Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1950, Blaðsíða 19

Frjáls verslun - 01.06.1950, Blaðsíða 19
ísland. Vöruskiptajöfnuðurinn i maímán- uði var óhagstæður um 33.4 millj kr. Nam verðmæti innfluttry vara 49,2 millj. kr., en útfluttra 15.8 millj. kr. Er vöruskiptajöfnuðurinn fyrslu 4 mánuði ársins óhagstæður um næstum 40 millj kr. Mest var keyot af Bretum í mán- uðinum eða fyrir 11,5 millj. kr., fyrir 9,5 millj. kr. frá Bandnríkjun- um, 4,7 millj. kr frá Kanada og 4,5 millj. kr. frá Danmörku. Þann 30. maí s. 1. var undirritað- ur viðskiptasamningur miBi E-lands og Ungverjalands. Er gert ráð fyr- ir að viðskiptin nemi um 3,4 miílj. kr á hvora hlið. Samkvæmt samn- ingnum er ráðgerð sala á síldar- eða fiskimjö];, lýsi, görnum, gæruin og loðskinnum til Ungverjalands, en fsl enJingar kaupi þaðan rúgmjöl og hafi -imjöl fyrir um 2,5 miBj. kr. og iðnaðarvörur fyrir 900 þús. kr. Stjórnarkosningu í Verzlunarráði íslands lauk 27. apríl s.l. Ko°ning þriggja manna í að'alstjórn fór þann- ig, að kosnir voru: Árni Árnason, kaupmaður, Sigfús Bjarnason, stór- kaupmaður. og Egill Guttormsson, stórkaupmaður. í varastjórn voru kosnir: Sveinn Help-a«on, stórkaupm., Guðmundur Guðjónsson, kaupm. og Óthar EB- ingsen, kaupm. Formaður ráðsins er nú Eggert Kristjánsson, stórkaupm., en vara- form. Árni Árnason, kaupm. Noregur. Innflutningur landsins i rnarz s. I. nam að verðmæti um 19 millj. 1. eða 6 millj. £ meira en í febrúar og 4 millj. £ meira en í marz 1949. Utflutningurinn nam hinsvegar 12 millj. £, í samanburði við 10 millj. £ í febr. og 11 millj. £ í marz 1949 Varð vöruskiptajöfnuðurinn því ó- hagstæður um 7 millj. £ í mánuðin- um. Aukning innflutningsins stafar af meiri kaupum á matvælum, vefnað- arvörum, málmum og iðnaðarfeiti. Fyrirtækið Borregaard, sem fram- leiðir aðallega trjákvoðu og pappír og er eitt stærsta iðnfyrirtæki lands- ins, byrjaði að framleiða gerfiullar- garn úr timbri fyrir 40 árum síðan. Fyrsta árið nam framleiðslan aðeins 2 tonnum. Á árinu 1949 nam notkun alls heimsins á gerfisilki og ull, búið til úr timbri, 1,2 millj. tonn, og mun sennilega komast upp í 1,5 millj. tonn á þessu ári. Eramleiðslu Borre- gaards-fyrirtækisins á þessum gerfi- efnum er nú að verðmæti um 2,5 millj. £ árlega. SvíþjóS. Fyrirtækið Bolinder Co. i Stokk- hólmi tilkynnti nýlega, að það hafi byrjað að framleiða hinn eina fuBkomna „dictaphone“, eins og það er orðað í tilkynningu fyrirtælisins. Kallast þessi nýja gerð „Agafon“. Er þessi nýja gerð af dictaphone sögð mun fullkomnari en þær gerð- ir, sem hingað til hafa þekkzt og mjög auðveld í meðförum. Mun þessi gerð vera nokkurs konar seg- ulmögnuð ræmuvél, og hægt að bera á milli í handtösku. Utflutningur landsins lil Banda- ríkjarma fyrstu 4 mánuði þessa árs nam að verðmæti 100 millj. kr., og er það helmingi meira en á sama tíma s. 1. ár. Er hér aðallega um að ræða stóraukinn útflutning á trjá- kvoðu. Eins og kunnugt er gerðu Hússar og Svíar með sér stóran viðskipta- samning skömmu eftir styrjöldina. Skyldu Rússar kaupa vörur af Sví- um fyrir 1.000 millj. kr. gegn mjög hagkvæmum skilmálum og lánskjör- um. Gildir samningurinn til ársloka 1951. Nú er talið fullvíst, að Rúss- ar muni ekki standa við skuldbind- ingar sínar samkv. samningnum, því að í lok maímánaðar höfðu þeir að- eins pantað vörur fyrir 415 millj. kr. og af þeirri upphæð hafa aðeins verið gerðar ]>antanir fyrir 115 millj. kr. síðan 1. jan. 1949, þar af ]>antanir fyrir 20—25 millj. kr. síð- an í september s. 1. Meginhluti pantana á s. 1. ári var fyrir skiji, og er nú svo komið, að llússar hafa, fullnotað þá beimild til skipakaupa, sem tiltekin var í samningnum. Talið er, að Ilússar muni ekki kaupa vörur af Svíum á þeirn tíma. sem eftir er, nema fyrir eitthvað á milli 50—70 millj. kr. Rússar hafa ekki keypt fjölda- margar vörutegundir, sem þeir þó gengust inn á skv. samningnum og sóttu fast að fá. Kröfðust þeir jafn- vel, að Svíar létu þá sitja oins að nokkrum vörum á samningstímabil- inu, sem aðrar þióðir óskuðu einnig að kaupa frá Svíþjóð. Svíar liafa orðið fyrir talsverð- FRJÁLS VERZLUN 95

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.