Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1972, Side 8
sambandi einkum nefna venjulegar fóðurflækjur (V. sativa)
og loðnar flækjur (V. villosa) svo og gráertur, sem eru sér-
stök afbrigði af fóðurertum (Pisum arvense) og eru líka til
í mismunandi tilbrigðum. Því fer víðsfjarri að kannað hafi
verið til nokkurrar hlítar, hvert gagn við getum haft af
þessum mjög afbrigðaríku tegundum belgjurta. Þá hafa
aðrar tegundir innfluttra belgjurta verið reyndar hér með
litlum árangri, svo sem Maríuskór (Lotus) bæði (L. cornicul-
atus og L. uliginosus) og gular lúpínur (Lupinus luteus).
Aðeins var um eina tilraun að ræða og munu mistök við
smitun fræsins hafa valdið því, að árangur varð enginn, en
af ýmsum orsökum fórst fyrir að reyna þetta frekar. Um
lúpínur er ástæða til að fjölyrða nokkuð fleira.
Gular lúpínur eru einærar, stórvaxnar og harðgerðar.
Þær eru einkum ræktaðar til jarðvegsbóta, en eru lítt hæfar
til fóðurs, vegna sérstakra eiturefna, sem í þeim eru og
gildir það um flestar lúpínur. Þetta getur þó verið mis-
munandi eftir tegundum og ræktunarstað. Annars eru lúp-
ínur bæði einærar og fjölærar, og hafa þær fjölæru verið
ræktaðar mikið hér sem skrautplöntur í görðum og þrif-
ist ágætlega. Gott dæmi um fljótan árangur af innflutn-
ingi belgplantna er Alaskalúpínan, sem skógræktin inn-
leiddi hér fyrir nokkrum árum og gróðursetti á Þveráraur-
um sunnanlands. Þar hefur hún síðan vaxið með ágætum
og þekur orðið stórt svæði en hefur auk þess verið dreift
víða um land með ágætum árangri. Hvort jurt þessi er not-
hæf til fóðurs mun ekki hafa verið kannað, en mér er tjáð,
að þar sem hún vex utan girðingar, éti sauðfé hana með
góðri lyst og verði ekki meint af.
Nokkru fyrir heimsstyrjöldina síðustu, hafði Þjóðverj-
um tekist að framleiða lúpínur, bæði einærar og fjölærar,
án eiturefna (alkaloida) og nefndust þær „sætar lúpínur'*
eða „sætlúpínur." Mjög erfitt var að ná í fræ af þessum af-
brigðum, þó tókst í stríðsbyrjun að ná í fræ af einærum
sætlúpínum og var því sáð. Spruttu þær dável en féllu í
fyrstu frostum að haustinu. Síðan rofnaði allt samband við
Þýzkaland um langt skeið og varð því ekki af frekari til-
10