Frjáls verslun - 01.04.1940, Side 7
Geir Zoega íæddist í Reykjavík ái'ið 1830. Hann vai'
alþekktur maður um allt land og má teljast einn af
lu'autryðjenduiö íslenzkrar verzlunar og útgerðai'.
Hann rak mikla þilskipaútgei'ð, og var skip hans,
„Fanney", fyrsta þilskipið, sem íslenzkir menn stund-
uðu veiðar á, og var það keypt rétt fyrir 1870. Um
aldamót voru þilskipin orðin um 40. Zoega rak al-
þekkta verzlun í Reykjavík, sem enn er til.
póröur Guðjohnsen, verzlunarstjóri í Húsavík,
fæddist árið 1844. Hann stjórnaði 0rum & Wulf-verzl-
un þar (il 1902, að hann fluttist lil Kaupmannahafnar
og andaðist þar fyrir allmörgum árum. Guðjohnsen
var hinn mesti dúgnaðarmaður og sá fyrir, að vel
mundu Islendingar þurfa að halda á verzlunarmálum
sínum, cf þjóðinni ætti að farnast vel efnalega, og við-
skiptin ekki að verða misklíðarefni innan lands. Var
hann ekki vinsæll af kaupfélags-forkólfum síns tíma.
Guðbrandur Finnbogason (1849—1899) var forstjór’
Fischers-verzlunar í Reykjavík, sem var alþekkt á
sínum tíma; en var fyrst forstjóri útibús sömu verzl-
unar í Keflavík. Guðbrandur var vel menntaður mað-
ur og vinsæll. Ferðaðist hann mikið um ýms lönd, sem
ckki var algengt á þeim timum. Fischers-búð var vin-
sæl verzlun undir hans stjórn, enda er Guðbrandi
þannig lýst, að hann hafi verið hið mesta ljúfmenni.
Lárus G. Lúðvígsson, er stofnaði liina alþekktu skó-
verzlun í Reykjavík var skósmiður, en tók snemma
að verzla og þótti með afbrigðum gott við hann að
skipta. Rétt fyrir aldamótin tók hann að fá skó frá
þýzkalandi, en þar var betra að kaupa en af Dönum,
urðu þessi viðskipti liyrningarsteinninn undir verzlun
hans, en í þá daga þurfti nokkuð áræði til þess að
leita út fyrir Danmörku, því það mátt.i teljast hefð-
bundið að verzla ekki annarsstaðar.
FRJÁLS VERZLUN