Dagblaðið - 01.09.1981, Qupperneq 6
6 , — • '7 1 ifinTii III DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1981.
ó| Erlent Erlent Erlent Erlent
. ...
Sala á lyfjum við hjarta- og æðasjúkdómum hefur stóraukizt. Sennilega er það mikið
reykingamönnum að „þakka”.
VINDLAR HÆTTU-
LEGIR HEILSUNNI
Smávindlar, sem hingað til hafa
talizt hvað „minnst óhollir” af tóbaks-
varningi, eru nú sterklega grunaðir um
að eiga snaran þátt í þeim hjarta-
sjúkdómum sem stafa af blóðtappa.
í enska læknatímaritinu The Lancet
skýra fjórir danskir læknar frá
rannsókn sem staðið hefur yfir í tólf ár
og sýnir hún að vindlareykingamenn
eiga alveg jafnt á hættu að fá
blóðtappa í hjarta og þeir sem reykja
vindlinga.
Lyf gegn legbólgum
krabbameinsvaldur?
— Flagyl veldur krabbameini í dýrum
það nýtt að marktæk reynsla fæst ekki
fyrr en að mörgum árum liðnum.
Flagyl hefur einkum verið notað við
meðferð á trichomonasbólgum, sem
stafa af vægum kynsjúkdómi sem
smitast við samfarir. Smitberarnir,
karlmenn, eru jafnframt meðhöndlaðir
með lyfi þessu til að koma í veg fyrir á-
framhaldandi smitun.
Sérfræðingarnir leggja áherzlu á að
uppgötvun þeirra þýði ekki að banna
eigi notkun á lyfinu, heldur verði að
taka þessa áhættu með í reikninginn
þegar meðferð er ákveðin.
Danskir sérfræðingar hafa komizt
að þeirri niðurstöðu aö lyfið Flagyl,
sem mikið hefur verið notað við leg-
gangabólgum hjá konum, sé sennilega
krabbameinsvaldur.
Þeir segja að dýratilraunir hafa
sannað lyfið sem krabbameinsvald og
því megi einnig gera ráð fyrir að lyfið
hafi sömu áhrif á fólk. Hins vegar
benda þeir á erfiðleika við að rar.nsaka
til fullnustu viðbrögð kvenna við lyfi
þessu þar sem ekki er unnt að nota
lifandi fólk sem tilraunadýr og lyfið
Olíuverðið:
Olíuráðherra Saudi Arabíu, Ahmed
Zaki Yamani, hefur skýrt frá því að
búast megi við lækkun á oliuverði þar
sem framleiðslulöndum í OPEC hefur
ekki tekizt að koma sér saman um
sameiginlegt verð.
Þetta kemur þó kaupendum að litlu
gagni, nema Bandaríkjamönnum, þar
sem alþjóðlegt olíuverð er reiknað I
dollurum. Stöðugar hækkanir á dollara
munu valda því að olíureikningur
evrópskra kaupenda lækkar ekki.
Þeir geta þó huggað sig við að
verðlækkun OPED-landanna kemur
sennilega í veg fyrir jafnörar hækkanir
á bensini og áður.
Ágreiningurinn um olíuverð innan
OPEC-landanna þýðir að Saudi
Arabar munu halda áfram að taka 32
dollara á tunnu á meðan flest önnur
olíuframleiðslulönd ganga út frá 34
dollurum á tunnu.
Yamani telur að þetta ástand muni
leiða til verðfalls á oliu. Nægt framboð
af olíu er fyrir hendi og því litlar likur á
að þau lönd sem dýrast selja verði sér
úti um viðskiptavini.
Ný tilslökun við Einingu:
Þeir fá eigin
sjónvarpstíma
Fyrsta ráðstefna hreyfingarinnar hefst íGdansk
á laugardag
fjalla um almenna stefnuskrá Ein-
ingar, seinni hlutinn sem fer fram um
næstu mánaðamót mun fjalla um
kosningar á yfirstjóm lands-
hreyfingarinnar.
' Pólska stjórnin hefur boðið Ein-
ingu, hinni frjálsu verkalýðshreyf-
ingu í Póllandi, sérstakan sjónvarps-
tíma vegna fyrstu -' mðstefnu
hreyfingarinnar sem hefst í Gdansk
nk. laugardag. í staðinn væntir
stjómin sér friðar á vinnumarkaðin-
um.
