Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Page 70

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Page 70
72 a8 ástæðulausu, að kvaitað er uudan að koma hrútum yfir há og veglaus fjöll að haustlagi. Það var því ákveð- ið á aðalfundi sambandsins sumarið 1915, að hrútasýn- ingar yrðu eftirleiðis haldnar innan einstakra hreppa. En þá jafnframt, að hreppasjóðir legðu fram þriðjung verðlaunafjárins á móti 2/3 frá Sambandinu, auk þess, sem þeir greiða annan kostnað við sýningarnar, eins og undanfarið, ef nokkur verður. Á sýningum skal flokka hrúta eftir aldri svo, að veturgamlir hrútar séu í flokki, og tvævetrir og eldri í öðrum. — Verðlaunin eru þrenn : Eyrir eldri flokk kr. 8,00, 5,00 og 3,00, og yngri flokk kr. 6,00, 4,00 og 2,00. Fyrir góða einstaklinga, sem þó ná ekki verðlan- um, skal [gefa skriflega viðurkenningu (stj.f. 29/9 1913). 6. Um störf og leiðbeíningar ráðnnants (mæl- ingar, áætlanír ofl.). Slíka aðstoð fá búnaðarfélög, sem í Sambandinu eru, fyrir sig og einstaka meðlimi án end- urgjalds; þó fæða hlutaðeigendur ráðunaut, meðan hann starfar fyrir þá. Félög utan Samdandsins, og einstakir menn utan búnaðarfélaga, fá og leiðbeiningar, ef því verður við komið, þegar ráðunautur á leið um, eða nálægt. En fyrir það greiðist 6 kr. þóknun um daginn eða tiltölulega fyrir parta úr dögum. í umsóknum um ráðunautinn skal tekið skýrt fram, hvers starfs er óskað af honum, svo að vitað verði fyrir fram, hver áhöld bann þarf að flytja með sér. 7. Hverskonar aðrar umsóknir eða málaleitanir til Sambandsins, er menn kynnu að æskja. Sambandið útvegar búnaðarfélögum, sem í því eru allskonar jarðyrkjuáhöld og vinnuáhöld, tilbúinn áburð,

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.