Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 44
Um búnaðarlélagsskapinn á íslandi.
Fyrirlestur eftir Benedikt G. Blöndal.
Fluttur á aðalfundi Búnaöarsambandsins 27. júni 1917.
Ein af göfugustu hugsjónum mannkynsins er og veröur
sú, að hver einstaklingur eignist sinn fulla og viðurkenda
tilverurétt, og a'ö honum hlotnist þau lífskjör, aS hann geti
náS sem mestum andlegum og líkamlegum þroska. AS
hver og einn geti orSiö fær um aö sjá sér og sínum fyrir
sæmilegri tilveru, og aS hver, sem betur rná í lífsbar-
áttunni, geti stutt þá, sem ver eru settir aS einhverju leyti
fram til meiri menningar og mannúSlegri tilveru.
Sumir trúa alls ekki á þessa hugsjón eSa gefa henni
að minsta kosti engan gaum. ASrir viSurkenna hana aS
visu, en vilja þá beita þvingun, til aS koma henni í fram-
kvæmd. Ef til vill er þroski mannanna ekki meiri en þaS
enn þá, aS sú leiö yröi sigursælust til skjótra frarn-
kvæmda. Svo eru enn aSrir, sem ekki eru eins ákaflyndir
eftir framförunum og telja þær einar verulega varanleg-
ar, sem sprottnar eru af innri hvöt. Þeir menn viija leggja
alla áhersluna á, aS glæSa og göfga hinn innri mann hvers