Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1953, Qupperneq 71
PÉTUR SIGURÐSSON:
Sextándu og seytjándu aldar bækur íslenzkar
Viðaukar og athugasemdir við Islandica IX, XIV og XXIX
Síðan Halldór prófessor Herraannsson samdi skrár sínar um íslenzkar bækur á 16. og
17. öld hefur Landsbókasafn eignazt nokkur rit, sem ekki er þar getið; enn fremur eru í
safninu smáprent, sem voru ekki aðgengileg, er Halldór Hermannsson vann að skránum.
Fyrir skömmu var hafinn undirbúningur undir samningu íslenzkrar bókaskrár frá
upphafi. og er ráð fyrir gert, að hún verði prentuð. Fyrirhugað er að skipta skránni í 2
deildir, og verði í fyrri deildinni bækur og smáprent frarn að árinu 1844, þegar Við-
eyjarprentsmiðja var flutt til Reykjavíkur, en þá verða þáttaskil í bókaúgáfu hér á
landi.
Bókaeign Landsbókasafns er þannig komið fyrir, að öll eintök umfram eitt af hverri
bók eru geymd sérstaklega. Það mátti því auðveldlega dyljast bókfræðingum, þótt þar
væru eintök sömu útgáfu, sem að einhverju væru frábrugðin hvert öðru. Aður en vinna
var hafin að bókaskránni, voru því allar bækur í safninu frá 16. og 17. öld fluttar í sér-
stakt herbergi. Eg tók að mér að skrifa upp bókartitla frá þessum öldum og hafði ann-
ars vegar hliðsjón af skránum í Islandica, en bar einnig saman eintök, ef fleiri voru
en eitt af sömu bók, einkum titilblöð og niðurlag bóka. Kom þa í ljós, að meiri brögð
voru að frávikum en áður var kunnugt.
Hér á eftir verður greint frá ritum, sem hefur ekki áður verið lýst í Islandica, en þá
koma viðaukar og athugasemdir við skrárnar þar. Það er m. a. í því skyni gert að vekja
athygli bókamanna á því verki, sem nú er hafið í safninu og heita á þá til samstarfs,
að það mætti verða sem bezt af hendi leyst. Væri óskandi, að þeir, sem eiga prentaðar
bækur eða smáprent frá þessum öldum, vildu gefa mér kost á að athuga þær, ef vera
mætti, að hér á landi væru enn til bækur, sem Landsbókasafn á ekki eða jafnvel hafa
verið taldar glataðar með öllu. Fyrir það er aldrei hægt að synja, sbr. barnalærdóms-
kver það, sem lýst verður hér á eftir.
I
[JÓNSSON, RUNÓLFUR o. fl.]
Applausus Votivus I Nuptiis longé auspicatissimis | Viri Strenuissimi, Illustri generis
prosapiá & insigni vir-jlutum heröicarum decore præstanlissimi, | Dn. Henrici j Bielcke,