Dagblaðið - 05.11.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1981.
ÞORÐAR PETURSSONAR
w o
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll, sími 14181
Laugavegi 95, sími 13570.
Fulltrúar verkalýðs og kirkju. Kirkjan hefur átt sterk ítök i verkalýðshreyflngunni og nú ætla þessi ðfl að ná samkomulagi
við hið kommúniska ríkisvald um lausn vandamálanna.
Pólland:
SOGULEGUR FUNDUR
FULLTRÚA KIRKJU,
RÍKIS OG VERKALÝÐS
— Jaruzelski, Walesa og Clemp erkibiskup vilja skapa þjóðareiningu
um lausn vandamálanna
Sögulegur fundur átti sér stað í gær
milli Lech Walesa, leiðtoga Einingar,
rómversk-kaþólska biskupsins Jozef
Clemp og Jaruzelski forsætisráðherra
Póllands. Á fundinum ræddu þeir um
að koma á þjóðareiningu um lausn
þeirra vandamála, sem Pólland hefur
átt við að etja síðastliðna 16 mánuði.
Fundur þessi á sér ekkert fordæmi i
36 ára sögu kommúnistastjórnar i
landinu. Hann hefur aukið mjög vonir
manna um að ríkisvaldið, óháðu verka-
lýðsfélögin og kirkjan geti lagt niður
deilur sinar og komizt að samkomulagi
um lausn vandamálanna án þess að
rikisvaldið þurfi að beita harðari
aðgerðum.
I yfirlýsingu sem gefin var út að
fundinum loknum segir að leiðtogarnir
hafi skipzt á skoðunum um
möguleikana á að mynda þjóðar-
einingu um lausn efnahags- og stjórn-
málalegra vandamála í landinu og um
að skapa vettvang fyrir stöðugum
viðræðum milli aðilanna á grundvelli
stjórnarskrár Póllands.
Tilvísun til stjórnarskrárinnar þykir
benda til þess að ekki eigi að hreyfa við
forræði kommúnistaflokksins yfir
ríkisstjórninni. Viðræðuaðilar lýstu því
yfir að fundinum loknum, en hann stóð
í tvær klukkustundir, að þeir væru
ánægðir með niðurstöðu hans. Lech
Walesa, sem yfirgaf þing Einingar í
Gdansk til að taka þátt í fundinum,
sagði að honum loknum að fleiri fundir
milli þeirra yrðu á næstunni.
En þrátt fyrir ánægju
Sovétnjósnari
afhjúpaður
Nýtt sovézkt njósnamál hefur nú undur, sem enn hefur ekki verið
komið í Ijós. í þetta sinn eru það
Danir sem eru þolendurnir. Öðrum
sendiráösritara í sovézka sendiráðinu
i Kaupmannahöfn hefur verið vísað
úr landi fyrir njósnir. Danska leyni-
þjónusta kom upp um hinn sovézka
njósnara fyrir nokkrum vikum en
það var ekki fyrr en t gær að danskir
fjölmiðlar komust 1 málið og þá stað-
festi Anker Jörgensen forsætisráð-
herra að sendiráðsritaranum hefði
verið vísað úr landi.
í gærkvöldi var danskur rithöf-
nafngreindur, ákærður um njósnir
og samstarf við sovézka sendiráðið í
Kaupmannahöfn, meðal annars við
þann sendiráðsritara sem vísað var úr
landi. Eiginkona rithöfundarins
hefur einnig verið ákærð fyrir sama
brot. Sovétmenn munu einkum hafa
ætlað rithöfundinum það hlutverk að
hafa áhrif á félaga sina innan rithöf-
undasambandsins í baráttunni fyrir
því að Norðurlönd verði yfirlýst
kjarnorkuvopnalaust svæði.
-GAJ. Lundi
viðræðuaðilanna með fundinn heyrð-
ust margar óánægjuraddir á þingi
Einingar. Einn þingfulltrúa sagði að
þegar ríkisstjórnin lýsti yfir ánægju
sinni með slíka fundi, þá þýddi það að
á þeim hefði ekkert gerzt. Annar með-
limur úr stjórn Einingar sagði að búizt
hefði verið við því að á fundinum hefði
samtökunum verið veittur réttur til að
hafa áhrif á ráðherraval, en svo hafi
ekki orðið.
í fjarveru Walesa voru undirbúin á
þingi Einingar drög að ályktun um
frestun allra verkfalla og um að taka
þess í stað upp samningaviðræður við
ríkisvaldið um kröfur samtakanna, sem
meðal annars eru um aukin áhrif
samtakanna á efnahagsmál og á stjórn
fjölmiðla.
Geimskoti
frestað
Ferð geimskutlunnar Kolumbíu sem
hefjast átti í gær var skyndilega frestað
um eina viku. Geimskutlan átti að fara
í aðra ferð sína út í geiminn og voru
aðallega rannsóknartæki innanborðs
að þessu sinni. En 31 sekúndu fyrir
brottför var hætt við að skjóta henni á
loft vegna bilunar sem kom fram í
vélum skutlunnar. Kom í ljós á síðustu
stundu að gleymzt hafði að skipta um
olíu frá síðustu ferð skutlunnar, en þá
flaug hún hátt á aðra milljón kíló-
metra.
8
REUTER
8
Reykt rúllupylsa.............kg verð 26,00 kr.
Hvalkjöt.....................kg verð 26,00 kl". •
Hrefnukjöt....................kg verð 27,00 kl\
Dilkalifur...................kg verð 40,30 kl*.
Dilkahjörtu..................kg verð 26,70 kr.
Dilkanýru....................kg verð 26,70 kr.
Dilkamör.....................kg verð 6,40 kr.
Slagvefja með beikoni.........kg verð 29,00 kr.
Kjúklingar, 4 stk. í poka,...kg verð 54,00 kr.
Kjúklingar...................kg verð 61,00 kr.
Slög................. ........kg verð 14,50 kr.
Saitkjöt......................kg verð 38,95 kr.
Stórlúða í sneiðum............kg verð 22,50 kr.
Strásykur.....................kg verð 5,90 kr.
Kakó, 1/2 kg......................... 20,60 kr.
Flóru safi, 2,2 lítrar,............ 21,15 kr.
Flóru appelsínumarmelaði, 1,2 kg.,.... 19,95 kr.
Flóru blönduð sulta, 1,2 kg.......... 21,60 kr.
, Flóru jarðarberjasulta, 1,2 kg,.... 23,25 kr.