Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Qupperneq 72
74
beint eða óbeint. Sambandið styður hvers konar um-
bóta- og franifara viðleitni í búnaðarmálum, sem því
er ekki um megn, og það álítur, að stefni i rétta átt.
Starfsemi þess hefir óneitanlega borið talsverða ávexti,
vakið og komið á rekspöl ýmsu, er til umbóta og fram-
fara horfir. En það óskar að tá tækifæri til að gjöra
meira. Það getur að vísu ekki unnið beinlínis fyrir
menn, en það getur unnið með þeini á ýmsan hátt.
Það getur ekki gefið mönnum löngunina og áhugann á
því að bæta eigin kjör sín og atvinnu, en það getur
fremur hlynt að og stutt, þar sem eitthvað af þessu er
fyrir. En til þess að geta þetta, þarf það að vita um
óskir og áform rnanna — fá umsóknir og málaleitanir,
og mundi öllu slíku vera sinnt eftir ýtrustu föngum, og
við fyrsta tækifæri.
Þessi athugunark&úi getur minnt á sitt hvað.
Sambandið stofnar til bændanámskeiða. Þau eru ágæt-
lega sótt og vinsæl. Og það er í sjálfu sér mjög
ánægjulegt. En það heitir líka verðlaunum fyrir góða
hirðingu búpenings og áburðar. Og þetta er lítið eða
ekkert notað. Nú er það aðalstefna og verkefni nám-
skeiðanna, að vekja menn til íhugunar og framkvæmda,
til búnaðarbóta, og þau telja einmitt þetta tvent meðal
þýðingarmestu atriða umbótanna. Hver ætlar þá að
verða árangur námskeiðanna ? Heil, stór hreppafélög
færast undan 15 kr. gjaldi til umbóta gripahirðingar á
öllum þorra heimila sinna — því að þótt að eins 3—4
hirðar fái verðlaun að lyktum, þá mundu margir fleiri
vanda sig, þegar þeirra er von, enda það eitt, að dæma
skal sérstaklega um hirðinguna, hefir stór-bætandi áhrif
— og einstakir menn vilja ekki vinna það fyrir allríf-