Dagblaðið - 01.09.1981, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1981.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
Enska, þýzka, franska, spánska
Norðurlandamálin. íslenzka fyrir útlendinga.
Áherzla er lögð á létt og skemmtileg samtöl i kennslustundum.
Samtölin fara fram á þvi máli sem nemandinn er að læra, svo að
hann æfist i talmáli allt frá byrjun.
Siðdegistimar — kvöldtímar.
Mimír, Brautarholti 4 — sími 10004 (kl. 1—5e.h.)
Einkarjtaraskólinn
• Veitir nýliðum starfsþjálfun og öryggi.
• endurhæf ir húsmæður til starf a á skrif stof um
• stuðlar að betri afköstum, hraðari afgreiðslu
• sparar yfirmönnum vinnu við að kenna nýliðum
• tryggir vinnuveitondum hæfari starfskrafta
• tryggir nemendum hærri laun, betri starfsskilyrði
• sparar námskostnað og eriendan gjaldeyri.
Mimír, Brautarholti 4 — Sími 11109 (kl. 1—5e.h.)
Hellissandur
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni
á Hellissandi.
Uppi. hja umboðsmanni, sími93-6677
eða 91-27022.
mmiAÐw
AUGLÝSING
um aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi
Reykjavfkur í septembermánuði 1981.
Þriðjudagur 1. sept. R—50501 til R—51000
Miðvikudagur 2. sept. R—51001 til R—51500
Fimmtudagur 3. sept. R—51501 til R—52000
Föstudagur 4. sept. R—52001 til R—52500
Mánudagur 7. sept. R—52501 til R—53000
Þriðjudagur 8. sept. R—53001 til R—53500
Miðvikudagur 9. sept. R—53501 tii R—54000
Fimmtudagur 10. sept. R—54001 til R—54500
Föstudagur 11. sept. R—54501 til R—55000
Mánudagur 14. sept. R—55001 til R—55500
Þriðjudagur 15. sept. R—55501 til R—56000
Miðvikudagur 16. sept. R—56001 til R—56500
Fimmtudagur. 17. sept. R—56501 til R—57000
Föstudagur 18. sept. R—57001 til R—57500
Mánudagur 21. sept. R—57501 til R—58000
Þriðjudagur 22. sept. R—58001 til R—58500
Miðvikudagur 23. sept. R—58501 til 59000
Fimmtudagur 24. sept. R—59001 til R—59500
Föstudagur 25. sept. R—59501 til R—60000
Mánudagur 28. sept. R—60001 til R—60500
Þriðjudagur 29. sept. R—60501 til R—61000
Miðvikudagur 30. sept. R—61001 til R—61500
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til
Bifreiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8 og verður skoðun
framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00—16:00.
Festivagnar, tengivagnar, og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiða-
skattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í
gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningarnúmer skulu vera
vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir í leigu-
bifreiðum, sem sýna rétt ökugjald á hverjum tíma. Á
leigubifreiðum til mannflutninga, allt að 8 farþegum, skal
vera sérstakt merki með bókstafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum samkvæmt
umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til
hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
28. ágúst 1981.
Samningar að nást milli Reykjavíkurborgar og
húsfélagsins í Asparfelli um barnaheimilið Ösp:
„Vonast til að bama-
heimilið geti opnað
aftur 1. október"
— segir Sveinp Ragnarsson f élagsmálast jóri—vantar
aðeins samþykki húsfélagsins og er talið að það náist
„Við höfum fengið samningsdrög
frá hússtjórn og þau voru einróma
samþykkt í félagsmálaráði. Borgar-
ráð hafði áður gefið heimild sína.
Húsfélagið á eftir að samþykkja fyrir
sitt leyti og ef það samkomulag næst
ætti að vera hægt að opna barna-
heimilið aftur ekki seinna en 1.
október,” sagði Sveinn Ragnarsson
félagsmálastjóri, er hann var inntur
eftir samningum Reykjavíkurborgar
og húsfélagsins í Asparfelli um
rekstur barnaheimilisins Aspar.
Barnaheimilið ösp hefur nú verið
lokað frá 1. maí sl. en þar voru 60
börn í gæzlu. Húsfélagið að Aspar-
felli rak áður barnaheimilið með
styrk frá Reykjavíkurborg. Er fóstrur
heimilisins fóru fram á launahækkun
um leið og fóstrur sem starfa hjá
borginni náðist ekki samkomulag við
húsfélagið. Fóstrurnar létu af
störfum og deilur risu í húsfélaginu
um áframhaldandi starfsemi.
Á aðalfundi húsfélagsins í maí var
samþykkt að leita eftir samningum
við Reykjavíkurborg, þannig að hún
yfírtæki reksturinn alveg með þeim
skilyrðum að greidd yrði uppsett
leiga fyrir húsnæðið og forgangs-
pláss, fyrir börn í Asparfelli, héldu
sér.
„Stjórnin sem sjá átti um
samninga gerði lítið í málunum og að
lokum var ég kallaður til og ákveðið
var að flýta málinu,” sagði Gisli
Karel Halldórsson íbúi í Asparfelli en
hann er einn hvatamanna þess að
barnaheimilið verði opnað aftur.
