Dagblaðið - 01.09.1981, Blaðsíða 2
2
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTI5
SÍMI29555
Opið kl. 1—5 laugardaga og sunnudaga.
Sandgerði
Einbýlishús, 140 ferm. með 50 ferm. bílskúr. Verð kr. 850
þús.
Kjarrhólmi
3ja herb. íbúð á 2. hæð. Verð 500 þús.
Kjarrhó/mi
3—4ra herb. íbúð á 3. hæð. Suðursvalir. Verð 550 þús.
Kársnesbraut
4ra herb. 110 ferm risíbúð. Lítið u/súð. Góð lóð. Verð 530
þús.
Kaplaskjólsvegur
5 herb. íbúð á 4. hæð í blokk. íbúðin er 140 ferm, þar af 40
ferm í risi. Mjög snyrtileg íbúð. Verð 650 þús.
Raðhús v/Vesturberg
Glæsilegt 140 ferm raðhús á einni hæð. Verð l milljón.
Lóð á Álftanesi
937 ferm byggingarlóð. Hitaveita komin í götu. Verð 150
þús.
Sumarbústaður v/Þingvallavatn
Glæsilegur sumarbústaður í Nesjalandi. Verðtilboð.
Höfum kaupendurað eftirtöldum eignum:
3ja herb. íbúð í Grundum í Kópavogi eða Fossvogi.
2ja herb. íbúð, ca 65 ferm, i nýlegu húsi.
Lítilli sérhæð á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
3—4ra herb. íbúð í þrí- eða fjórbýlishúsi í Kópavogi með
bílskúr.
Einbýlishúsi í gamla bænum með bílskúr.
Einbýlishúsi eða góðri sérhæð í Kópavogi.
3ja herb. íbúð í Breiðholtshverfi.
Skoðum og metum íbúðir samdægurs, leitið
upplýsinga. Fijót og góð þjónusta er kjörorð
okkar.
ÞorvaldurLúðvíksson hrl.
Auglýsum ávallt I Dagblaðinu
þriðjudaga og fimmtudaga
Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar Flugleiða hafa átt i vök að verjast undanfarið því „það er búið að ata þetta flugfélag
ýmiss konar óhróðri,” segir Siggi flug. DB-mynd Ragnar Th.
Umósanngirni:
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR l. SEPTEMBER 1981.
Rætt er við forstjóra Flug-
leiða eins og afbrotamann
— er reynt að knésetja félagið?
Siggi flug, 7877—8083, skrifar:
Þessi orð duttu mér í hug þegar ég
las um þörf Flugleiða á styrk ríkisins
til N-Atlantshafsflugsins sem er eins
og kunnugt hefur verið rekið með
tapi undanfarin ár.
Ríkissjóður hefur lofað félaginu
styrk ef sama upphæð í $ kæmi frá
Luxemborgarmönnum. Þetta mun
vera samtals um 6 millj. $, eða um 3
millj. $ frá hvoru ríki.
íslenzki samgönguráðherrann
hafði þann fyrirvara á, að aðeins
yrði styrkurinn veittur ef sama upp-
hæð kæmi frá Luxemborgarmönn-
um. Hvað kemur það styrk frá
íslendingum við, hvað Luxemborgar-
menn eru reiðubúnir til að styrkja N-
Atlantshafsflugið?
Það er búið að ata þetta flugfélag
ýmiss konar óhróðri og hefur Ríkis-
útvarpið rætt við Sigurð Helgason,
forstjóra flugfélagsins, eins og um
afbrotamann sé að ræða. Við ORG.
(Ólaf R. Grímsson) er aftur á móti
rætt eins og um þjóðhetju sé að
ræða, en hann mun vera upphafs-
maðurinn að öllu því moldviðri sem
blásið hefur verið upp gagnvart Flug-
leiðum.
Steingrímur Hermannsson
samgönguráðherra óskar alls konar
nýrra upplýsinga um rekstur Flug-
leiða eins og bókhald félagsins segi
ekki nóg um reksturinn.
Á aðalfundum félagsins eru alltaf
kosnir einn eða fleiri endurskoð-
endur en auk þess mun bókhald
félagsins ávallt vera eftirlitið af lög-
giltri endurskoðunarskrifstofu, eins
og hjá öðrum fyrirtækjum.
