Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 37

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 37
Dm vinnnhjúaverðlaun. Frá því landið bygðist, hefir vinnuhjúastéttin verið fjölmenn. Fyrst í lok nítjándu aldarinnar fer lausafólki að fjölga að mun. Ekki skal neitt reynt að varpa illu að þessari ungu starfstétt, en hitt er oss ljóst, að miklu máli skiftir það fyrir hvert heimili að hafa ráð á fólki, sem er vel kunnugt öllum heimilishögum. Fólki, sem er orðið svo heimilisvant að það þekkir þá stefnu og þann anda, sem ráðandi er. Fólk, sem dvelur lengi á sama stað, eða vinnur sarna verk, grær við verkið eða staðinn, og búi nokkur þrifnaðarandi í því, fer það að láta sér ant um hag heimilisins og starfseminnar í heild sinni. Þetta virð- ist vera svo stór kostur, að eitthvað sé gerandi til að festa fólk við sama staðinn um lengri tima. Eins og nú hagar til, skiftir fólk nokkuð þétt um vistir; mun margt vera þess valdandi, meðal annars hringlandaskapur og hugsunarleysi, sem skolar fólkinu til og frá. Það virðist ekki vera til neins sérstaks að vinna, þótt dvalið sé nokkru lengur í sama stað. Hér á landi er svo auðvelt að fá vinnu, að enginn þarf að ómaka sig með útvegun meðmæla. Vinnuveitendur gleypa fegins hendi við hvaða vandræða görmum sem vera vill.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.