Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 5
Sigurgeir Sigurjónsson lirl.: Vörumerkið og þýðing þess í verzlun og viðskipium Enda þótt gera megi ráð fyrir því, að flestir hafi gert sér nokkra grein fyrir þýðingu vöru- merkja í sambandi við sölumátt þeirra á sam- keppnissviðinu, þá er ég þó alls ekki viss um, að menn geri sér almennt fyllilega grein fyrir því, hversu vörumerkið er að ýmsu leyti mikill þáttur í öllu daglegu lífi manna nú á tímum. Segja má, að svo að segja hver maður sé frá því að hann vaknar á morgnana og þar til hann sofnar á kvöldin í sífelldri snertingu við einhver vörumerki. Ég las um daginn auglýsingu, sem var á þessa leið: „Dagurinn þyrjar vel með Gillette“. Mér datt. því í hug, að nota þessa auglýsingu, sem tilefni þess, að rekja hér nokkur vörumerki, sem kunna að verða á vegi manns frá því að maður rakar sig á morgnana og þar til maður kemur heim úr vinnunni að kvöldi. — Eg vil þó taka það skýrt fram, að þau vörumerki, sem nefnd verða eru alls ekki nefnd í auglýsingaskyni, lield- ur aðeins tekin af handahófi. Eftir að hafa rakað sig með Gillette er ekki ólíklegt, að maður bursti á sér tennurnar með Colgate eða Pepsodent. Síðan ber maður e. t. v. í hár sitt Brylcreem eða Old Spice. Maður held- ur áfram að klæða sig og fer t. d. í Novia eða Estrella skyrtu og hnýtir á sig Jaco cða Botany bindi. Við lítum á Omega úrið okkar og flýtum okkur fram í eldhús til þess að fá okkur Blöndahls eða Braga kaffi með Ludvig Davids kaffibæti. Við smyrjum okkur Lorelei kex með Sanitas sultu og fáum okkur svo á eftir annað- hvort Chesterfield eða Camel, en ekki er ólík- legt að við kveikjum í sígarettunni annaðhvort með Ronson eða Zippo. — Þegar við höfum matazt setjuin við svo upp Battersby eða Borsa- lino og ef við erum svo heppnir að eiga bifreið, þá ökum við í vörumerkjunum Ford, Chervolet, Buick eða SJcoda. — Þegar við komum niður á skrifstofuna og höfum opnað dyrnar með Yale lyklinum, þá tökum við að skrifa bréfin okkar, annaðhvort með Slieajjer, Parlcer eða Pelikan. — Aðrir eru þeir, er kunna betur við að lesa bréfin fyrir t. d. á Dictajon eða Grundig, en vél- ritunarstúlkan tekur við og skrifar bréfin á Remington, Rheinmetall eða IBM. — Að loknu erfiðu dagsverki er kannske ekki úr vegi að fá sér einhverja hressingu og eigi það að vera eitt- hvað sterkt, þá drekkum við vörumerkin BlacJc & White, JoJmnie Walker eða Gordons Dry Gin. Þannig hefur þá dagurinn liðið í sífelldri snert- ingu við einhver vörumerki, frá morgni til kvölds, og voru þó færri vörumerki tilgreind, en hægt væri að nefna. Uppruni vörumerkja. Notkun vöruinerkja er ævagömul. Ekki er þó hægt með neinni fullri vissu, að fullyrða hvenær menn tóku fyrst upp notkun þeirra. Víst er þó, að Forn-Grikkir og Forn-Rómverjar not- uðu vörumerki í sambandi við listiðnað sinn. Sama er að segja um Forn-Kínverja í sambandi við postulínsiðnað þeirra. Engar öruggar heim- ildir liggja þó fyrir um, hvaða gildi þessi vöru- merking hafði lagalega á þeim timum. A miðöldum voru einnig notuð vörumerki, en á þeim tímum voru vörumerkin einungis notuð til þess að sanna eignarrétt manna á vörum og varningi. Siglingar og verzlun voru þá hættu- legri en nú er og kom slík vörumerking sér því afar vel, t. d. ef um skipströnd eða sjórán var að ræða. I slíkum tilfellum var þá auðvelt fyrir eiganda að sanna eignarrétt sinn, ef varan var merkt merki eiganda. Dæmi um þessa teg- und eða notkun vörumerkja höfum við hér á landi nú einmitt fyrir 3—4 árum heyrt getið um í fréttum blaða og útvarps. Er hafin var FHJÁLSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.