Nú vaknar sú spurning hvort Stein-
grímur Hermannsson hafi vantrú á
bókhaldi Flugleiða og telji það að
einhverju leyti ekki sýna rétta stöðu
félagsins. Þetta er nánast að vefengja
bókhaldið og telja það falsað, eða
hvað?
Ég held að Steingrímur Hermanns-
son og hans kompaní, ásamt fjár-
málaráðherra Ragnari Arnalds og
svo með hjálp þjóðarhetjunnar
ORG, sé að reyna að komast hjá því
að rétta félaginu hjálparhönd en það
er það sem Flugleiðir vantar nú svo
mjög til þess að geta haldið N-
Atlantshafsfluginu áfram.
Vilji er allt sem þarf, Steingrímur
Hermannsson samgönguráðherra.
En ef viljann vantar þá er erfitt um
vik.
Mér datt þetta (svona) í hug.
Hljómplötuáhugamenn:
VILL EINHVER GERAST UMBODS-
AÐILIFYRIR PLÖTUKLÚBBA?
Haraldur Örn Haraldsson hringdi: hljómplötuklúbba, í Bandaríkjunum
Mig langar að koma þeirri hug- og víðar, sem taka við erlendum
mynd á framfæri að einhver taki að félögum.
sér að gerast umboðsaðili fyrir þá Ég tel óæskilegt að slikur umboðs-
aðili væri í tengslum við hljómplötu-
útgáfu því það gæti haft áhrif á val
og fleira.
Raddir
lesenda
FRANZISCA
GUNNARSDÓTTIR
Haraldur Örn Haraldsson vill að
einhver taki að sér að vera umboðs-
aðili fyrir erlenda plötuklúbba.
DB-mynd Ragnar Th.
V.
Svar til Umferðarráðs:
Dekkjainnf lutningur og okurtollar
Jóhann Þóróifsson skrifar:
Ég las í Dagblaðinu 11. ágúst
viðtal við Alla Rúts í sambandi við
innflutning á notuðum dekkjum. í
sama blaði skýrir Sigurður Ágústsson
frá sjónarmiði Umferðarráðs á þessu
máli. Þar segir hann að fólk vari sig
ekki á þvi að þessi notuðu dekk geti
verið fúin og þar af leiðandi varhuga-
verð og geti jafnvel valdið slysi.
Eg undirritaður mótmæli þessu
harðlega vegna þess að ég er nú
orðinn 70 ára og hefi 50 ára reynslu
að baki. Ég keypti dekk af Alla Rúts
1 fyrra sem eru undir bílnum ennþá
og hafa aldrei sprungið . Ný dekk
geta meira að segja verið gölluð. Það
kemur úr hörðustu átt að Umferðar-
ráð skuli reka áróður á móti mönnum
sem hafa einkarekstur og vilja veita
viðskiptavinum sínum ódýra og góða
þjónustu. Þeir hjá Umferðarráði
hafa ekki hugmynd um hvað
umrædd dekk endast lengi. Ég tel
mig hafa meiri reynslu af þessu
heldur en þeir og ég bendi þeim hér
með á að endurskoða sinn mál-
flutning í umræddu máli.
Það er furðulegt að Umferðarráð
skuli láta frá sér fara svona yfir-
lýsingu, þar sem talsmenn þess hafa
ekki hugmynd um það sem þeir eru
að ræða um. Annað er furðulegt í
sambandi við þennan dekkjainn-
flutning, það er tollurinn. Það virðist
ekki mega gera góð innkaup. Ef svo
er tvöfaldar eða jafnvel margfaldar
tollurinn reikningana frá hinum
erlendu fyrirtækjum sem selja
dekkin, í þeim tilgangi að fá tvöfald-
an eða margfaldan toll greiddan.
Sama mun vera aðhafzt af tollyfir-
völdum í sambandi við innflutning á
notuðum bílum og notuðum vara-
hlutum. Ekki er furða þó dýrtíðin
blómgist hér þar sem það opinbera
gengur á undan með okurtolla.
Jóhann Þórólfsson scgist hafa góða
reynslu af notuðum dekkjum.
I