Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 18
Iðnaðarbankinn
fimm ára
Iðnaðarbankinn tók til
starfa 25. júní 1953, sam-
kvæmt lögum samþykkt-
um á Alþingi 29. des. 1951.
Forgöngu um stofnun
bankans liöfðu Landssani-
band iðnaðarmanna og Fé-
lag ísl. iðnrekenda.
Illutafé hans er 6,5 millj-
ónir króna. Af því fé lagði
ríkissjóður fram 3 milljón-
Guðmundur Ólafs, jr> samtök iðnaðarmanna
bankastjón og iðnrekenda söfnuðu 3
milljónum, en hálfrar milljónar kr. var aflað með
almennu hlutafjárútboði, og eru þau bréf flest eign
iðnaðarmanna. Munu hluthafar í bankanum vera
nálægt einu þúsundi.
Iðnaðarbankanum er ætlað það hlutverk að reka
bankastarfsemi, er sérstaklega miði að því að
styrkja verksmiðjuiðnað og handiðnað í landinu.
Á undangengnum starfsárum hefur starfsemi
bankans komizt smám saman á æ traustari grund-
völl, en stofnunin naut frá upphafi trausts og vin-
sælda, ekki aðeins iðnrekenda og iðnaðarmanna,
heldur og almennings, og hefur því, þótt ung sé,
þegar getað unnið iðnaðinum í landinu hið mesta
gagn. Ilafa þó þröng húsakynni alla tíð háð eðlilegri
þróun, einkum fyrri helming þess fimm ára tímabils,
sem nú er að baki.
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika á sparifjármarkaðnum
uxu innstæður í Iðnaðarbankanum meir á síðast-
liðnu ári, heldur en nokkru sinni fyrr. í árslok 1956
nam innstæða á sparisjóðsreikningi bankans 48,8
millj. króna, en 61,4 millj. króna í árslok 1957.
Nernur aukningin því 12,6 millj. króna. Á sama
tíma jókst innstæða á hlaupareikningi úr 22,7 í
24,1 millj. króna.
Iðnaðarbankinn á ágæta lóð við Lækjargötu,
og er í ráði að byggja þar stórhýsi fyrir starfsemi
bankans. Er þetta hinn bezti staður, í hjarta bæj-
arins, á mótum Lækjargötu og Vonarstrætis, er síðar
verður breikkað. Ekki stendur á öðru en fjárfest-
ingarleyfi til þess að unnt sé að hefjast handa um
bygginguna.
Fyrri helming undangengins fimm ára tímabils
Nokkrar kaupstefnur og vörusýningar,
sem haldnar verða síðari hluta
ársins 1958
Austurríki:
Vín: International (Auturnn) Trade Fair.
7.—14. sept.
Graz: International Autumn Fair. 27. sept. —
5. okt.
Belgia:
Briissel: Universal and International Exhibition.
17. apríl — 19. okt.
England:
Manchester: British Fair Industry and Com-
meree. 4.—19. júlí.
Frakkland:
París: 45th International Motor and Cycle
Shovv. 2.—12. okt.
Metz: International Trade Fair. 27. sept —
13. okt.
Holland:
Haag: 76th „Damesbeurs“ (Ladies’ Fair). 13.
sept. — 10. okt.
Júgóslavía:
Zagreb: ínternational Autumn Fair. 6.—21. sept.
Sviss:
Geneva: Second Atomic Energy Exhibition.
1.—14. sept.
Sviþjóð:
Stokkhólmur: St. Erik’s Fair. 30. ág. — 14. sept.
ÞýzJcaland:
Köln: Tnternational Autumn Trade Fair: House-
hold Goods and Ilardware. 5.—8. sept. Textile
and Clothing. 14.—16. sept.
Frankfurt: International Autumn Fair. 7.—11.
sept.
Leipzig: International Autumn Fair. 7.—14. sei>t.
Berlín: 9th German Industrics Exhibition. 13. —
28. sept.
var Helgi H. Eiríksson bankastjóri Iðnaðarbankans,
cn síðan hefur Guðmundur Ólafs verið bankastjóri.
Stjórn bankans skipa nú:
Formaður Kristján Jóh. Kristjánsson, forstjóri;
ritari Sveinn Guðmundsson, forstjóri; varaformaður
Magnús Ástmarsson, prentari; meðstjórnendur
Guðmundur H. Guðmundsson, bæjarfulltrúi og
Ilelgi Bergs, verkfræðingur; voru þeir allir endur-
kosnir á síðasta aðalfundi.
18
TRJALS VERZLUN