Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1971, Side 129
húsnæði í lok þess mánaðar. Rannsóknarstofan á, í hinni
nýju innréttingu, allar lausar hyllur, rannsóknarstofuborð
og skápa, en hins vegar sá KEA um og á allar fastar inn-
réttingar. í þessu húsnæði er öll starfsemi Rannsóknarstof-
unnar komin á einn stað, en fram til þessa hafði starfið
verið á tveimur eða þrem stöðum. Er að þessu mikil hag-
ræðing, og er það von okkar að samfara hinu aukna plássi
og betri aðstöðu geti afköst Rannsóknarstofunnar aukizt og
blómgast til hagsældar fyrir búnað á Norðurlandi.
Frá upphafi og þar til nú í vetur var Rannsóknarstofan
til húsa með aðalstarfsemi sína í húsnæði Efnaverksmiðj-
unnar Sjafnar hér á Akureyri. Vil ég færa forráðamönnum
Sjafnar beztu þakkir fyrir þá aðstöðu, sem Rannsóknarstof-
an hefur notið hjá fyrirtækinu, og starfsmönnum Sjafnar
öllum fyrir sérstaka hjálpsemi við hvaða kvabbi sem var, en
á það reyndi alloft á þeim tíma er við vorum þar til húsa.
STARFSFÓLK
Starfslið stofunnar síðastliðið ár var fleira en undanfarin ár.
Fyrst má þar telja Þórarinn Lárusson, sem vann fulla vinnu
hjá stofunni allt árið. Matthildur Egilsdóttir vann fulla
vinnu vetrarmánuðina en hætti í byrjun maí og hóf aftur
vinnu 20. sept. 1971. Frá 1. júní 1971 var stúlka að nafni
Dómhildur Karlsdóttir ráðin til að vinna hálfan daginn.
Vann hún hjá stofunni til septemberloka. Þá var ráðin frá
20. júní, Margrét Haraldsdóttir, stúdent frá M. R. síðastliðið
vor, og vann hún fulla vinnu til 1. sept. Frá 1. okt. 1971 var
ráðinn í fullt starf Guðmundur Gunnarsson frá Búðarnesi
í Hörgárdal, stúdent frá M. A. sl. vor. Ég sjálfur starfaði
síðastliðinn vetur aðeins að hluta við stofuna með kennslu
við M. A. Frá maílokum vann ég aftur fulla vinnu við stof-
una. Ég vil þakka öllu samstarfsfólki ánægjulegt samstarf
og vel unnin störf fyrir Rannsóknarstofuna.