Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1950, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.06.1950, Blaðsíða 21
en þegar iðnaðari’ramleiöslan var mest eftir stríðið, í árslok 1948. J maímánuði höfðu 59.731.000 manns atvinnu í Bandaríkjunnm, og er það hæsta tala starfandi manna eftir stríðið, síðan í ágúst 1949. Á sama líma voru 3.057.000 manns at- vinnulausir og hafði sú tala lækkað um 458 þús. í mánuðinum. Innflutningur landsins frá Sovét- u'kjunum í marz s. 1. nam að verð- mæti 3.5 millj. dollurum, þar af nam innflutningur skinnvara 2.3 millj. dollurum. Útflutningurinn til Sovétríkjanna nam hinsvegar aðeins tæpum 50 þús. dollurum. I mánuðinum gerðu Bandaríkin ineiri viðskipti við Finnland og Júgóslavíu ein, en Sovétríkin og fylgilönd þeirra til samans. Sam- tals nam út'flutningur Bartdaríkj- anna í marz til fylgilanda Sot'étríkj- anna í Austur-Evrópu 2,7 millj. doll- urum, þar af 1,2 millj. $ til Tékkó- slóvakíu og 800 þús. $ til Póllands. Þessi lönd fluttu aftur á móti út vörur til Bandaríkjanna fyrir 4,4 mill. S og höfðu því 1,7 millj. S hagstæðan vöruskiptajöfnuð Framjeiðj'la Bandaríkjanna á málmgrýti og málmum á árinu 1949 var að verðmæti 13,9 billj. dollara. Er það 11% minna en árið þar á undan, en þó næst mesta verðmæti í sögu landsins. Um 25% af öllum vöruútflutn- ingi Bandaríkjanna árið’ 1949 fór í gegnum höfn New Yorkborgar. Talið er, að bandarískir ferða- menn muni á þessu ári eyða næst- um 220 millj. dollara í Evrópu- löndum þeim, sem aðilar eru að elnahagssamvinnu Evrópuþjóðanna. Eitthvað á milli 300—400 þús. ferðamenn munu heimsækja Evrópu árið 1950, og er það um 16% meira en á síðasta ári. Hið heimsþekkta reiknivélafirma, Burroughs Adding Machine Com- panv í Delroil. er um þessar mund- ir að senda á markaðinn nýja reikni- vél, sem tekur fram öllum öðrum skrifstofureiknivélum, sem nú þekkj- ast, eftir því sem bandarísk blöð fkýra frá. Kallast reiknivél þessi .,Sensimatic“ og er sú fullkomnasta. sem fram að þessu hefur verið fram- leidd fyrir skrifstofur. Er hún bú- in geypimörgum nýjungum, er al- gjörlega sjálfvirk og sögð mjög ein- föld í meðförum, Samkvæmt skýrslu Efnahagssam- vinnustofnunar Evrópuþjóðanna eru Bretar taldir vera sú þjóð í Vestur-Evrópu, er hafa mun mestan vöruútflutning til Bandaríkjanna og Kanada á tímabilinu 1. júlí 1950— 30. júní 1951. Er útflulningur Breta til þessara landa áætlaður 600 millj. dollara á umræddu tímabili. en á sama tímabili 1949/50 er talið að hann muni nema 505 millj. $. Næst- ir í röðinni koma Frakkar með 116 millj. $ (111 millj. $ 1949/50). Belgía og Luxemburg eru þriðju í röðinni með 110 millj. $, og þar næst Þýzkaland með 95 millj. $ (58 millj. $ 1949/50). Á árinu 1949 voru seld 2,5 millj. sjónvarpstæki í Bandaríkjunum eða um hálf milljón fleiri en framleið- endur gerðu ráð fyrir. Eftirspurn almennings eftir sjónvarpstækjum á síðari árshelming 1949 var svo mik- il, að framleiðcndur höfðu ekki und- an, og varð fólk að bíða frá 2 og upp í 8 vikur eftir sjónvarpstækj- um. 1 New-York einni er lala sjón- varpsnotenda komin yfir eina millj. Áætlað er, að innan 5 ára, þ. e. i árslok 1954, verði um 20 millj. sjónvarpstæki í notkun á bandarísk- um heimilum og muni 75 millj. manna hafa not af þeim. Ennþú er aðeins hægt að sjónvarpa hvílum og svörtum myndum, en sérfræð- ingar vinna nú ötullega að tilraun- um með litmyndir í sjónvarp, og er talið fullvíst, að litmyndasjónvarps- tæki verði komin á markaðinn inn- an skamms tíma. í árslok 1949 voru slarfræktar 98 sjónvarpsstöðvar í 58 borgum Bandaríkjanna, en í árslok 1948 voru þessar stöðvar 49 að tölu í 29 borgum. Verð sjónvarpstækja hefur lækk- að um 50% á síðastliðnum 5 árum, og búizt er við frekari verðlækkun samhliða aukinni framleiðslu. I Bandaríkjunum eru nú um 5,8 millj. bændur og hafa þeir í þjón- ustu sinni vfir 11 millj. vélknúin farartæki og dráttarvélar, eða um 4 millj. meira en fyrir síðustu slyrj- öld. Bandarískir bændur eiga nú 2,5 millj. vöruflutningabifreiðar eða um 1,3 millj. bifreiðum meira en árið 1939. Árið 1941 átlu bændur minna en 1,7 millj. dráttarvélar, en eiga nú um 3,4 millj. vélar. Sama ár áttu þeir 4,3 millj. fólksflulningabifreiðar. en eiga nú 5,5 millj. bifreiðar. Um 90% af bændum landsins eiga að minnsta kosti eina fólksbif- reið og 36% þeirra eiga að minnsta kosti eina vöruflutningabifreið, Þýzkaland. Um 3 þús. þýzk fyrirtæki og .1 þús. frá öðrum Evrópulönduni og Bandaríkjunum sýndu framleiðslu sína á aljijóðavörusýningunni í Frakfurt dagana 19.—24. marz s.l. Yfir 350 þús. geslir, þar á meðal nokkur þúsund útlendingár, heim- sótlu Leipzig-vörusýninguna, er lauk 13. marz s.l. Erlendir kaupsýslu- menn telja, að Leipzig-sýningin sé alltaf meira og meira að tapa þeim einkennum að geta kallazt alþjóða- vörusýning og beri æ meiri keim af sýningu, sem eigi að lýsa iðnaðar- framförum með tilheyrandi línurit- um. Þátttaka þjóða frá öðrum en Austur-Evrópulöndunum er mjög lakmörkuð og annmörkum háð. Þó fengu 700 fyrirtæki í Veslur-Þýzka- landi að taka þátt í sýningunni að þessu sinni. Þjóðir í Vestur-Evrópu og víðar sýna sýningu þessari æ minni áhuga, þar sem 80% af ut- anríkisverzlun Austur-Þýzkalands er við Sovétríkin og löndin í Austur- Evrópu. FRJÁLSVERZLUN 97

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.