Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 10
 Birgir Kjaran, hagjr.: /. M E N N 0 G M A L E F N I . :áH*L. Ludwig Erhard og „ Hver er maðurinn? „Það þarf töluverðan kjark til þess að halda til streitu því, sem er þjóðhagslega skynsamlegt.“ Ludwig Erhard í bók sinni „Ókleifur heimur“ kemst Adenau- er kanslari svo að orði: „Að mínu áliti þurfa stjórnmálamenn að hafa tvennt til að bera: Raunhæft mat á viðfangsefnunum og nokkurs konar skyggnigáfu, hæfileika til þess að sjá fyrir, livernig þróun mála muni að líkindum verða í framtíðinni.“ Þessi skilgreining gæti verið brot úr mannlýsingu dr. Ludwigs Erhards efnahags- málaráðherra Þýzkalands, mannsins, sem talinn er eiga drýgstan þáttinn í „þýzka kraftaverkinu“ svonefnda. Áður en saga „kraftaverksins“ verð- ur sögð, er eðlilegt að fara nokkrum orðum um höfund þess. Ludwig Erhard er frankverskra bændaætta, fæddur 4. febrúar 1897 í smábænum Fiirth í grennd við Nurnberg. Gekk hann þar í barna- og menntaskóla, en há- skólanám í rekstrar- og þjóðhagfræði stundaði hann í Frankfurt. am Main. Að námi loknu gerðist hann kaupmað- ur um tíma, en varð síð- ar starfsmaður og að lok- um forstjóri stofnunar- innar „Wirtschaftsbeob- achtungen der Deutsch- en Fertigwaren“, er var nokkurs konar markaðskönnunarstofnun með aðsetri í Núrnberg. Árið 1942 lét hann af póli- tískum ástæðum af þessu starfi, gerðist efna- hagsmálaráðunautur ýmissa einkafyrirtækja og vann á þeim vettvangi til ófriðarloka, en þá hófust stjórnmálaafskipti hans. I október 1945 varð hann atvinnumálaráðherra í Bayern og var Þýzka kraflaverkið” það fram á árið 1946. Þá tók hann árið 1947 við prófessorsembætti við háskólan í Miinchen, en í marz 1948 var hann útnefndur forstjóri efnahagsmálastjórnar Þýzkalands, en þau mál, sem og önnur málefni Þýzkalands voru um þær mundir enn í höndum hernámsveldanna. Árið 1949 varð hann efnahagsmálaráðherra þýzka sambandslýðveldisins, og gegnir hann því embætti enn í dag, auk þess sem hann er vara- kanslari ríkisins og því staðgengill og líklegasti arftaki Adenauers kanslara. Erhard er mikill andlegur og líkamlegur at- gervismaður. Enda þótt hann hafi í bernsku fengið lömunarveiki og í fyrri heimsstyrjöld særzt við Ypres, er starfsþrek hans og atorka með fádæmum. Er hann jafnan setztur við skrifborð sitt í ráðuneytinu og tekinn til starfa kl. 8 á morgnana, og er vinnudagur hans oftast bæði langur og strangur, enda segja kunnugir, að hann eigi fá hugðarefni önnur en starfið. Ymsir stjórnmálamenn eru kunnir fyrir tóm- stundaiðju sína. Þannig fer orð af Churchill sem málara, Mao Tse-tung þykir allgott ljóðskáld og Adenauer ræktar rósir á kyrrlátum stundum, en Erhard bara vinnur, og ann sér aðeins stöku sinnum hvíldar frá önn dagsins við að hlusta á klassíska tónlist. Auðvitað er svo hagfræðin enn hugðarefni hans og tíðrædd á heimilinu, því kona hans er hagfræðinguf að menntun, og dótt- ur sinni hefur hann valið hagfræðina sem há- skólagrein. Erhard hefur samið tvær bækur og báðar um hagfræðileg efni: „Deutschlands Rúckkehr zu Weltmarkt“ (1954) og „Wohlstand fúr alle“ (1957), og fjalla þær jöfnum höndum um efnahagsmál Þýzkalands og hagfræðikenn- ingar hans sjálfs. Erhard er talinn mjög blátt áfram í fram- komu, og hefur hann aflað sér álits og vinsælda bæði innanlands og utan fyrir að vera djarf- mæltur og blessunarlega laus við allt diplómat- 10 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.