Dagblaðið - 01.09.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Angóla:
USA beitir
neitunarvaldi
USA beitti neitunarvaldi gegn sam-
þykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna sem fordæmdi S-Afríku fyrir inn-
rás i Angóla. Frakkland greiddi at-
kvæði með tillögunni, Bretland sat hjá.
Fréttastofan Angop í Angóla til-
kynnti í gær að s-afrískar hersveitir
hefðu hertekið héraðið Kunene í S-
Angóla nema borgina Cahma og sýndu
ekki á sér neitt fararsnið.
Varnarmálaráðherra S-Afríku,
Magnus Malan hershöfðingi, sagði
óhrekjandi sannanir fyrir veru
kúbanskra og rússneskra liðsforingja í
Angóla og afskipti Sovétmanna þar
spái ekki neinu góðu fyrir hinn frjálsa
heim.
LosAngeles:
Ábatasöm
meiðyrði
Kvikmyndaleikarinn Cary Grant og
hin brezka eiginkona hans, Barbara,
hafa lögsótt blaðið National Enquirer.
Heimta þau 10 milljónir dollara fyrir
ærumeiðandi skrif um hjónaband
þeirra.
Ákæran, sem nú liggur fyrir hjá
dómstólum í Los Angeles, segir að
ástæðan sé grein sem birtist í blaðinu
undir nafninu: „Það sem enginn vissi:
Ástæðan fyrir nýju hjónabandi Carys
Grants”.
Leikarinn heimtaði ýmis ummæli í
greininni borin til baka en árangurs-
laust. Grant, sem nú er 77 ára gamall,
kvæntist hinni þrítugu Barböru í apríl
sl.
Slíkt skaðabótamál er ekkert eins-
dæmi. Leikkonan Carol Burnett
stefndi sama blaði í marz sl. og fékk þá
helminginn af þeim skaðabótum sem
hún fór fram á eða 8 milljónir dollara.
Bamamorð
íBrezku Colombíu:
Níu lík fundin
Lögreglan í Vancouver sagði í gær að
hún hefði átta kærur í viðbót á
hendur morðingja sem handtekinn var í
síðustu viku í sambandi við fjöldamorð
á börnum í Brezku Colombíu á þessu
ári.
Lögreglan hefur ekki gefið upp nafn
mannsins, en fyrr í þessum mánuði var
41 árs gamall maður, Clifford Olson,
handtekinn fyrir morð á 14 ára stúlku.
Lík hennar var það 9. sem fundizt
hefur og fer nú fram geðrannsókn á
Olson.
Á sl. mánuðum hefur lögreglan
grafið upp lík sex stúlkna og þriggja
drengja á aldrinum 10—17 ára og hafa
líkin fundizt á ýmsum stöðum í SV-
hluta Brezku Colombíu. Lögreglan
leitar nú líka tveggja annarra stúlkna er
horfið hafa.
Pólland:
Sovézkir
grafreitir
eyðilagðir
Sextíu og sjö sovézkir grafreitir og
minnisvarðar hafa verið eyðilagðir í
Póllandi á liðnum mánuðum, að því er
hin opinbera pólska Pap-fréttastofa
skýrði frá um helgina.
Fréttastofan sagði að 24 menn
hefðu verið handteknir vegna þessara
skemmdarverka. Jaruzelski, forsætis-
ráðherra Póllands, sagði í ræðu sem
hann flutti á sunnudag að slík verk
væru móðgun við siðferðileg gildi
þjóðarinnar.
„Við aðvörum þá sem sá and-
sovézkum fræjum. Upp af þeim munu
vaxa viðbjóðslegir ávextir.”
Iran: trúarofstæki ogofbeldisverk:
Móðir fagnar af-
töku sonar síns
—á meðan útlagar í Pans bíða falls Khomeinis
Ayatollah Khomeini, trúarleiðtogi
írana, átti nýlega fund með íranskri
móður sem sannaði rétttrúnað sinn
með því að fagna aftöku sonar síns.
Hann var dæmdur til dauða fyrir
„vinstrisinnaða neðanjarðarstarf-
semi”.
Samkvæmt útvarpsfréttum í
Teheran notaði Khomeini tækifærið
til að hvetja alla íranska foreldra til
að fylgja dæmi þessarar heitttrúuðu
móður.
íranska sjónvarpið hefur marg-
endurtekið sjónvarpsmynd sem sýnir
síðasta fund móður og sonar sem fór
fram í klefa sonarins nokkrum
mínútum fyrir aftökuna.
— Ég þakkaði guði fyrir að það
skyldi takast að handtaka þig, sagði
hún við soninn sem grét og sýndi ein-
læga iðrun. — Nú er of seint að
iðrast og ekkert getur forðað þér frá
aftöku.
