Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Blaðsíða 26
28
AtHugasemdir.
Þessi reikningur sýnir glegst alla árlega starfsemi sparisjóðs-
ins, hvernig lánin velta út og inn, hvað lagt er í sjóðinn ár-
lega, og hve mikið út er tekið af innstæðum árlega.
Innborganir af eldri lánum eru árið 1923 kr. 26922,18, og árið
1924 kr. 29495,84. En útlánin pessi sömu ár eru: 1923 kr.
29264,98 og 1924 kr. 21665,00 og er þetta mesta fjárvelta, sem
sjóðurinn hefir nokkru sinni haft.
Árið 1923 eru ný innlög i sjóðinn kr. 6565,18, og 1924 kr.
9858,08, og er pað mjög litið í hlutfalli við útteknar innstæður.
En að sjóðurinn í heild hefir ekki minkað svo nokkru verulegu
nemi, pótt mikið meira hafi verið tekið út af innstæðum en
nýjum innstæðum nemur, kemur af pví, að allir vextirnir eru lagðir
við hinar eldri innstæður, svo að pær fara árlega hækkandi og
halda innstæðuupphæðinni við.