Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 49

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 49
lippíýsingar. Ekki viröist þeim veröa viökomiö nema því aö eins, aö öfíug félög standi þar aö baki. Annaö aðal-ráöiö til aö auka framleiðsluna, er þaö, aö landbúnaðurinn eigi kost á sem ódýrustu og hagkvæm- ustu veltufé, er hann geti variö til framleiðsluauka. í því efni geta einstakir menn ekki miklu á orkað, enda líta margir svo á, að hér eigi landsstjórnin aö hlaupa undir bagga og stofna banka. Ekki er því aö neita, aö bankarnir eru til mikils gagns fyrir framkvæmdir og viöskiftalif, en því er nú einu sinni svo varið, að þeir reynast ekki hagkvæmar lánsstofnanir fyrir landbúnaö- inn. Starfsemi þeirra færist ávalt meira og meira í það horf aö veita stutt og fremur dýr lán — víxillán —. Slík lán eru óheppileg fyrir bændur, sem þurfa aö fá löng lán og ódýr. Af þessari ástæðu hefir borið meira og meira að þeim brunni, að bændur hafa myndaö sérstök félög til aö afla sér starfsfjár, sem var við þeirra hæfi. Þetta hefir verið gert meö ýmsu móti, en ekki skal farið neitt nánar út í það nú í þetta sinn. Að eins skal bent á þaö, að hér stendur efnalitli maðurinn ver að vígi, ef hann á að vera einn síns liðs, en ef hann er í félagi við aðra, og að efnamanninum getur lika hitnað ónotalega af ó- hagkvæmum lánskjörum. Það er mikilsvert, að geta aukið framleiðsluna sem mest, en það er ekki minna vert, að geta dregið úr fram- leiðslukostnaðinum.þar sem líkt stendur á og hér. Bændur berjast við mikinn vinnuskort og geta tæplega haldið hinum litlu búum sínum óskertum. Ráðið til að bæta úr vinnueklunni er að nota meira af 'stærri verkfærum en gert er. Þau eru flest nokkuð dýr, einkum ef menn ætla 4*

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.