Bæði trúar- og stjórnmálaleiðtogar
í íran hafa lýst yfir ánægju sinni með
þessi viðbrögð móðurinnar.
Meðal íranskra andófsmanna í
París ríkir aftur á móti mikil ánægja
með síðustu ofbeldisverkin í íran er
forseti landsins og forsætisráðherra
létu lífið. í gær óskaði skæruliða-
foringinn Massoud Rajavi tilræðis-
mönnunum til hamingju með vel
unnið verk og taldi það eðlilegar
afleiðingar hryðjuverkastjórnar-
innar.
Khomeini: Ilvetur alla til að fylgja
fordæmi móðurinnar.
Frá útför Ayatollah Behesti og annarra þeirra sem létu Iffið I sprengingunni sem
varð i höfuðstöðvum tslamska lýðveldisflokksins. Þá létust alls 72 menn, margir
af valdamestu mönnum trans. Um helgina var svo enn á ný höggvið skarð f raðir
byltingarstjórnarinnar er forseti landsins og forsætisráðherra fórust i sprengingu
sem varð f skrifstofu forsætisráðherrans.
Bankarán er oftast bundið ofbeldi en Daninn var sýnu útsmognan en þessi félagi hans
á myndinni.
Heilastarfsemi
í stað ofbeldis
—Ég er stunginn af til útlanda með
2,1 milljón króna. Ég fór þannig að að
ég yfirfærði þessa peninga á annan
danskan banka sem sendi þá svo áfram
á bankareikning minn erlendis. Mér
finnst nú að þið ættuð að vita þetta til
að fórða öðrum veikgeðja sálum frá
sams konar freistni.
Stjórn Andelsbanken í Kaup-
mannahöfn trúði vart eigin augum er
meðlimir hennar opnuðu þetta bréf frá
sínum trúa og dygga útibússtjóra í
Glostrup. En því miður varð endur-
skoðunardeild bankans að staðfesta
þessar óheppilegu fréttir. Hvorki hefur
sézt tangur né tetur af útibússtjóranum
eða fjölskyldu hans og er hann nú eftir-
lýstur af Interpol.
Friðarhreifingar undir
áhrifum kommúnista
— Schmidt kanslari segist tregur til að taka f riðarsamtökin alvarlega vegna
tengsla þeirra við kommúnista
' Helmut Schmidt, kanslari V-
Þýzkalands, sagði um helgina að
krafan um að V-Þjóðverjar höfnuðu
þeirri ákvörðun Atlantshafsbanda-
lagsins að endumýja kjarnorkueld-
fiaugar bandalagsins í Evrópu væri
fram komin vegna áhrifa frá samtök-
um er tengd væru kommúnistum.
Hann sagði í sjónvarpsviðtali að
hin svokallaða „Krefeld hvatning”
sem um 1,2 milljónir V-Þjóðverja
hafa undirritað væri komin frá
Þýzku friðarsamtökunum, DFU.
„Þetta er ein af þeim hreyfingum
sem eru undir sterkum áhrifum frá
kommúnistum og eru alltaf að skjóta
upp kollinum,” sagði hann.
„Mjög margir þeirra sem eru í
þessum friðarsamtökum eru einnig í
Kommúnistaflokknum,” bætti
Schmidt við. „Ég er því ákaflega
tregur til að taka þessi samtök (DFU)
of alvarlega.”
Hann sagði að „Kefeld-hvatn-
ingin” væri andstæð stefnu v-þýzku
stjórnarinnar og Atlantshafsbanda-
lagsins en þar væri ekki að finna eitt
einasta gagnrýnisorð gegn stefnu
Sovétríkjanna. Hreyfing þessi væri
því mjög fyrir smekk Sovétríkjanna.
Helmut Schmidt hafði nýverið lýst
því yfir að V-Þjóðverjar væru tilbún-
ir að taka við nifteindasprengjum
jafnvel þótt Reagan-stjórnin hafi enn
ekki farið fram á það við þennan
evrópska bandamann sinn í Nató.
Schmidt setti þó þrjú skilyrði fyrir
staðsetningu nifteindasprengju í
Vestur-Þýzkalandi. í fyrsta lagi
verður Natófundur að taka ákvörðun
um málið, í öðru lagi verða önnur
Evrópulönd innan Nató einnig að
samþykkja viðtöku og í þriðja lagi
kemur slíkt því aðeins til greina að
ekki náist samkomulag á væntanlegri
afvopnunarráðstefnu.
Þessi afstaða Schmidts á þó litlu
fylgi að fagna á meðal flokksbræðra
hans í Sósíademókrataflokknum og
talið er nær vonlaust að stefna
Schmidts í málinu fái meirihluta-
stuðningi á væntanlegu flokksþingi í
aprílánæstaári.
Helmut Schmidt.