Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 16
i8
hún fyrir alvöru fariö aö keppa viö útlenda framleiöslu_
Þótt ekki hafi veriö pantaö mikiö, hefir samt orðið'
nokkuð snúningasamt við þær, og til þeirra gengiö tölu-
verður tími.
Leiðbeiningastarísemin hefir verið meö minna mótir
enda hafa ýmsar ástæður legið til þess. Fyrst og fremst
vorveðráttan og aðrar óhagstæðar kringumstæður, og
svo hafa túnmælingarnar tekið æði mikinn tíma, sem
annars hefði verið til yfirreiða og leiðbeininga fyrir fólk.
Helztu leiðbeiningamar hafa verið gerðar á þessum
stöðum:
A Egilsstsöðum á Völlum lauk eg við mælingar fyrir
áveitu á nesinu. Hefir verið gerð áveita áður, en nú er
hún að ýmsu úr lagi gengin, og eins þarf að bæta við
hana að miklum mun. Eg mældi landið og kortlagði. Og
gerði einnig flatarhallamælingu og áætlun fyrir flóð-
görðum. Verkið kostar tiltölulega lítið, en mikið landi
vinst til aukinnar ræktunar.
Þá gerði eg athuganir um áveitur á Geitavíkur- og
Litluvíkurblám í Borgarfirði. En sökunr tíma og áhalda-
skorts gat eg ekki gert nema lauslegar athuganir. Þetta
eru hvorutveggja stór stykki, og líkleg til að gefa stórura
aukinn arð með áveitu og framræslu. Mælingar á slíkura
stykkjum verða ekki gerðar á hlaupum frá öðrtrm verkum.
Einnig hefi eg leiðbeint í ýmsu öðru á ferðnm mínum,
bæði smærri áveitum, framræslu, áburðarmeðferð og
ýmsu fleiru, er að jarðyrkju lýtur. Yfirleitt er rnjög
sjaldgæft að rnenn viljí fá nokkrar leiðbeiningar um
nokkuð, er að kvikf járrækt lýturer þetta þó í rauninm