Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1986, Page 121
Búnaðarsamband N-Þingeyinga:
Jóhann Helgason formaður,
Sigtrvggur Þorláksson búnaðarþingsfulltrúi.
Ævifélagadeildin á Akurevri:
Þorsteinn Davíðsson.
Stjórnarmenn Ræktunarfélags Norðurlands:
Egill Bjarnason,
Jóhannes Torfason.
Auk þeirra sem að framan greinir voru mættir flestir héraðsráðu-
nautar á svæði Ræktunarfélagsins, Jón Viðar Jónmundsson naut-
griparæktarráðunautur Búnaðarfélags fslands, Þórarinn Lárusson til-
raunastjóri á Skriðuklaustri, Jóhannes Sigvaldason tilraunastjóri á
Möðruvöllum, Stefán Magnússon bústjóri á Möðruvöllum og Svan-
hildur Hermannsdóttir skólastjóri á Stóruvöllum.
5. Erindi Jóns Viðars Jónmundssonar um niðurstöður könnunar á bú-
skaparaðstöðu á bújörðum á Norðurlandi. Jón gat þess að tilgangur
þessarar könnunar væri að fá glögga mynd af stöðunni i hinum hefð-
bundna búrekstri á Norðurlandi og hvernig hægt er að mæta þeim
samdrætti sem orðið hefur og fyrirsjáanlegur er. Að þessari könnun
unnu Jón Viðar, Egill Bjarnason, Guðmundur Steindórsson ásamt
héraðsráðunautum á viðkomandi svæðum. Úrvinnsla gagna var fyrst
og fremst í höndum Jóns Viðars.
Jón Viðar Jónmundsson lýsti niðurstöðum könnunarinnar mjög
ýtarlega. Það kom fram að nokkur munur væri milli héraða hvað snerti
búrekstraraðstöðu. Jafnframt kom fram í erindi Jóns að töluverður
munur væri milli einstakra sveitarfélaga innan hvers héraðs. Einstaka
hreppar eru mjög illa á vegi staddir og búseta þar jafnvel í nokkurri
hættu ef um áframhaldandi samdrátt í hefðbundnum búgreinum
verður að ræða. Einkum gildir þetta fyrir sauðfjárframleiðslu og þyrftu
þau svæði sem hvað verst eru stödd jafnvel að hafa nokkurn forgang til
sauðfjárframleiðslu. Jón Viðar taldi mjólkurfarmleiðsluna standa
nokkuð traustum fótum einkum á vissum svæðum og gæti gefið nokkuð
góða afkomu. Framsögumaður gerði einnig grein fyrir möguleikum í
öðrum búgreinum og kom viða við. Þrátt fyrir lágt verð á loðskinnum
um þessar mundir taldi Jón að möguleikar í loðdýraræktinni væru
hvað mestir og þar væri hlutur Norðurlands nú þegar nokkuð stór.
Erindi Jóns Viðars var mjög yfirgripsmikið og ýtarlegt og visast að öðru
leyti i fjölrit um erindi þetta sem dreift var á fundinum. Fundarmenn
þökkuðu erindi Jóns Viðars með lófataki.
Egill Bjarnason þakkaði erindi Jóns og lýsti jafnframt með nokkrum
orðum aðdraganda þessarar könnunar og hvaða stefnu ætti að taka í
framhaldi af henni. Gaf hann síðan orðið laust um erindi Jóns Viðars.
123