Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 63

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 63
65 ilpphafi, heldur hafa þau verið hliðstæS við smábúnaðaf- félögin, og tekiö upp á sínar herðar nokkuö af þeim störf- um, sem þau gátu ekki ráöiö við. Þetta sjálfstæði sam- bandanna hefir ef til vill leitt til þess, aö búnaðarfélögin hafa varpað allri sinni áhyggju upp á samböndin og dregið sig í hlé. Þeim hefir ekki verið fyllilega ljóst, að þau væru liður í heildinni, enda er það afsakanlegt, eins og fyrirkomulagið hefir verið. Sambandsfyrirkomu- lagið er víst alstaðar þannig, að ekki er nein glögg verka- skifting á milli þeirra og hreppabúnaðarfélaganna. Sum af þessum stærri búnaðarfélögum eða samböndum, sem eg vil kalla, hafa eingöngu jarðyrkjustörf með hönd- um, verkfærapantanir o. fl., en önnur hafa einnig önnur búnaðarmál. Er sú regla gildandi fyrir öll hin eiginlegu sambönd. Eins og stendur, er aðalstarf sambandanna leiðbein- ingar og örfanir, gróðurtilraunir ýmis konar, aðstoð við erfiðari jarðyrkjufyrirtæki, sýningar o. fl. Mörg af þessum störfum eru þannig í eðli sínu, að búnaðarfélögin geta alls ekki við þau ráðið, en þó má ekki án þeirra vera, þannig er t. d. um gróðurtilraunir og ráðunautsstörf öll, og sýningar, að minsta kosti hinar stærri. Enn sem komið er, ber meira á þessari starfsemi, en hinni eiginlegu samstillingu í störfum búnaðarfélag- anna, það er eins og það sé sitt hvað búnaðarsamband og búnaðarfélag. Fyrir utan þessi störf sin ættu samböndin, með að- stoð Búnaðarfélags íslands, að vinna að breytingu á búnaðarfélögunum, í líka stefnu og bent hefir verið á hér að framan. Svo geta þau tekið að sér forustu í ýms- 5

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.