Talsmaður stjórnarinnar, Jerzy
Urban, sagði að þetta væri algjört
skilyrði þar sem stjórnin gæti ekki
staðið í neinum samningagerðum
undir þrýstingi yfirvofandi verkfalla
og uppþota.
Talsmaður Einingar, Janus
Onyszkiewics, sagði að stjórnarnefnd
félagsins mundi taka málið til
athugunar.
Samkvæmt boði þessu verða Ein-
ingu veittar 30—35 mínútur af sjón-
varpstíma I rás 1 þá þrjá daga sem
ráðstefnan stendur yfir en 3 1/2
klukkutími á rás 2. Afskekktari
héruð í Póllandi geta þó aðeins náð
rás 1.
Sá galli fylgir þó gjöf Njarðar að
stjórnin áskilur sér rétt til að velja
sjónvarpsmenn en með samþykki
Einingar og segjast tilbúnir til að taka
þar með meðlimi Einingar.
Talsmaður Einingar segir hreyfing-
una ekki tilbúna til að fórna góðum
fréttaflutningi fyrir stjórnmálalega
eftirgjöf, en nefnd mun fjalla um
málið I dag.
Fyrri hluti ráðstefnunnar mun
Kröfuganga i Varsjá: VII
skipta á loforði um frið
markaðnum og eigin sjónvarpstima?
BENSINHÆKKANIR
VART JAFN TÍÐAR
Dollarinn er dýn Stúlkan á myndinni sýnir að nú þarf 500 mörk til að kaupa 200 dollara.
Lítið vænkast hagurinn:
Daufleg efnahagsspá,
aukið atvinnuleysi
- Evrópulöndin aftarlega á merinni hvað þjóðartekjur snertir
Verður okkur viðráðanlegra að fóðra bHkkbeljumar?
í nýútkominni skýrslu frá OECD,
samtökunum um efnahagslega
samvinnu, segir að vestræn iðnaðarríki
geti ekki búizt við efnahagslegum
breytingum til batnaöar fyrr en á árinu
1982. Ein af orsökunum er sterk staða
Bandaríkjadollara gagnvart evrópskum
gjaldmiöli.
Litill sem enginn hagvöxtur mun
hafa 1 för með sér aukið atvinnuleysi
innan OECD landanna, þannig að við
árslok 1981 má búast við að tala at-
vinnulausra sé komin upp i 26,5
milljónir, en það er 2,5 milljóna
aukning. Þessi daufi hagvöxtur hindrar
einnig baráttuna gegn veröbólgu.
1 skýrslunni segir að brúttótekjur
OECD landanna aukist aðeins um
rúmlega 1% 1881. Hins vegar mætti
búast viö 3% aukningu síöari hluta
árins 1982. Skýrslan gengur út frá
miklum mismun á efnahagsþróun í
Evrópu, Japan og Bandaríkjunum.
í stærstu Evrópulöndunum lækka
brúttótekjur um 1%. Horfur fara þó
banandi á árinu 1982, þannig að
þjóðartekjur þessara landa aukist um 1
1/2%, sem er um helmingur
væntanlegrar aukningar innan annarra
OECD landa. Búizt er við að þá hafi
evrópskur gjaldmiðill fallið í hlutfalli
við hækkun dollarans og geri það
evrópskar útflutningsvörur aftur út-
gengilegri.
í Japanverðuru.þ.b.3,5% minnkun
á hagvexti, en 1982 hefur hann
sennilega aftur aukizt um 4%. Sér-
fræðinga OECD greinir á um
framtíðarhorfur Bandaríkjanna.
Ágreiningur þessi stafar af óvissu um
áhrif efnahagsstefnu Reaganstjórn-
arinnar.
Skýrslan spáir að gróði olíufram-
leiðslulandanna innan OPEC minnki
um tæplega 10 milli áranna 1980 og
1981. Svipaðri þróun má búast við á
árinu 1982 og verður ágóði OPEC
landanna þá kominn niður í „aöeins”
rúmlega400milljarða króna.
Bflbeltin
hafa bjargað
||U^IFERÐAR