Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1946, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.03.1946, Blaðsíða 10
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON alþm.: MARKVERÐAR LÖGGJAFIR Sigurður Kristjáusson. Á almennum félagsfundi í V. R., sem haldinn var í Kaupþingssalnum, föstud. 3. maí s. 1., flutti Sigurður Kristjánsson alþm. greinargott yfirlit um helztu þingmál, sem afgreidd voru sem lög á síðasta Alþingi. Ræðumaður gat þess í upphafi erindis síns, að þetta þing væri einkennt af mörgum, stórurn framfaramálum, og mundi það verða lengi í minnum haft, af þeim sökum. Ilann sagði að fjárhagsgeta ríkisins og almennings væri meiri nú en áður, og því ríkti nú meiri bjartsýni og áræðni til stórra hluta. Þá vék Sigurður að því að rekja þýðingar- mestu lögin, senr Alþingi samþykkti, og verður hér lauslega drepið á aðalefni þeirra, samkvæmt ræðu hans: INNFLUTNINGS- OG GJALDEYRISMEÐFERÐ: Samkvæmt lögum um þessi mál er fyrirskipað 5 nranna Viðskiptaráð, sem gera á tillögur til Viðskiptamálaráðuneytisins um það, hvaða vör- ur skuli lráðar innflutningsleyfum og lrverjar ekki. Einnig skal Viðskiptaráð hafa með hönd- um úthlutun farrýmis fyrir vörur, svo og verð- lagningu vara. Enn eru hindranir í vegi fyrir því, að hægt sé að slaka á innflutningshöftunum, að nokkru verulegu leyti. Eru það fyrst og fremst gjald- eyrisvandræðin, sem því valda, þ. e. í dollurum. Norðurlönd og önnur sterling-lönd liafa brugð- izt með útflutning sinn, enn sem komið er, og því höfum við þurft að sækja mikið af dýrum vörum til Bandaríkjanna, og hefur það saxað mjög á dollara-eign okkar. Vegna þessa hefur enn ek ki verið gefin út reglugerð um fækkun á leyfisskyldum innflutningsvörum, og hafa því ofangreind lög ekki náð tilgangi sínum. 58 ALÞJÓÐABANKI OG GJALDEYRISSJÓÐUR: Ríkið hefur nú þegar greitt 2 millj. dollara = 13. millj. kr. í þessu skyni, en ekki hefur að svo komnu hlotnast neinn árangur af þess- um fyrirtækjum, sem eru annars hin merkustu, enda eru þau alveg á byrjunarstigi. Útfrá þessu minntist ræðumaður á brýna og bráða nauðsyn þess, að auka útflutningsverzl- unina, þar eð hún skapaði gjaldeyrinn. Taldi hann að innflutningsbönn væru ekki til bjargar, að því er gjaldeyrinn snerti, heldur stórfelld örfun útflutningsverzlunarinnar, og hefði Al- þingi leitazt við að efla hana, t. d. er ríkið tók að sér að leigja fiskflutningaskip, til að koma aðalgjaldeyrisvöru okkar, ísfiskinum, á markað- inn. Þá kvað hann nú vel horfa um sölu síldar- afurða og lýsis. Að vísu væri okkur hagkvæm- ast að selja þessar vörur til Ameríku, enda væri sótzt eftir þeim þaðan, en hinsvegar værum við siðferðislega skyldir til að láta Breta hafa þær, a. m. k. lýsi, vegna þess að þeir kaupa af okkur mestallan fiskinn. LANDSHÖFN í NJARÐVÍK: Með lögurn um þessa höfn er stigið stórt og markvert spor í rétta átt, að byggja fiskihafnir sem næst fiskimiðunum. Verður þetta fyrirtæki reist af ríkinu, en síðan verður höfnin rekin sem sjálfseignarstofnun. Er ríkinu heimilað að taka 10 millj. kr. lán í þessu skyni, enda standi höfnin undir % stofnkostnaðar. Ráðgert er að höfnin rúmi í fyrstu 150 fiskiskip, en verði síð- ar stækkuð eftir þörfurn. ALMENN HAFNARLÖG FYRIR ALLT ÍSLAND: Með þessum allsherjarlögum falla úr gildi um 70 eldri lög um þetta efni, en ein allsherjarlög FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.