Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Page 68

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Page 68
Til athngunar. Allar umsóknir til sambandsins eiga að vera komn- ar til formanns stjórnarinnar fyrir lok janúarmán. ár hvert. Slíkar umsóknir geta verið m. a.: 1. lím bændanámsskeið. Sambandssvæðinu er skift í 4 námsskeiðasvæði: 1. Svæðið norðan Smjör- vatnsheiðar. 2. Fljótsdalshérað, með aðliggjandi fjörð- um. — Þetta svæði sækir námsskeið Eiðaskólans. — 3. Svæðið Fáskrúðsfjörður að Lónsheiði og 4. Austur- Skaptafellssýsla. — Til þess að námsskeið komist á, þarf svofeldan undirbúning: Formenn búnaðarfélaga á svæðunum 1. 3. og 4. grenslast eftir því, hver í sínu nágrenni, hvort áhugi er á því, að námsskeið komist á. Þetta gera þeir að haustinu, eða snemma vetrar það ár, sem námsskeiðið ber upp á þeirra svæði (þriðja hvert ár). Sé námsskeiðs óskað, útvega þeir húsnæði, með hita og lýsingu, á þeim stað á svæðinu, sem stjórn Sambandsins hefir samþykt annaðhvort í eitt skifti fyrir öll, eða það og það árið, enda tryggja sér jafnframt að kostnaður við þetta verði greiddur af hlutaðeigandi hreppum, eða annarsstaðar frá. Auk þess útvega þeir innan héraðs helming fyrirlestra

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.