Frjáls verslun - 01.08.1954, Side 24
Vestfirzkur stórbóndi sigldi til Kauþmanna-
hafnar. Þar kynntist hann manni, sem Brun hét.
Nokkrum árum síð'ar sá bóndi þennan mann
í Reykjavík, þekkti hann, en mundi ógjörla,
hvað hann hét, en minnti þó, að það væri eitt-
hvert litarheiti. Bóndi gekk Lil mannsins, tók
ofan og •sagði kurteislega: „Góðan daginn, herra
C'i ((
xron .
„Nafn mitt er Brun“, svaraði hinn.
„O, fyrirgefið þér“, sagði bóndi, — „ég er
nefnilega litblindur“.
★
An konunnar er karlmaðurinn eins oy höfuð
án líkama; án manrmns er konan eins ocj höfuð-
laus líkavii.
ENSKUR MÁLSHÁTTUR.
★
S'tórt fyrirtæki réði til sín sálfræðing sem skrif-
stofustjóra. Sálfræðingurinn byrjaði á því að
ráða nýjan einkaritara fyrir fyrirtækið, og for-
stjórinn fylgdist með, þegar sérfræðingurinn
lagði einföld dæmi fyrir umsækjendur um starf-
ið: „Tveir og tveir“, sagði sálfræðingurinn.
„Fjórir“, svaraði fyrsta stúlkan fljótt.
„Það gæti verið 22“, svaraði önnur stúlkan.
„Það gæti verið fjórir og einnig tuttugu og
tveir“, svaraði þriðja stúlkan.
Þegar síðasti umsækjandinn var farinn út,
sneri sálfræðingurinn sér að forstjóranum og
sagði: „Þarna getur þú séð skýrt dæmi þess, hve
áhrifamikil sálfræðin er við mannaráðningar.
Fyrsta stúlkan svaraði rétt. Sú önnur í röðinni
var tortryggin. Þriðja stúlkan var komin í sjálf-
heldu, en ætlaði ekki að láta hremma sig. Hver.ja
myndir þú velja?“
Forstjórinn svaraði umyrðalaust: „Eg myndi
ráða þá Ijóshærðu með bláu augun“.
★
Vér notum aðeins lítinn liluta lieila vors enn-
þá. Ónotaði hlwtinn er ótakmarkaður.
CIIARLES MAYO.
Kennarinn skrifaði á einkunnarspjald Maríu
eftirfarandi athugasemd: „Iðin, gáfuð, en talar
of mikið“.
Á bakhlið einkunnarspjaldsins, þar sem íaðir
Maríu viðurkenndi móttöku ]>ess, skiifaði hann:
„Ef þér eigið leið um, þá ættuð þér að heim-
sækja móður hennar“.
★
Það er hetra að lifa einn dacj eins og Ijón, held-
ur en þúsund ár eins ocj svín.
BENTTO MUSSOLINI.
★
Það var komið að þeim tíma, að hinn nafn-
togaði heiðursgestur héldi ræðu sína. Formaður
félagsins leit yfir salinn, þar sem fólkið sat við
borð sín, drakk kaffi og rabbaði saman. Svo
sneri hann sér að ræðumanni og sagði:
„Viljið þér byrja á ræðu yðar núna, eða eig-
um við að lofa fólkinu að skemmta sér svolítið
lengur?“
★
Ef náttúran hefur gefið manni eitthvað um-
fram ctðra menn, þá á maður það ekki lengur
sjálfur. Heimwrinn á það.
HALLDÓR KILJAN LAXNESS.
------------------------------------------------
„FRJALS VERZLUN"
Utgejandi: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Formaður: GufSjón Einarsson.
Ritstjórar: Gunnar Magnússon og Njáll Simonarson.
Ritnefnd: Birgir Kjaran, formaður. Gunnar Magnússon,
Ingvar N. Pá.lsson, Njáll Símonarson, Ólafur I.
Hannesson, Oiiver Steinn Jóhannesson og Þor-
björu Guðmundsson.
Skrifstofa: Vonarstræti 4, 3. hæð, Reykjavík. Sími .'i‘293.
YÍKIN gsprent
>_____________________________________________/
100
fhjáls verzlun