Dagblaðið - 01.09.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1981.
9
Sótthreinsun veiðibúnaðar sem kemur erlendis f rá:
10 DOLLARA GJALD A STONGI
KEFLAVÍK EN FRÍTT ANNARS STAÐAR
Af öllum þeim þúsundum ferðalanga
sem hingað leggja leið sína árlega eru
það þó nokkur hundruð — ef ekki
meira — sem hafa veiðistöng eða veiði-
stangir með sér. Margir þessara veiði-
manna vita að hér verður veiðibúnaður
að fara í sótthreinsun. Sumir koma
með tæki sín sótthreinsuð og í ýmsum
tilvikum — aðallega ef komið er frá
Bandaríkjunum — koma menn með
búnaðinn innsiglaðan eftir sótthreinsun
þar.
Það hefur þó vakið athygli íslend-
inga sem á móti erlendum veiðimönn-
um taka að það eru aðeins farþegar
sem til Keflavíkurflugvallar eða
Reykjavíkurflugvallar koma sem verða
að greiða fyrir sótthreinsunina. Þar er
tekið 10 dala gjald af hverri stöng. Sér-
stakir menn standa í þessu frá ráðu-
neytinu, en tollverðir koma þar hvergi
nærri. Aðeins í Keflavík er talað um
„halla eða tap” á sótthreinsunarþjón-
ustu.
Á öðrum stöðum er á móti ferða-
mönnum taka er sótthreinsun veiði-
búnaðar ókeypis. Þessi mismunur og
óvenjuhátt gjald í Keflavík getur e.t.v.
stuðlað að því að menn reyni að smygla
búnaði sínum inn í landið og losna við
gjaldið. Rætt var við ýmsa um þessi
mál:
„Ákvæðin um sótthreinsun veiði-
áhalda og búnaðar veiðimanna, sem
notaður hefur verið í erlendum ám,
áður en hann er síðan notaður í ám hér
á landi eru frá 27. maí 1971,” sagði
Einar Hannesson fulltrúi hjá Veiði-
málastofnuninni.
Sagði Einar að sótthreinsa ætti m.a.
stengur, línur, hjól, flugur, lúrur,
spóna og ýmsar aðrar gervibeitur, svo
Skrifstofustjóri landbúnaðarráðuneytisins er
Verktaki við sótt-
hreinsun veiðistanga
— og þrátt fyrir tíu dala greiðslu á stöng er vaxandi „tap” ríkissjóð
á hreinsuninni
„Það er sjálfur skrifstofustjórinn í
landbúnaðarráðuneytinu sem um sótt-
hreinsun veiðibúnaðar sér hér,” sagði
Tollgæzlan á Keflavíkurflugvelli i
viðtali við DB. „Hann sér alfarið um
þessi mál, tollverðir sjá aðeins um að
ósótthreinsaður búnaður fari ekki í
gegnum tollhlið.”
„Jú, það er tekið gjald fyrir þetta,”
sagði Haukur Jörundsson skrifstofu-
stjóri ráðuneytisins. „Gjaldið er 10
dollarar á stöng og þá er innifalin sótt-
hreinsun á vöðlum, bússum, hjólum og
línum. Svo erum við nú rýmilegir t.d.
ef krakkar hafa veiðiprik með sér. Þá
tökum við 3 dollara fyrir sótthreinsun-
ina. Við tökum líka 3 dollara í svonefnt
stimpilgjald ef menn koma með vott-
orð um sótthreinsaðan búnað. Þá felst
verkið í því að ganga úr skugga um að
sótthreinsun tækjanna hafi farið fram
eftir notkun erlendis og fyrir innflutn-
ing hér,” sagði skrifstofustjóri ráðu-
neytisins.
„Þetta gjald rennur upp í kostnað
við sótthreinsunina. Lengi vel stóð
þetta undir kostnaði því þá tóku þeir
menn sem sjá um að þrífa flugvélarnar
sótthreinsunina að sér. Síðar neituðu
þeir að sinna verkinu, því það var svo
umsvifalítið. Eigi að síður er skyldan
fyrir hendi og eftirlitið af fisksjúk-
dómanefnd. Ég tók þetta því að mér,
hef pilt til verksins aðra hvora helgi, en
vinn sjálfur á móti honum. Þetta hefur
verið mjög erfitt í sumar vegna þess hve
komutímar flugvéla hafa ruglazt,”
sagði Haukur. Hann kvaðst „eiga
græjur” til sótthreinsunar heima hjá
sér, því stundum þarf að afgreiða sótt-
hreinsunarmál á Reykjavíkurflugvelli.
„Græjurnar felast í baðkeri sem
stöngum er stungið í svo og öðrum
veiðibúnaði. Sótthreinsiefnið er joð-
samband. Það tók við af formalín-
blöndu sem áður var notuð en veiði-
menn kvörtuðu yflr vegna óþefs af
stöngunum á eftir,” sagði Haukur.
Haukur sagði að sótthreinsunin á
Keflavíkurflugvelli væri rekin „með
tapi sem fer stöðugt vaxandi”. Hann
taldi að 450—500 stengur kæmu til
sótthreinsunar yfir sumarið á Kefla-
víkur- og Reykjavíkurflugvöllum.
Hann upplýsti að lokum að ráðu-
neytið sæi t.d. embættinu á Seyðisfirði
fyrir sótthreinsiefni án endurgjalds.
