaþegarþorskastríðið stóð sem hcest.
DB-mynd: Bjamleifur.
Pétur Sigurðsson kveður Landhelgisgæzluna:
Treysti Gunnari fullkomlega
til að taka við starfi mínu
—enda bað ég hann að koma í land er ég tók við starfinu 1952
„Ætli ég taki það ekki rólega fyrst
um sinn,” sagði Pétur Sigurðsson frá-
farandi forstjóri Landhelgisgæzlunnar
i samtali við DB i morgun. í dag tekur
við starfi hans Gunnar Bergsteinsson.
Pétur hefur starfað sem forstjóri Land-
helgisgæzlunnar siðan II. maí 1952.
Hjá Landhelgisgæzlunni hóf hann starf
1927, þá sem óvaningur á varðskipinu
Óðni. Sfðan starfaði Pétur lengi hjá
Sjómælingum sem yfirmaður þar og
hélt þvi starfi áfram eftir að hann tók
við forstjórastarfi gæzlunnar.
„Þegar ég tók við sem forstjóri
Landhelgisgæzlunnar 1952 var Gunnar
Bergsteinsson stýrimaður hjá
gæzlunni. Ég bað hann að koma i land
og aðstoða mig, þannig að við höfum
alltaf unnið saman og ég treysti honum
fullkomlega fyrir þessu starfi,” sagði
Pétur.
Hann var sjálfur á vakt til
miðnættis i nótt vegna þyrlunnar sem
fór í sjúkraflug til Hveravalla i gær-
kvöld en Gunnar tók við strax um
miðnætti.
„Nei, það verða ekki viðbrigði fyrir
mig að hætta störfum, ég fer utan
núna í nokkra daga, siðan ætla ég að
láta hverjum degi nægja sina
þjáningu,” sagði Pétur Sigurðsson.
Ekki sagðist hann ætla að setjast niður
og skrifa endurminningar sinar, því
„þá væri ég að þvi allt til æviloka”.
-ELA.
. MODIR FAGNAR AFTÖKU SONAR SINS
— sjá erlendar
fréttirbls. 6-7
Tvö bókaforiög skikka bókaverzlanir til að skila öllum óseldum skólabókum
inn fyrir25. september—eftirþað hækkaþæríverði:
ALLT AB100% HÆKKUN Á
SKÓLABÓKUM FRÁ í FYRRA
—algengasta hækkun um 40% — sjá nánará neytendasíðu bls. 4-5