Dagblaðið - 01.09.1981, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1981.
fi
Úftvarp
23
Sjónvarp
Gamla konan í Ovæntum endalokum virðist vera gleymin og utan við sig en ekki er
ailt sem sýnist. Endirinn verður mjög óvæntur.
ÞJÓDSKÖRUNGAR 20STU ALDAR - sjónvarp kl. 20,45:
) C M I I DI &jf ~ mesti leiðtogi ísraels
DLN-UUIflUn áeftirMoses
Þátturinn Þjóðskörungar 20stu ald-
ar verður að þessu sinni um Ben Gurion
sem varð fyrsti forsætisráðherra
ísraels. Hann var fæddur í Plonsk i
Póllandi árið 1886. Frá fyrstu tíð fylgdi
hann af heilum hug þjóðræknisstefnu
gyðinga. Árið 1906 fluttist hann til
Palestínu og vann þar á bóndabæjum.
Seinna var hann þó rekinn úr landi
vegna pólitískra skoðana og gerðist
hann þá einn af stofnendum gyðinga-
bandalags í Bandaríkjunum sem vann
gegn Tyrklandi.
1930 varð hann foringi Mapai
verkamannaflokksins sem ríkti í ísrael.
David Ben-Gurion hefur síðan verið
nefndur mesti leiðtogi ísraels á eftir
Moses. -LKM.
Ben Gurion varð fyrsti forsætis-
ráðherra ísraels, en var fæddur i Pól-
landi.
ANDLEG
UMMYNDUN
—sjónvarp
kl. 21,45:
Námskeið
til að losna
við streitu
nútíma lifn-
ÓVÆNT ENDALOK - sjónvarp kl. 21,15:
aðarhátta
VITAHRINGUR
—af brotapiltur og gömul kona. Ekki
erallt sem sýnist
Ungur piltur sem hefur lent á
glapstigum og framið ýmis smáafbrot
kemur að húsi gamaliar konu. Fyrir
tilviljun uppgötvar hún að hann er að
brjótast inn í húsið. Hann verður þá
fyrir því slysi að detta í stiganum og
hlýtur af því lítil meiðsli. Konan tekur
hann inn til sín og hjúkrar honum.
Hjálparstarfið nær þó lengra því hún
fer einnig að reyna að tala um fyrir
þessum unga afbrotapilti og hvetur
hann til að snúa af villu síns vegar.
Fer þá ýmislegt annað að koma í
ljós þvi ekki er hreint mjöl í pokanum
og aðrir viðriðnir. Kerla þykist nú hafa
fengið piltinn til að snúa á rétta braut,
en hún virðist vera nokkuð gleymin og
utan við sig. En hún er ekki öll sem
sýnist og óhætt er að segja að endir inn
komi mjög á óvart enda er þátturinn
ekki kallaður Óvænt endalok fyrir ekki
neitt. -LKM.
Nú, á hinum síðustu og verstu
tímum þegar mennirnir eru hér um bil
orðnir streitu að bráð, hafa hvers
konar félög sprottið upp sem reyna að
losa menn eða hjálpa að einhverju leyti
að ná tökum á þessum menningarsjúk-
dómi. Og ekki veitir af, þegar allir eru
að farast úr streitu.
í kvöld verður brezk fræðslumynd
frá BBC á skerminum sem fjallar um
ein slík samtök. Myndin fjallar um hóp
fólks sem sækir námskeið í andlegri
ummyndum i því skyni að losna við þá
streitu sem nútíma lifnaðarhættir
skapa. (Vónlaust, þeir ættu að losa sig
við nútíma lifnaðarhætti).
Samt reynir þessi hópur á þennan
veg að finna lífi sínu nýjan farveg og
kannski tekst honum það. Þýðandi er
Jón O. Edwald.
LKM.
Að troöast upp I hlaðinn strætisvagn veldur oft streitu og jafnvel að biða eftlr strætisvögnum. t hraða nútima þjóðfélags þjást
flestir af streitu sem siðan leiðir oft til hvers kyns sjúkdóma og veldur jafnvel dauðsföllum. Streita er einn stór þáttur af
svokölluðum menningarsjúkdómum.
Ný sjónvarpsleikrit
A fundi leiklistarstjóra norrænu
sjónvarpsstöðvanna sem haldinn var
í Reykjavik dagana 25.-27. ágúst
voru m.a. boðin fram til skipta nýleg
leikrit.
Af hálfu Lista- og skemmtideildar
Sjónvarpsins var sýnt leikritið Kusk á
hvitflibbann eftir Davíð Oddsson en
það var tekið upp í júní undir stjórn
Andrésar Indriðasonar og verður á
dagskrá í desember.
Óskað var eftir verkinu til
sjónvarpsflutnings í Noregi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Finnlandi.
MAN EG ÞAÐ SEM LONGU LEIÐ
— útvarpkl. 20,30:
Þar festa menn ennþá yndi
—Vatnsdalur í Húnaþingi
Ragnheiður Viggósdóttir hefur séð með er komið nafnið á þættinum: Þar
um þáttinn Man ég það sem löngu leið festa menn ennþá yndi — Vatnsdalur í
hátt á annað ár. Þættinum er nú út- Húnaþingi.
varpað tvisvar sinnum á þriðjudögum, Einnig verður frásögn úr Skiða-
kl. 11.00og kl. 20.30. stafaskriðunni sem er gömul lesbók
í dag verður Ragnheiður með ýmiss fyrir börn og unglinga. Svo verður lesið
konar samtíning sem hún hefur fengið úi minningum Ingunnar Jónsdóttur frá
á hinum mörgu ferðalögum sinum. Korrsá og smákafli úr bókinni Ágúst á
Verður m.a. lesið úr Vatnsdælu og þar Hof: ætur flest flakka. -LKM.
Myndin er tekin úr Vatnsdalshólum, sem er vfðáttumikil og sérkennileg hólaþyrping
fyrir botni Vatnsdals og girðir dalinn þveran.