Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Qupperneq 105
Hvernig eiga bændur að fara að því að fá öruggari og
meiri uppskeru af túnunum, betri grasvöxt í úthaga, svo að
hann framfleyti fleiri gripum, betri, ódýrari og öruggari
fóðurverkunaraðferðir, meira hlutfall fóðursins heimarækt-
að en nú er, betri aðstöðu og minni vinnu og léttari við
gripahirðingu en nú er og meiri og verðmætari afurðir af
hverjum grip en nú er og helzt með minni tilkostnaði?
Það væri að lofa upp í ermina sína að segja, að rannsókna-
starfsemin geti látið ykkur þetta allt í té.
En segjum sem svo, að viðurkennt væri, að þörf væri á að
stórauka, t. d. tvöfalda, rannsóknastarfsemi í landbúnaði frá
því sem nú er. Segjum líka, að ákveðið væri, að þessari aukn-
ingu á starfseminni ætti fyrst og fremst að beina að lausn
brýnna búskaparvandamála.
Þá mætti hugsa sér, að þær rannsóknir og tilraunir, sem
gerðar yrðu til viðbótar því, sem nú er unnið að, færu að
verulegu leyti fram úti um sveitir hjá einstökum bændum.
Niðurstöður þeirra rannsókna fengju fljótt hljómgrunn
meðal annarra bænda, sérstaklega ef bæði væri gerð athug-
un á því hvaða tæknilegum árangri nýjungin skilaði og
ekki síður hinu, hvaða fjárhagsávinningur væri að henni.
Mér finnst líklegt, að tvöföldun á fjármagni og starfsliði
til rannsókna í landbúnaði væri hagkvæm ráðstöfun og er
þá gert ráð fyrir, að viðbótin yrði fólgin í rannsóknum á
brýnum búskaparvandamálum. Á því er jafnvel mögu-
leiki, að svo mikið mætti auka hagræðingu í landbúnaði
með slíkum rannsóknum, að ákveðnar greinar hans, og þá
sérstaklega sauðfjárræktin, gætu framleitt afurðir til út-
flutnings í allmiklum mæli án nokkurra útflutningsbóta.
Tvöföldun á núverandi fjármagni til rannsókna er ekki
meiri aukning á kostnaði en svo, að árs útflutningsuppbætur
nægðu til að greiða aukninguna næstu 10 árin.
Það virðist því ekkert glæfrafyrirtæki að leggja lit í slíka
aukningu, ef nokkur minnsta von er til þess að landbúnað-
urinn gæti orðið samkeppnisfær um verð á erlendum mörk-
uðum sem afleiðing af auknum rannsóknum.
108