Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Blaðsíða 64
66
um nýmælum, sem búnað varða og þýSingu hafa, annaS
hvort fyrir það svæhi, er þau búa á, eða landið í heild
sinni. Get eg bent á verkefni, er víða, og eiginlega alstað-
ar, er skamt á veg komið enn þá. Það er alt er lítur að
vöruvöndun á búnaðarafurðum. Landsstjórnin hefir gert
nokkuð, og hún verður ávalt að láta sig málin skifta og
veita þeim sinn stuðning og vernd. En hins vegar er
það ósanngjarnt að ætla stjórninni að koma fram með
öll nýmæli. Þó þau séu vel meint og vel hugsuð, er ekki
víst að þau komi að tilætluðum notum; þau vantar ef
til vill rætur i huga og hjarta almennings. Mér finst
okkur oft hætta við, að stóla upp á náð og landsföður-
lega vernd stjórnarinnar og vænta alls af henni. Þetta
er óefað leifar frá einvaldstímanum, og eru þær alls ekki
óskiljanlegar. Það er hreint og beint skylda samband-
anna að vera brautryðjendur og styðjendur allra þeirra
stærri fyrirtækja er varða þeirra svæði og landið i heild
sinni.
Þá ættu samböndin að verða fastara tengd við Bún-
aðarfélag íslands en nú er. Þau eiga að vinna að út-
breiðslu þeirra hugmynda, er þar koma fram, og styðja
það í framkvæmd og undirbúningi margra mála, er það
hefir með höndum.
Þá skal loks að endingu farið nokkrum orðum um Bún-
aðarfélag fslands.
Samkvæmt lögum þess er tilgangurinn að efla land-
búnað og aðra atvinnuvegi er standa í sambandi við hann.
Búnaðarfélag fslands er sjálfstæð stofnun, sem samkvæmt
lögum sínum og stofnun nær yfir alt land, og er ætlað
að vinna hliðsætt við búnðarfélögin, án þess að störf og