Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 42

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 42
44 UpphæS sú, sem greiða þyrfti fyrir hverja jörö, má teljast hverfandi lítil; og getur engan bónda munaS um, að leggja þessa litlu fjárupphæð fram. Sem betur fer, er efnahagur landsmanna það vel á veg kominn. Menn verða vel að veita því athygli, að ekki skal greiða nema eitt skifti fyrir hverja jörð, og gildir einu hver það gerir. Miklar sjóðseignir, er styðja ýms fyrirtæki, eru hverri þjóð mikill styrkur. Getur framtakssemi einnar kynslóðar, þótt lítil byrði fylgi, oft orðið komandi kyn- slóðum ti? hinnar mestu blessunar; og það margfalt meiri en við mætti búast, eftir framlagi hvers eins. Telji menn dygga, vel vinnandi og prúða starfsmenn nokkurs virði fyrir þjóðina, og finni menn hins vegar, að á skorti í þessu efni, er ekki annað ráð líklegra né betra, en að örfa framtakssemi hvers eins. Öllum fram- förum mun best farnast, sem sprottnar eru af innri hvöt og eiga rætur sínar í hinu betra mannseðlinu, því er ráð að styrkja það, sem líklegt er til umbóta í þeim efnum. Aðalfundur Búnaðarsambandsins 1917 fól stjórn þess að athuga hina framkomnu tillögu urn stofnun verðlauna- sjóðs vinnuhjúa. Vér sáum engan veg greiðari, til þess að kynna mönnum tillöguna og vinna henni fylgi, en að geta hennar í ársriti Sambandsins. Árangur athug- ana vorra birtist þá í framanrituðum línum. Og þeim fylgir sú ósk, að allur þorri jarða á Austurlandi verði sem fyrst hluteigandi í hinum væntaelga sjóði — og sú * yfirlýsing, að vér telium málefnið vænlegt til þjóðþrifa á sínu sviði.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.