Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 34
36
G. Blöndals, um starfsemi búnaöarfélaga. Leggúr
fundurinn fyrir stjórnina að koma fram með rök-
studdar tillögur um breytingar á búnaðarmálastarf-
semi þessara félagsstofnana og leggja þær fyrir
næsta aðalfund Sambandsins.
17. Út af uppástungu, sem fram kom á fundinum um
það, að Búnaðarsambandið vinni að því, að undirbbúa
stofnun sláturfélags á Austurlandi, mæltist fundurinn til
þess, aö stjórnin athugi það mál, og leggi fram álit sitt
um það á næsta aðalfundi, hvort hún álíti þaö hlutverk
Sambandsins, og því fært, að takast á hendur forgöngu
í því máli.
18. Nefnd sú, sem falið hafði verið aö atliuga upp-
kast að fóðurskýrslum, kom fram með eftirfylgjandi
breytingartillögur:
í dálk 1 komi: „októbermánuður“.
- — 7 — : „súrhey“.
- — 8 — : „heygjöf alls“.
- — 9 — : „rófur“.
- — 10 — : „kraftfóður“.
- — 11 — : „lýsi“.
- — 12 — : „annað fóður“.
- — 13 — : „úrgangur úr heyi“.
Fundurinn samþykti þessar breytingar nefndarinnar.
Fundurinn samþykti ennfremur, að bætt sé á skýrslu-
formið nauðsynlegum dálkum um fóður hesta. Ennfrem-
ur er það til athugunar fyrir stjórn Sambandsins, hvort