- A.St.
Allur veiðibúnaður er til landsins kemur, hvort sem er i eigu fslendinga eða útlend-
inga, verður að sótthreinsast. Á það við um stengur, Unur, hjól, flugur, gervibeitur,
rotara jafnt sem stigvél og vöðlur. En hvi skyldi það kosta 10 dali á stöng i Keflavík en
ekkert annars staðar?
Seyðisfjörður:
Ferðamenn sótthreinsa sjálfir
— í sérstökum kerjum Tollstöðvarinnar en þurfa ekki að greiða gjald
„Tollgæzlumenn á Seyðisfirði eru
vel á verði gagnvart innflutningi veiði-
stanga og veiðibúnaðar og ganga eftir
því að viðkomandi „innflytjandi” sótt-
hreinsi sinn búnað,” sagði Sveinbjörn
Sveinbjörnsson fuUtrúi sýslumannsins
á Seyðisfirði.
Hann tjáði okkur eftir að hafa rætt
við tollverði um framkvæmd málsins
að sá háttur væri á hafður, að ker með
sótthreinsivökva væri á aðgengilegum
stað í tollstöðinni á Seyðisfírði. Hver sá
farþegi Smyrils sem sæist ganga með
veiðistöng í land eða annan veiðibúnað
væri beðinn að sótthreinsa hann sjálfur
í kerinu. Ef búnaður sæist i bif-
reiðum, væri umsjónarmaður bifreiðar
látinn sótthreinsa búnaðinn. Toll-
vörður fylgist með meðan sótthreinsun
fer fram.
Sveinbjörn kvaðst ekki vita til þess
að nokkurn tíma hefði verið tekið gjald
fyrir sótthreinsunina, þó slíkt væri
heimilt.
Líklegt er talið að tollstöðin á Seyðis-
firði sé nú allt eins stór varðandi ferða-
menn sem með veiðistangir koma til
landsins, og sjálfur Keflavíkurflugvöll-
ur.
- A.St.
K0STAR EKKERT HJA
TOLLGÆZLU í REYKJAVÍK
„Það er mjög lítið um það að veiði-
búnaður komi til afgreiðslu hjá okkur
en í hvert sinn sem svo er fer hann í
sótthreinsun,” sagði Sverrir Lúthers-
son, tollvörður í farangursafgreiðslu
Tollgæzlunnar við Reykjavíkurhöfn.
„Hér í farangursafgreiðslunni eru
fyrir hendi þau áhöld sem til þarf. Við
höfum dunk til að dýfa veiðistöngum í.
í þessum dunki eru þær kaffærðar, svo
og veiðibúnaður sem kveðið er á um að
sótthreinsa skuli. Stígvél eru strokin
með klút vættum sótthreinsivökva,”
sagði Sverrir.
, ,Ég veit ekki til þess að fyrir þetta sé
tekið sérstakt gjald,” sagði Sverrir.
Hann ítrekaði að mjög lítið væri um
svona varning þarna við Reykjavíkur-
höfn. Aðalmagnið hlyti að vera hjá
flugfarþegum á Keflavíkurflugvelli.
- A.St.
og háfa og rotara. Þá skal og sótt-
hreinsa stígvél og vöðlur.
Samkvæmt upphaflegumákvæðum á
að sótthreinsa áðurgreinda hluti upp úr
2% formalínblöndu. Þess var jafn-
framt getið í fyrstu auglýsingu um sótt-
hreinsun veiðiáhalda við komu til
landsins að tekin væru gild vottorð um
sótthreinsun þeirra erlendis.
Við spurðum Einar um ákvæði um
sótthreinsunargjald, en hann kvaðst
ekki vita hvert.<aó gjald væri en benti á
skrifstofustjóra landbúnaðarráðuneyt-
is til upplýsinga hér og fisksjúkdóma-
nefnd.
- A.St.
Óska eftir smiðum f
MÓTAUPPSLÁTT
Uppl. í síma 86940 á daginn og í síma 71118 á
kvöldin.
Tilsö/u
Subaru pickup
árg. '78,4*.4,
mjög vel með farinn.
Upplýsingar i síma
92-2169.
SKYNDIHJÁLP
NÁMSKEIÐII
Rauði kross íslands efnir til kennaranámskeiðs í
skyndihjálp dagana 4/11 til 14/11 nk. í kennslu-
sal RKÍ, Nóatúni 21 Rvík.
Einnig verður farið í aukna skyndihjálp og
hjartahnoð.
Æskilegur undirbúningur: Skyndihjálparnám-
skeið.
Þátttökugjald kr. 600,- Umsóknarfrestur er til
10. september.
Tekið verður á móti umsóknum í síma 91-26722,
þar sem einnig verða veittar nánari upplýsingar.
Rauði kross íslands.
# 5H0'H)ttAW
H
%
«
€
Byrjendanámskeið hjá
KARATEDEILD GERPLU
Byrjendanámskeið hefst hjá nýstofnaðri
karatedeild Gerplu þann 7. sept. nk.
Kennsla fer fram í nýjum sal íþróttahúss Gerplu við
Skemmuveg Kópavogi (rétt við Breiðholtsbraut).
Innritun og upplýsingar í simum 22225 og
40516 eftir kl. 19.00.
Hentug aðstaða miðsvæðis Breiðholts og Kópavogs.
KARATEDEILD GERPLU