Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Page 7
Skýrsla
um störf Búnaðarsambands Austurlands
frá 29. júní 1916, til 27. júní 1917.
1. Um starfsemi í gróðrarstöð Sambandsins vísast
til skýrslu ráðunauts um hana. Leggst skýrsla hans fram
sem fylgiskjal hér með.
2. Hrútasýningum þeim á Fljótsdalshéraði, sem um
ræðir í tölul. 2, 2. málsgrein stjórnarskýrslu 1916, var
frestað til komandi hausts. Orsök frestunarinnar var
sú, að haustið 1916 gat Sambandið ekki fengið fjár-
ræktarmann Jón H. Þorbergsson til þess að koma á
sýningarnar til leiðbeininga, eins og til var ætlast. Hann
Lundinn öðrum störfum á þeim tíma. En jafnframt því,
að tilkynna Sambandinu þetta, veitti Búnaðarfélag ís-
lands ádrátt um, að Sambandið fengi nefndan fjárrækt-
armann til sýninga haustið 1917, ef þeim gæti orðið frest-
að þangað til. Þetta afréð því stjórnin, og jafnframt að
stofna þá til sýninga á öllu Sambandssvæðinu á kom-
anda hausti, meðfram með hliðsjón af því, að ekki eru
líkindi til, að kostur verði því framvegis að fá hr. Jón
H. Þorbergsson hingað austur.
Til þessara sýninga hefir nú verið stofnað og þær
boðnar í alla hreppa á sambandssvæðinu. 27 sýningar
í 30 hreppa -þ Seyðisfjarðarkaupst.