Dagblaðið - 01.09.1981, Blaðsíða 24
„Væntanlega em ein at-
lagan að náni mamorði”
—segir félagsmálaráðherra, Svavar Gestssonum ásakanir vegna „óeðlilegrar
þöknunar” til matsmanna íbúða íverkamannabústöðum
„Mér er skylt að ráða matsmenn
íbúða verkamannabústaða sam-
kvæmt lögum og þeir eru því á
ábyrgð félagsmálaráðuneytisins,”
sagði Svavar Gestsson ráðherra við
DB i morgun., ,Ég get i raun ekki séð
neitt athugavert við það að annar
matsmannanna sé tengdur aðstoðar-
ráðherra minum. Það er harla erfitt að
finna mann hér á landi, sem á einn
eða annan hátt tengist ekki einhverj-
um öðrum,” bætti hann við.
Athygli hefur vakið að þóknun til
áðumefndra matsmanna nemur
umtalsverðum upphæðum og þá;
þykir það ekki síður eftirtektarvert
að annar tveggja matsmannanna er
faðir aðstoðarmanns félagsmálaráð-
herra, Arnmundar Bachmann. Mats-
menn fá i sinn hlut sem nemur hálfu
prósenti endursöluverðs ibúða
þannig að hér er um stórupphæðir að
ræða.
Alþýðublaðið greinir frá því í frétt
i morgun að i hlut hvors matsmanns
um sig hafi komið þvi sem næst 17,5
milljónir gkróna á sl. ári. DB bar
þetta undir ráðherra í morgun.
„Ég myndi taka þessum útreikn-
ingum blaðsins með fyrirvara,” sagði
Svavar. „Ég hef reyndar ekki haft
tima til að kynna mér þetta neitt
nánar en ekki kæmi á óvart þótt hér
væri á ferðinni enn ein atlagan að
mínu mannorði úr þessari átt.”
-SSv.
Kærður fyrir nauðgunar-
tilraun tværnæturí röð
önnur tilraunin tókst, hin var stöðvuð
Tuttugu og þriggja ára gamall út-
lendingur, Marokkóbúi, að þvi DB
veit bezt, var í gær til yfirheyrslu hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins vegna
meintrar tilraunar til að nauðga 17
ára stúlku í fyrrinótt.
Atburðurinn átti sér stað neðst við
Vesturgötu. Höfðu stúlkan og út-
lendingurinn verið þar saman í húsi,
gengið út á tröppur og þaðan mun
útlendingurinn hafa dregið stúlkuna
afsiðis og gert tilraun til nauðgunar.
Stúlkan gat æpt svo nágrannar
heyrðu. Lögreglan var kölluð til og
maðurinn stöðvaður. Sat maðurinn í
gæzlu lögreglunnar þar til í gær-
morgun.
Nóttina þar á undan, aðfaranótt
sunnudags hafði önnur stúlka kært
sama mann fyrir nauðgun. Gerðist sá
atburður i grennd við Hallærisplan-
ið. Kom maðurinn stúlkunni afsíðis
og tókst með valdi að komast yfir
hana.
StúUcan kærði tU lögreglunnar.
Gekk mál hennar til rannsóknar-
lögreglunnar i gærmorgun. Þar mun
hún hafa dregið kæruna til baka af
ótta við allt það umstang, yfirheyrsl-
ur og skýislugerðir semsamfara eru
slfkum kærum. Hún hafði þó verið
viss um, hver maðurinn var sem
glæpinn framdi og að honum tókst
að ná fram vilja sinum.
1 morgun var enginn viðstaddur
eða viðlátinn hjá rannsóknarlögregl-
unni sem gefið gat upplýsingar um
þetta mál né framgang síðari kær-
unnar á hendur sama útlendingnum á
rúmlega sólarhring. -A.St.
Geirsmenn styrktu
mjög stöðu sína
á þingi SUS
um helgina:
Aðeins
fjórir and-
stæðingar
Geirs
eftir í
stjórn SUS
Stuðningsmenn Geirs Hallgrims-
sonar, form. Sjálfstæðisflokksins
styrktu mjög stöðu sína innan
Sambands ungra sjálfstæðismanna i
kosningum til stjómar sambandsins
sem fóm fram á þingi SUS á Isafirði
um helgina. Aðeins fjórir eru nú eftir
i stjórninni af 22, er hafa lýst því
yfir að þeir telji að Geir eigi að láta af
formennsku í flokknum til að forða
honum frá frekari sundrungu.
