Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 49

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 49
TIL ÍSLENDINGA 49 Þá er það beyging íslenzkra orða í aukaföllum, sem stýrast af enskum forsetning- um. Ég réð það af snemma að skeyta engu um það. Þegar rætt er um þessa eða hina bókina eða manninn, hef ég jafnan notað nefnifall, t. d. „from Ólafor Davíðswi came a package containing the „Passíusálmar of HallgrímMr Pétursron“ o. s. frv. Á síðustu öld voru enskir rithöfundar vanir að segja: He advices me to read Ciceronis philosophical treatises" [þ. e. beygðu nafn Ciceros upp á- latínu], en við gerum það ekki lengur. í skrásetningu bókatitla eða annars útdráttar úr bókum, - þegar lýst er efni þeirra-, hef ég venjulega fylgt þeirri reglu, ef textinn er íslenzkur, að láta hann standa nákvæmlega eins og hann er, án nokkurs tillits til enskra forsetninga eða annarra orða, sem á undan kunna að fara. í dæminu, er þér vísið svo rækilega til, Exercitium Precum Olearii, ritaði ég þannig: Contents: - Title-folio, on reverse dedication to [Titilsíða, á annarri blaðsíðu tileinkað] Göfugre Dygdaryk/re og .... Allir ættu að minnsta kosti að sjá, að fyrir mestu er að birta fyrstu línur tileinkunarinnar eins og þær eru, og þess hefur verið freistað (til þess að ritið verði greint eða í öðrum tilgangi). í bókfræði dugir ekki að fylgja málfræðinni alltaf út í æsar, ef maður vill vera nokkurn veginn nákvæmur. í gömlum íslenzkum ritum sérstaklega er að auki margur vandi, vegna þess að titilsíða og aðrar síður eru oft illa farnar, brotnir stafir o. s. frv. Þá er ekki heldur mikla stoð að hafa í fyrirrennurunum. Nyerup & Kraft þýða t. a. m. oft íslenzku titlana á dönsku. Jón Borgfirðingur eðajafnvel Jón Árnason eru eins vísir til, þegar um einhverja gamla útgáfu er að ræða, að hafa brodd yfir sérhljóðum eða rita ð, eins og þeir stæðu í hinum gamla titli, og skrifa stöðugt vitlaust, svo sem Umþenkingar, kiennemann, íjórtán, þar sem í bókartitlinum stendur: Vmþeinkingar, Kieiiemafi, fioortan o. s. frv. Bókapakkarnir eru ekki enn komnir, en ég býst við þeim eftir einn eða tvo daga. Verkin, sem mig vantar mest [og ætluð eru til að fylla ritraðir] eru (sjá frumbréfið). Ég vona, að yður heilsist vel og þér séuð stálsleginn. Mér líður ögn betur eftir vetrardvölina á Egyptalandi og síðan ég hætti að reykja. Ég hef ekki andað að mér einum einasta reykjarstrók síðan 12. apríl 1888, eða í rúmt ár. Það var hreinasta þrekraun að hætta. 7.2.90 Have you the last numer of Austri? — 4. árg. nr. 22, printed in Akureyri (8. mai 1888). I have never yet been able to get it. The last lot of books has not yet arrived. Of Hrappsey books I lack (see list in Æfi-ágrip feðganna): (6) Forordning um Taxta og Kauphöndlun 1777—78 (7-28) various Alþingisbækur (30) ítala búfjár í haga. 1776-77 (37) Heimspekínga skóli. 1784 (42) Hugdylla 1783 (51) Rímur af Ulfari sterka 1775 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.