Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1953, Page 89

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1953, Page 89
JÓHANN GUNNAR ÓLAFSSON Mattliías Jocliumsson og Skagaf jörður Kvæði Matthíasar Jochumssonar skálds um Skagafjörð er eitt af stórfenglegustu Ijóðum hans, svo þrungið af andagift og eld- legu fjöri, að furðu vekur. Að formi til er það einnig frábært og málsnilldin vekur djúpa aðdáun. Lýsingar allar eru svo hnit- miðaðar og ljósar, að betra verður ekki á kosið. Menn hafa verið sammála um það frá því kvæðið kom fyrir almennings sjónir, að það væri óvenjulegt listaverk og skipað því á bekk með því bezta, sem ort hefur verið á ís- landi. Kvæðið er alllangt, hver vísa tólf hend- ingar, en vísurnar þrettán að tölu. Manni dettur ósjálfrátt í hug við lestur kvæðisins, að svo stórfellt listaverk hafi ver- ið lengi í smíðum, margfágað og þaulhugs- að. Það kemur því á óvart, að það er ort á einni dagsstund. Með fáum orðum ætla ég að reyna, eftir því, sem föng eru á, að segja sögu þessa kvæðis. í kvæðasöfnum skáldsins er kvæðið talið ort árið 1890. Fullar sannanir eru fyrir því að þetta er rangt. Á árunum 1888—1891 gaf séra Matthías út hálfsmánaðarblað á Akureyri. Nefndi hann það Lýð og átti það aðallega að ræða menntamál og flytja fréttir. í 15. tbl. 1. árg., sem kom út 17. apríl 1889, er kvæðið Skagafjörður fyrst prentað, að undanskilinni einni vísu, sem prentuð er í næsta tbl., 2. maí 1889, vegna þess að hún hafði af vangá fallið niður. Engum blöðum er því um það að fletta, að um þessar mundir hefur þetta mikla kvæði orðið til. I ævisögu sinni, Sögukaflar af sjálfum mér, minnist séra Matthías ekki á kvæðið, og hef ég ekki heldur getað fundið neitt um það í bréfasafni því, sem Menningarsjóður gaf út. Haraldur Leósson, kennari á Isafirði, sem er Eyfirðingur að uppruna, hefur sagt mér, að það sé haft eftir Steingrími lækni, syni séra Matthíasar, að vetrarkvöld nokkurt, er stórhríð geisaði úti, hafi faðir hans komið fram úr skrifstofu sinni og spurt heimilis- fólkið, hvort það vildi ekki heyra kvæði, sem hann hefði þá lokið við að yrkja. Las hann því síðan kvæðið um Skagafjörð. Séra Matthías varð prestur á Akureyri ár- ið 1887. Áður hafði hann verið prestur að Odda á Rangárvöllum. Frá Reykjavík fór hann um vorið norður með strandferðaskip- inu Láru. Þá var hafís fyrir Norðurlandi og var nokkur tvísýna á því, hvort skipið kæm- ist inn á Skagafjörð og lengra austur með

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.