Þessir fjórir eru Kjartan Rafnsson
tæknifræðingur, Reykjanesi, Gústaf
Níelsson sagnfræðinemi, Reykjavík,
og Sunnlendingarnir Ólafur Helgi
Kjartansson lögfræðingur og
Magnús Kristinsson útgerðarmaður.
í stjórn SUS á sæti 21 maður auk
formanns, sem nú var kjörinn Geir
H. Haarde, mikill stuðningsmaður
Geirs. Kosið er til stjórnarinnar eftir
kjördæmum og i Reykjavík tókst
stuðningsmönnum Geirs að fella
Björn Hermannsson flugvirkja, en
hann hafði mælt með þvi að Geir viki
úr formennsku flokksins.
Á þinginu var hins vegar ekki
ágreiningur um það að gagnrýna setu
hiuta Sjálfstæðisflokksins i ríkis-
stjórn og töldu sjálfstæðismenn sem
DB hafði samband viö í morgun að
þeir sem væru andsnúnir þvi að Geir
yrði áfram formaður fiokksins væru
hins vegar eindregnir andstæðingar
þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr viö
völd.
-SA.
LEIKHÚSFÓLKIÐ AÐ
KOMA ÚR SUMARFRÍI
Leikhúsin eru nú að hefja vetrarstarf sitt. Starfsfólk Þjóöleikhússins mœtti í morgun til vinnu sinnar ú ný eftir sumarleyfi.
Leikhússtjórinn, Sveinn Einarsson, bauð fólki slnu afþvl tilefhi l morgunkoffi og var starfið framundan rœtt. Sýningar Þjóð-
leikhússins hefjast þann 25. september nk. meðfrumsýningu eldfjörugs gamanleiks., Hótel Paradís. Myndina tók Bjarnleifur
þegar menn voru að heilsast og koma sérfyrir með kaffibollana I Leikhúskjallaranum í morgun. -KMU.
irjálst, úháð dagblað
i ÞRIÐJUDAGUR1. SEPT. 1981.
Gæzluþyrian
í blindflugi frá
Hveravöllum
—fluttimann
þaðaiiilla
slasaðan
eftirbflveltu
| Þyrla Landhelgisgæzlunnar fór í
jgærkvöldi allerfitt sjúkraflug inn á
Hveravelli. Var nánast um blindflug að
ræða mikinn hluta leiðarinnar, en
flugið tókst vel og maður illa slasaður á
baki komst undir hendur lækna í
Reykjavík laust eftir miðnættið.
Hin alvarlegu meiðsl mannsins urðu
er blæjujeppi valt af vegi norðan við
Innri-Skúta, rúmlega 10 km norðan
vegar til Keriingarfjalla.
Sjúkrabill frá Selfossi var hálfan,
þriðja tíma á slysstað og kl. 19.25 bað
Selfosslögreglan um að þyrla sækti
hinn illa slasaða mann.
Gæzluvélin fór þegar af stað, komst
að Hveravöllum en ekki á slysstaðinn
vegna þoku og dimmviðris. Sjúkra-
bíllinn flutti manninn til Hveravalla.
Þar hóf þyrlan sig hátt á loft og flaug
nánast blindflug til Reykjavíkur.
Kona sem með manninum var i
jeppanum meiddist á hendi en ekki
alvarlega.
-A.St.
Blöðin hækka
' Frá og með 1. september hækkar
Dagblaðið sem hér segir: Áskriftarverð
á mánuði verður kr. 85, í lausasölu 6
krónur og grunnverð auglýsinga verður
51 krónapr. dálksentimetra.
Q
MjNgys
Q
IVIKU HVERRI
Vinningur vikunnar:
Tíugíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vinningur I þessari viku er 10
gira DBS eða Raleigh reiðhjól frú
Fúlkanum, Suðurlandsbraut 8 í
Reykjavlk.
/ vikunni verður birt, ú þessum
stað I blaðinu, spurning tengdsmú-
auglýsingum Dagblaðsins. Nafn
heppins úskrifanda verður slðan ,
birt daginn eftir I smúauglýsingun-
um og gefst honum tœkjfœri til að
svara spurningunni. Fylgizt vel
með, úskrjfendur. Fyrir nœstu
helgi verður einn ykkar glœsilegu
reiðhjóli ríkari
c ískalt
Seven up.
hressir betur.