„Samkomulag náðist um það við
borgina að þeir greiddu uppsetta
leigu og að forgangsfjöldi barna yrði
6 í stað 7, sem við fórum fram á.
Stjórnarfundur verður um þetta mál
hjá okkur í kvöld og þá verður í
framhaldi af þvi boðað til almenns
fundar. Ég á von á því að samþykki
náist enda er þetta það eina sem
kemur til greina,” sagði Gísli Karel.
Þó nokkrar kvartanir hafa borizt
til félagsmálastofnunarinnar vegna
lokunar barnaheimilisins, enda
veldur það margvíslegum erfiðleikum
þegar 60 börn skyndilega missa dag-
heimilispláss.
- ELA
Samtök aldraðra kanna at
vinnuþörf ellilífeyrisþega
„Samtök aldraðra juku starfsemi
sína verulega á þessu ári með þvi að
opnuð var skrifstofa, eins konar þjón-
ustumiðstöð,” sagði Sigurður Gunn-
arsson fyrrverandi skólastjóri í samtali
við DB. Hann er ritari Samtaka
aldraðra.
„Þessi þjónustumiðstöð, sem áður
var til húsa á Skólavörðustíg, er nú
flutt að Laugavegi 103, 4. hæð, í hús
Brunabótafélags íslands. Er þetta
ákjósanlegur staður, aðeins fáein skref
frá umferðarmiðstöðinni á Hlemmi.
Taka má fram að lyfta er í húsinu,”
sagði Sigurður.
„Eitt af þeim þjónustustörfum sem
við höfum rætt um í bréfum til félags-
manna er aðstoð við þá sem óska eftir
og hafa heilsu til að sinna hlutadags-
störfum. Á það ekki aðeins við félags-
menn. Tiltölulega fáir hafa gefið sig
fram enn sem komið er, og vill stjórn
samtakanna ítreka að þeir, sem hafa
áhuga á málinu, gefi sig fram sem allra
fyrst. Síminn á skrifstofunni hjá okkur
er 26410.
Við óskum jafnframt eftir því að
allir ellilífeyrisþegar á Reykjavíkur-
svæðinu sem kynnu að óska eftir hluta-
starfi láti okkur heyra í sér sem fyrst.
Með þessu er verið að kanna hver er
raunveruleg staða þessa máls á Reykja-
víkursvæðinu og verður síðan tekin
ákvörðun um hvað eigi að gera í
málinu,” sagði Sigurður Gunnarsson.
Samtök aldraðra voru stofnuð fyrir
sjö árum og eru fyrst og fremst bygg-
ingarfélag aldraðra. Samtökin fengu
úthlutað lóðum við Akraland í Foss-
vogi fyrir fjórtán íbúðir. íbúðirnar
verða i þremur tveggja hæða húsum og
er gert ráð fyrir föndurherbergjum í
kjallara húsanna. Reiknað er með að
framkvæmdir hefjist nú í haust.
Formaður Samtaka aldraðra er Hans
Jörgensen fyrrverandi skólastjóri.
- A.Bj.
Fólk er yfirleitt enn ! fullu fjöri í dag þegar það lætur af störfum „fyrir aldurs sakir”.
Margir vilja þá gjarnan fá einhver létt störf sem þeir eiga auðveit með að leysa af
hendi. Aðrir kjósa heldur að „gera ekki neitt” eða hreinlega hvíla sig eftir langan
vinnudag. Þessir öldnu heiðursmenn njóta Ufsins á Lækjartorgi.
DB-mynd Gunnar Örn.
Skurðgrafa gerði hálft Snæ-
fellsnes símasambandslaust
íbúar norðantil á Snæfellsnesi,
vestan Grundarfjarðar, voru síma-
sambandslausir frá fimmtudags-
kvöldi og fram á miðjan föstudag i
síðastliðinni viku. Þvi olli skurðgrafa
sem sleit símastreng er verið var að
vinna að gatnageröarframkvæmdum
íGrundarfirði.
AUir sveitabæir vestan Grundar-
fjarðar svo og þéttbýlisstaðirnir
Ólafsvík, Rif og Hellissandur misstu
símasamband við aðra landshluta um
níuleytið á fimmtudagskvöld. Komst
mest allt svæðið í símasamband á ný
um tvöleytið daginn eftir en fulln-
aðarviðgerð lauk ekki fyrr en um
kvöldiðsamadag.
- KMU / BC, Grundarfirði.
Sekt greidd vegna íslendingsins í Marokkó:
Máiið í höndum tóbaksyfirvalda
Yfirvöld í Marokkó hafa nú fengið
greidda sekt þá sem íslendingurinn,
sem undanfarnar vikur hefur setið í
fangelsi þar í landi, var dæmdur í.
Hafa þarlend fangelsisyfirvöld verið
látin vita að sektin sé greidd.
Enn vantar þó grænt ljós frá því
stjórnvaldi sem fjallar um tóbaksmál í
Marokkó. Þarlend lög kveða svo á að
samþykki þess þurfi 1 málum sem þess-
um. Fáist það samþykki eru taldar
góðar líkur á því að íslendingurinn
ungi losni úr fangelsinu, að sögn
Gunnars Snorra Gunnarssonar í utan-
ríkisráðuneytinu. -KMU