Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1915, Page 83
Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands. 89
Af fóðurrófum reyndust beztar Tyens Bortfelder og
Woltón hybrid. Bortfelder má standa þéttara en aðrar
rófur og verður því drjúgar í uppskeru. Fræmæður náðu
ekki að þroska gulrófnafræ.
Trjáræktin. Af henni er ekki mikils von í svo köldu
sumri. Trjágróður tók þó meiri framförum en vænta
mátti. Reynitré uxu 8—12 þuml., birki 6 — 9 þuml., greni
og fura 4—7 þuml., lævirkjatré 6 — 10 þuml. Margar ein-
stakar plöntur af öllum þessum tegundum uxu þó mik-
ið meira.
Af álitlegum nýjum trjátegundum, sem nú eru á unga
aldri, mætti nefna Siberiskt greni (Abies Siberica).
Rœktun g:aröjurta var tíðin mjög óhagstæð. —
Varð því framför þeirra með lakasta móti. F*rátt fyrir
slíka veðráttu þroskaðist þó blómkál í síðari hluta á-
gústmánaðar, og hvítkáls- og töppkálshöfuð fengust all-
þétt í byrjun október.
Umsjón með garðrækt og trjárækt hafði í sumar ung-
frú Guðrún Björnsdóttir garðyrkjukona frá Veðramóti.
2. ÚtbreiHisla verkfæra.
Mest kveður að fjölgun sláttuvéla. Voru 7 vélar seldar
á félagssvæðinu þetta ár og var þó ekki nær öllum pönt-
unum fullnægt sökum erfiðleika með að útvega þær, eins
og fleiri vörur nú á tímum. Meiri virðist þó fjölgunin
muni verða næsta sumar, því nú eru pantaðar 10. Einna
mest eru vélarnar keyptar í Pingeyjarsýslum. Fóru 2 í
Bárðardalinn og var með annari þeirra slegið mikið af
vall-lendisgrundum á Stóruvöllum; eru þær harðar og
nú í sumar óvanalega snöggar. Notaðist vélin þar betur
en nokkur hafði búist við. Telja kunnugir menn það
mikla sönnun fyrir nothæfi sláttuvéla víða annarstaðar.
Kerrur útvegaði félagið milli 20 og 30 og talsvert af
hjólum. Hefir það nú komizt í gott samband við vönd-
uðustu vagnaverksmiðjuna á Norðurlöndum, er hefir tjáð