Dagblaðið - 01.09.1981, Side 4
4
/*
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1981.
DB á neytendamarkaði
ANNA
BJARNASON
5?
Gríðarleg verðhækkun á skólabókum:
v
DÆMIUM MEIRA EN100% HÆKKUN MILLIÁRA
Þessa dagana eru skólanemendur
óðum að flykkjast í skólana. Þar fá
yngstu nemendurnir, eða allt upp í 8.
bekk, langflestar skólabækurnar frá
Námsgagnastofnuninni. Hinir verða
að kaupa námsbækurnar á almenn-
um markaði. Ekki er talið fært að
halda uppi endursölu bóka í skólun-
um vegna þess að nemendum er gert
að kaupa nýjar bækur á hverju ári
vegna jafnvel smávægilegustu breyt-
inga sem á bókunum eru gerðar.
Einnig fer obbinn af nemendum svo
illa með bækur sínar að ekki væri
hægt að selja þær aftur. — í „gamla
daga” settu nemendur stolt sitt í að
hafa námsbækur sínar sem bezt með
farnar. í hvert sinn sem nemandi
fékk nýja bók var settur utan um
hanahlífðarpappír.
í dag er einnig til fjölbreytt úrval af
pappír og plasti til þess að setja utan
um skólabækur. Það var ekki því að
heilsa í „gamla daga”. Þá varð að
notast við hillupappír eða jafnvel
svokallaðan maskínupappír, sem var
brúnn þykkur umbúðapappír. Þá
gátu nemendur líka notað sömu bæk-
urnar í nokkur ár og þær gengu þá
frá systkini til systkinis.
Nú skal kaupa nýtt á hverju hausti,
alveg sama hvað það kostar.
Meiraen 100%
hækkun á bókaverði
Þegar blm. og ljósmyndari komu í
bókadeild Pennans i Hallarmúla var
verzlunarstjóri deildarinnar, Sissa
Sigurðardóttir í simanum að panta
námsbók frá einu af forlögunum.
Hún var með sams konar bók í
höndunum sem orðið hafði eftir í
fyrra.
Þetta var skólaútgáfa af Svartfugli
Gunnars Gunnarssonar í
pappírskiljuútgáfu. Bókin frá í fyrra
kostaði 58,05 kr. Nýja bókin (sem er
óbreytt frá því i fyrra) kostar með
söluskatti 118,55 kr.
**
Sissa sagði okkur að þær náms-
bækur sem ekki seljast fyrir 25.
september væru innkallaðar af
tveimur forlögunum, það er Iðunni
og Skuggsjá. Ef verzlunin þarf að fá
eintök eftir þann tíma verður að
kaupa bækurnar til baka gegn stað-
greiðslu. Önnur forlög endurkalla
sínar bækur 10. október.
í bókadeild Pennans voru nokkrar
námsbækur til síðan í fyrra og verða
þær að sjálfsögðu seldar á því verði
sem þær kostuðu þá.
Sissa gat ekki gizkað á hver yrði
kostnaðurinn við bókakaup hinna
ýmsu framhaldsskólanema, því
bókalistarnir væru ekki komnir.
-A.Bj.
Allar hugsanlegar
álögur á skólabækur
„Mér finnst ekki ósennilegt að
námsbækurnar hækki svona um 40%
almennt nema um nýtt band eða
nýja prentun sé að ræða, þá verður
hækkunin meiri,” sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, aðstoðardeildarstjóri
hjá Bókaverzlun Sigfúsai Eymunds-
sonar, í samtali við DB.
,,Ég gæti trúað að nemendur í 9.
bekk grunnskólans þurfi að kaupa
fyrir 1000 kr. eða jafnvel meira,”
sagði Þorsteinn. Hann sagði að þetta
væru gífurlegar upphæðir sem börn-
in þyrftu að greiða fyrir náms-
bækurnar.
Hann sagði að framhaldsskóla-
nemendur þyrftu að eyða mun meiru
í bækur. Þeir þurfa einnig að kaupa
erlendar bækur en verð er svipað á
þeim og þeim islenzku.
— Er söluskattur á námsbókum?
,, Já, það er greiddur söluskattur af
námsbókum og yfirleitt öll gjöld sem
hugsanleg eru,” sagði Þorsteinn.
— Er mikil álagning á bókum?
,,Það er í rauninni engin álagning á
bækur heldur fá bókaverzlanir 30%
afslátt þegar þær staðgreiða bæk-
urnar hjá forlaginu,” sagði Þor-
steinn.
— Er alltaf um staðgreiðslu að
ræða áTorlagsbókunum?
„Það er þannig að þegar ný bók
kemur út fær bókaverzlunin send
nokkur eintök, kannski tíu, og hefur
þau í umboðssölu. Svo kaupir
verzlunin bækur af forlaginu gegn
staðgreiðslu og fær þá þennan 30%
afslátt. Eftir ákveðinn tíma kalla for-
lögin svo óseldar bækur inn og fær
þá verzlunin endurgreitt verðið sem
greitt var fyrir bækurnar á sínum
tíma. Verzlunin heldur svo eftir
nokkrum bókum í umboðssölu,”
sagði Þorsteinn. -A.Bj.
Þorsteinn Þorsteinsson, aðstoðardeildarstj. hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, sagði i samtali við DB að hann teldi að bókakaup nemenda 9. bekkjar
grunnskóla væru svona um eða yfir 1000 kr. f ár.
DB-mynd Bjarnleifur.
Nýjar reglur um skil óseldra skólabóka:
Hækka skólabækur
mánaðarlega?
Tvö bókaforlög hafa nú sett
nýjar reglur um skilafrest á skóla-
bókum sem bókaverzlanir kaupa
hjá þeim. Venjan hefur verið sú að
verzlanir hafa fengið 30% stað-
greiðsluafslátt hjá forlögunum.
Skilafrestur og uppgjör hefur svo
farið fram einu sinni á ári, 15.
febrúar.
Forlögin tvö eru Iðunn og
Skuggsjá og hafa þau nú sett þær
reglur að ef bókaverzlanir gangast
ekki inn á að skila óseldum skóla-
bókum fyrir 25. september fá þær
ekki nema 25% afslátt af
bókunum.
Að sögn er þetta gert vegna þess
að bókaverzlanir hafi á undan-
förnum árum gert of stórar bóka-
pantanir og forlögin hafa setið uppi
bókalaus!
Þetta gerir hins vegar að
verkum að eftir 25. september
verður stór hluti af skólabókunum
ófáanlegur í bókaverzlunum og
getur það valdið miklum erfið-
leikum. Ekki er víst að allir skóla-
nemendur geti keypt allar bæk-
urnar sem þeir þurfa á að halda
strax. Margir reyna að fresta fram
yfir mánaðamótin að kaupa sínar
bækur. Þá getur farið svo að þeir
grípi í tómt — eða jafnvel að
bækurnar verði dýrari en þær eru
nú í upphafi skólabókaver-
tíðarinnar. -A.Bj.
í bókadeild Pennans i Hallarmúla ræður rikjum Sissa Sigurðardóttir, sem um
árabil var Sissa f tsafold. Sissa veit allt um bækur, bæði skólabækur og annars
konar bækur.
DB-mynd Bjarnleifur.
Barði Guðmundsson, aðstoðarverzlunarstj. hjá Eymundsson, sagði okkur að
verðið á stílabókunum væri svipað og i fyrra. Sem dæmi má nefna að ódýrasta
bókin sem við sáum þar var Iftil reikningsbók á 2 kr. Barði heldur þarna á gorma-
bókum sem eru vinsælar. Þessar kosta 8,50.