Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1953, Qupperneq 91

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1953, Qupperneq 91
MATTHÍAS JOCHUMSSON OG SKAGAFJÖRÐUR 91 Hér virðist auðvelt að geta í eyðurnar. Þeir, sem séð hafa Skagafjörð í vetrar- skrúði, sólbjarta daga, skilja vel hvílíkum áhrifum skáldið hefur orðið fyrir, þegar það ferðaðist þvert yfir þetta undurfagra hérað, frá stórbýli til höfuðbóls, við höfðinglegar móttökur, veizluglaum og skálaræður. Saga héraðsins hefur verið rifjuð upp, stórmenna að fornu og nýju getið, Hólastóll vegsamað- ur, stiklað á fornum stórtíðindum og atburð- um og náttúrufegurðin dásömuð. Á Miklabæ sat þá séra Einar Jónsson, kunnur fræðimaður og sómamaður, og á Flugumýri bjó Þorvaldur Ari Arason. Hann var mikill höfðingi, og allra manna gestreif- astur, fjörmikill og glaðvær. Hann varð ári síðar upphafsmaður að því, að sýslunefnd Skagfirðinga skoraði á Alþingi að veita séra Matthíasi skáldalaun. Á Gili bjó Jóhannes Ólafsson, sýslumaður Skagfirðinga, bróðir Ingveldar annarrar konu hans og vildarvinur. Á Sauðárkróki var þá Stefán Jónsson, verzlunarstjóri Gránufélags, gestrisinn rausnarmaður, glaður og reifur. Fleiri voru þá merkismenn á Króknum. Á Sauðárkróki var séra Matthíasi búin veizla að Hótel Tindastóli. Var þar margt manna og fögnuður mikill. Að Gili, Flugumýri og Miklabæ gisti séra Matthías einnig á heimleið. Ferðin hafði verið hin ágætasta, enda klykkir séra Matthías út með þessum orð- um: „ Allt gekk vel.“ Þegar heim kom tóku við embættisannir, og einu blaði af Lýð (26. marz) þurfti að hleypa af stokkunum. En 10. apríl, rúmum hálfum mánuði eftir að séra Matthías kom heim úr Skagafirði, skrifar hann í minnisbók sína: jo. Á' /V „Orti (á dag) Skagafj.kvæðið“. Ef orð skáldsins sjálfs væru ekki fyrir því, að kvæðið hefði komizt á pappírinn á jafn- skönnnum tíma, væri erfitt að trúa því. Og fáir mundu liafa leikið það eftir séra Matthí- asi, að yrkja jafnlangt og stórbrotið kvæði á einum degi. Manni ægir andagiftin. AS vísu má telja víst, í Ijósi þess sem sagt hefur veriö hér að framan, að kvæðið hafi mótast í vitund, eða öllu heldur undirvitund, skáldsins á þeim mánaðartíma, sem leið frá því að Skagafjarðarferðin hófst og kvæðið varð til. Vísurnar eru eins og myndir, sem speglast í huga skáldsins á ferðinni. Kvæðið hefur síðan þróazt og mótazt með skáldinu, þar til það fær framrás óveðursdaginn 10. apríl 1889. Lítill tími hefur gefizt til að hefla og bæta kvæðið, því að það fer nær beint af pennanum í prentsmiðjuna, en 17. apríl er Lýðsblaðið dagsett, þar sem það var fyrst prentao. Eg hef borið frumprentun kvæöisins sam- an við tvær síðari prentanirnar í Östlunds- útgáfunni 1903 (II. 115—121) og Magnús- arútgáfunni 1936 (bls. 105—-107). Tvær síðari útgáfurnar mega heita sam- hljóða, en skáldið hefur gert nokkrar breyt- ingar frá frumútgáfunni, og eru þær allar til bóta, að því er virðist. Því hefur stundum verið haldið fram, að séra Matthías hafi ekki hirt um lagfæringar á kvæðum sínum. Þetta kemur því ef til vill sumum á óvart. Breytingarnar skulu raktar hér:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.