Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 14
Færiband í
iiskmóttöku-
salnum.
í apríl síðastliðnum brugðu fréttamenn Frjálsr-
ar Verzlunar sér til Keflavíkur og var ferðinni
heitið í hina nýju flökunarstöð, sem frystihúsin
þar í bæ reka sameiginlega. Flökunarstöð þessi
er að ýmsu leyti athyglisverð. Þar hefur verið
tekin í notkun hin fullkomnasta tækni sem þekk-
ist við fiskvinnslu, sem að sjálfsögðu er mark-
verð, en á sér þó ýmis hliðstæð dæmi hér á landi.
Það sem sérstaklega vakti áhuga blaðsins var,
að stöð þessi er rekin sameiginlega í þágu fimm
frystihúsa í Keflavík til þess að reyna að nýta
sem bezt þá möguleika, sem vélræn flökun og
vinnsla fisksins veitir.
Heimsóbn í l
í Keflavík
Það mun hafa verið upphaf þess almenna
áhuga, sem vaknaði meðal íslenzkra fisk-iðn-
fyrirtækja, að Baader-verksmiðjurnar í Þýzka-
landi sýndu fullkomna vél til flökunar á fiski á
sýningu fiskiðnaðarins í Kaupmannahöfn sumar-
ið 1956. Að vísu hafði þegar á vertíðinni 1956
verið tekin í notkun ein flökunarvél í Vest-
mannaeyjum, en óhætt er að fullyrða, að augu
manna hafi ekki almennt opnazt fyrir mögu-
leikum þeim, sem vélarnar veittu íslenzkum fisk-
iðnaði, fyrr en á sýningunni í Kaupmannahöfn.
Varð það úr, að mörg af hinum stærri frysti-
húsum festu kaup á flökunarvélum strax um
haustið 1956.
í Keflavík háttar svo til, að mestur hluti
ársframleiðslunnar af fiski er unninn í frystihús-
unum þar í bæ á tímabilinu janúar—maí. Þar
sem hvort tveggja er, að fiskvinnslan stendur
yfir aðeins fjóra mánuði og frystihúsin mörg
um takmarkaðan afla, varð mönnum ljóst, að
óhagkvæmt yrði, að hvert frystihús um sig
Fremst á myndinni til vinstri
sést færibandið. sem flytur flök-
in siðasta spölinn að kössunum.
I baksýn eru roðflettingarvél-
arnar og önnur flökunarvélin.
Á myndinni til hægri sjást flök-
unarvélarnar með hausskurð-
arvélunum og færibönd með
þrepum, sem flytja fiskinn að
vélunum.
ÖIl tilhögun miðar að sem mest-
um vinnusparnaði.
14
FR.IALS VERZLUN