Frjáls verslun - 01.06.1958, Blaðsíða 8
Til Japcms í verzlunarerindum
Viðtal við Þórhall Þorláksson, kaupmann.
Þ;ið mun sjaldgæft, að
íslenzkir verzlunarmenn
heimsæki hin fjarlægari
Austurlönd í viðskipta-
erindum, enda hafa við-
skipti okkar við þau lönd
verið lítil og sjaldan gefið
ástæðu til slíkra ferða.
Nú í seinni tíð hafa þó
Tslendingar tekið upp
nokkur viðskipti við Jap-
ani, en af þeim hefur ver-
ið keypt verulegt magn
af netjum síðustu árin. Vegna þessa innflutnings
fór Þórhallur Þorláksson, kaupm. í ferð til Jap-
ans á þessu vori og þótti blaðinu ástæða til
þess að gefa lesendum sínum tækifæri að fá
nokkra hugmynd um það, sem liann sá og
kynntist í Japan. Varð hann vinsamlegast við
tilmælum blaðsins um að segja okkur frá ferð
sinni:
Hver var tilangur jerðarinnar?
Erindi mitt til Japan var fyrst og fremst að
treysta viðskiptasambönd mín þar, og um leið
að reyna að ná hagstæðari kjörum á innkaup-
um mínum þaðan. Ég hef um nokkur undan-
farin ár flutt inn net frá Japan og þessi inn-
flutningur er nú orðinn svo stór þáttur í rekstr-
inum hjá mér, að ég taldi fulla ástæðu til þess
að leggja í þetta ferðalag.
Hvernig hefur þér reynzt að skipta við Ja'pani?
Ágætlega. Þeir hafa reynzt mér bæði áreiðan-
legir og góðir bakhjarlar í harðri samkeppni.
Ef ég á að benda á eitthvað neikvætt, þá er
það fyrst og fremst fjarlægðin, sem veldur erfið-
leikum í viðskiptunum. Sendingarnar eru nokk-
uð lengi á leiðinni, svo að við verðum að leggja
pantanir inn með 4—5 mánaða fyrirvara til
þess að vörurnar komi á réttum tíma.
Þú hefur að sjálfsögðu séð verksmiðjur og alls
konar framkvœmdir þar eystra. Hvernig leizt
þér á tœknina hjá þeim?
Ég hef orðið þess var, að margir hugsa sér
japanskan iðnað sem nokkurs konar handa-
vinnu. En þessu er öðru vísi háttað. Japanskar
verksmiðjur eru búnar fullkomnustu vélum og
alls staðar sér maður tækni, sem ekki gefur eftir
því, sem maður sér á Vesturlöndum. Og iðnað-
arframleiðsla Japana er mjög fullkomin. En
vinnuaflið er þar ódvrara en á Vesturlöndum
og hefur það að sjálfsögðu sín áhrif á val vinnu-
aðferða.
Þú nefndir iðnaðarframleiðsluna. — Þú hefur
e. t. v. lcomizt á vörusýningu meðan þú dvaldir
í Japan?
Já, ég var svo heppinn að komast á vöru-
sýnignu í Osaka, þar sem fjölmargar þjóðir sýndu
framleiðslu sína. Eins og fyrri daginn bar mest
á sýningarskálum Rússa og Bandaríkjanna. Ég
liafði aðeins einn dag til þess að skoða sýninguna
og sá því minna en ég hefði óskað.
Hvað fannst þér eftirtektarverðast af japönsku
framleiðslunni?
Það, sem kom mér mest á óvart, var útlit og
allur frágangur á japönsku heimilisvélunum.
Þær eru fallegri og virðast sízt lakari en það
bezta, sem ég hef séð af vestrænni framleiðslu.
Þeir framleiða einnig útvarps- og sjónvarpstæki,
sem mér leizt vel á. Eins og flestir vita, fram-
leiða Japanir mikið af „optiskum“ vörum, svo
sem myndavélar, sjónauka o. fl., og eru vörur
þær mjög að ryðja sér til rúms á heimsmarkað-
inum. Síðast en elcki sízt er alls konar framleiðsla
8
krjáls verzlun