Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1946, Side 12

Frjáls verslun - 01.03.1946, Side 12
útgerðarfélögunum kleyft að færa verð togar- anna niður, er með lögunum heimilað að afskrifa þá um 20% í 3 ár, og dregst afskriftin frá skatt- (skyldum tekjum. Þá er og með lögum þessum ákveðið að koma á fót sérstakri stofnlánadeild við Landsbankann, sem hafa á með höndum útlán til þessarra fram- kvæmda, bæði skipakaupa og byggingar fisk-- vinnsluverksmiðja. Er stofnlánadeild þessi í tveimur undirdeildum, þ. e. fyrir lán í erlend- um og innlendum gjaldeyri, og lánar hún kostnaðarverðs skipa og % kostnaðarverðs verk- smiðja, en má þó ekki lána hærri upphæð en 4 millj. kr. til sama lántakanda. Endist deildinni ekki fé, hefur hún leyfi til að gefa út vaxtabréf. Utlánsvextir eru lægri en þekkzt hafa áður, eða 21/9 %’ °S lánstíminn er 10—20 ár. BYGGINGAR ÍBÚÐARHÚSA: . Um þetta efni voru samþykkt lög, sent veita byggingarsamvinnufélögum rétt til lántöku, með ábyrgð bæjar- og sýslufélaga, til íbúðarhúsa- bygginga. Lánin mega nema 85—100% af kostnaðarverði og til allt að 42 ára, en ársvextir eru aðeins 2%. Auðveldar þetta feikilega allar framkvæmdir í þessa átt. FJÁRLÖGIN: Ræðumaður drap nokkuð.á hina óhagstæðu útkomu á fjárlögunum, sem sýndu um 4 millj. kr. halla á sjóðreikningi og um 18. millj. kr. greiðsl.uhalla. Benti hann á, að þetta væri í sjálfu ‘sér ekkert óeðlilegt, með tilliti til hinna miklu útgjalda til allskonar þarflegra framkvæmda, en hér þyrfti að verða breyting á til batnaðar, ef vel ætti að fara, enda væri nú vonað, að hún stæði fyrir dyrum, eftir að hin fjölmörgu, nýju framleiðslutæki væru komin í fulla notkun og farin að gefa arð. Þá gat ræðumaður þess, að það væru einkum samgöngu- og byggingamálin, sem harðast kæmu niður á ríkissjóði, þar eð fé til þeirra hluta gæfi honum ekkert í aðra hönd, en væri aðeins til lífsþæginda fyrir þjóðina. ALÞINGI ÓVIRT: Sigurður minntist að lokum á herstöðvamálið svonefnda. Sagði liann, að í sambandi við það væri Alþingi úthúðað af fjölda inanna og jafn- vel rist níð, með því að telja það sitja á svik- ráðum við þjóðina, í sjálfstæðismálum hennar. 60 Félagsheimili V. R. hefur nú verið opnað að nýju, eftir tveggja mánaða hlé á rekstri þess. Hafa farið fram talsverðar breytingar á heimilinu, einkum í eldhúsi, og verður það framvegis rekið með matsölu, ásamt öðrum almennum drykk- jarveitingum. Þar er hægt að fá keypt fast mánaðarfæði eða einstakar máltíðir, að vild, og einnig tekur heimilið að sér lögun og framreiðslu veizlumatar. Félagið hefur leigt heimilið tveim ágætum veitingamönn- um, Steingrími Karlssyni og systur hans, Ingibjörgu Karls- dóttur, og munu þau reka það á eigin ábyrgð, en skuldbinda sig til að láta félagsmenn V. R. hafa forgangsrétt að veit- ingum, svo sem áður var. Fimmtudaginn 27. júní s.l., kl. 6'/2 siðd., hauð stjórn V.R. mörgum gestum til matarveizlu í aðalveitingasal heimilisins. Voru þar saman komnir formenn eða fulltrúar allra kaup- sýslufélaganna í hænum, kaupfélagsstjóri KRON, stjórnir starfsmannadeilda félagsins, allar starfandi nefndir þess, stjórn og varastjórn. Guðjón Einarsson form. V. R. ávarpaði gestina, hauð þá velkomna og kvað til þessa samsætis hoðið í tilefni þess, að nú yki félagið þannig við starfsemi sína, að í húsakynnum þess yrðu nú fullkomnar fæðisveitingar á boðstólum. Fór hann frain á það við alla félagsmenn, að þeir létu þetta 'heimili sitt njóta viðskipta sinna. Aðrir ræðumenn við horð- haldið voru: Sigurjón Pétursson forstj., Oddur Helgason stór- kaupm. og Hjörtur Hansson stórkaupm. Óskuðu þeir allir félaginu til hamingju með þetta nýja framtak sitt og róm- uðu mjög hinar framreiddu veitingar, sem þeir kváðust vart í annan tíma hafa fengið öllu l>etri. Borðgestir voru 42, en 9 menn gátu ekki verið viðstaddir af ýmsum ástæðum. Daginn eftir var félagsheimilið opnað fyrir alla félags- mcnn, og hefur síðan verið góð aðsókn að því, enda mun óhætt að fullyrða, að ekki mun annarsstaðar völ á heilnæm- ,ari veitingum. .Heimilið er opið allan daginn, frá kl. 8 f. h. til kl. llþý e.h. Hefur oftlega, í sumum blöðum bæjarins, verið talað um lokaða þingfundi, sem enginn fengi nokkrar fregnir af. Kvaðst liann geta lýst yíir því, að lokaður fundur hefði verið aðeins einu sinni fyrsta dag þingsins, og væri nú alþjóð kunnugt um ákvarðanir hans. Taldi hann þennan áróð- ur óefað vera gerðan í þeim tilgangi, að ala á tortryggni í garð hinnar vinveittu Bandaríkja- þjóðar, svo að við gætturn ekki sem skyldi að hættunni úr austri. „Alþingi á ekki að láta leika sig þannig. Það liefur alla tíð verið einasta vígið, sem við höfum átt í sjálfstæðisbaráttunni, — sverð og skjöldur þjóðarinnar“, sagði Sigurður Kristjánsson og lauk þar með máli sínu. FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.