Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1958, Síða 16

Frjáls verslun - 01.06.1958, Síða 16
og hins vegar flökunar- eða vélasalinn. í aðgerð- arsalnum er f'arið innan í fiskinn og fer fiskur- inn með haus inn í vélasalinn á færibandi, en slógið og lifrin fara í þrær, sem síðan eru tæmd- ar á þar til gerða tankbíla, sem flytja hráefnið í verksmiðjur þær, sem nýta það. Þegar fiskurinn berst inn í vélasalinn, tekur „hausarinn" fyrst við honum og leggur fiskinn í hausskurðarvélina. Úr þeirri vél tekur „flakar- inn“ fiskinn og stingur honum inn í „vélakram- ið“. Síðan ekki söguna meir, fyrr en út kemur hryggurinn um botn vélarinnar, en flökin berast á færiböndum út um báðar hliðar hennar og falla á nýtt færiband, er ber þau að roðflettingarvél- inni, sem sviptir þau roðinu. Falla flökin síðan á enn eitt færibandið og berast á því að alúmín- kössum, sem þau eru lögð í til flutnings til frysti- húsanna. Þegar fréttamennirnir höfðu skoðað stöðina, hittu þeir framkvæmdastjórann, Huxley Ólafs- son, og spurðu hann nokkurra spurninga um rekstur flökunarstöðvarinnar. Er eftirfarandi frásögn byggð á svörum hans. Þegar hvor vél vinnur með fullum afköstum, flakar hún á við 18 flatningsmenn, þ. e. full af- köst stöðvarinnar eru sem svarar afköstum 36 flatningsmanna. En í stöðinni vinna á vertíð 14—15 menn, og eru þá meðtaldir 2 bílstjórar, sem aka flökunum til frystihúsanna, verkstjóri, aðgerðarmenn og vélamenn. Liggur í augum uppi hver vinnusparnaður er af notkun vélanna. En sagan er ekki öll sögð þar með. Vélarnar eru ákaf'lega dýrar í innkaupi og gera má ráð fyrir, að þær þurfi að afskrifa á tiltölulega fáum árum. Þessi liður er svo stór í kostnaðinum, að sparnaðurinn í mannahaldi vegur ekki upp á móti afskriftunum. Það, sem ríður baggamun- inn, er betri nýting hráefnisins. Vélarnar flaka betur en mannshöndin og ná meira verðmæti úr fiskinum. Huxley Olafsson sagði, að reynslan af vélun- um í flökunarstöðinni væri eftir vonum og liefðu engir meiri háttar gallar komið í ljós. Um framtíðarhorfur á notkun flatningsvéla sagði hann: „Þegar tillit er tekið til sparnaðar á vinnu og betri nýtingar, eiga þessar vélar tvímælalaust framtíð fyrir sér, en þó aðeins þar sem nægilegt hráefni fæst, til þess að vélarnar geti unnið með nokkurn veginn fullum afköstum.“ ERLENDAR LÁNTÖKUR Lán frá Vestur-Þýzkalandi Ilér fer á eftir listi yfir þær vörur, sem gert er ráð fyrir að fluttar verði inn frá E.P.U.-löndum fyrir andvirði vestur-þýzka lánsins, scm ríkisstjórn- in tók fyrir nokkru og undirritað var hinn 11. apríl s. 1. 1. Landbúnaðarvélar, einnig jarð- vinnsluvélar, sérstaklega til jarða- bóta og ræktunar, svo og vara- hlutir og áburður DM 1,8 millj. 2. Fyrir sjávarútveginn a) fiskiskip, svo og vélar og tæki í þau b) varahlutar í a) c) alls konar fiskveiðiútbúnaður, þar á meðal veiðarfæri, efni í net, trossur og stálvírar DM 2.4 millj. 3. Vörur úr járni og stáli (hráefni, hálfunnar og fullunnar vörur, svo sem rör og „fittings“, járnvörur til bygginga, skrúfur og rær) auk þess vörubifreiðir og vélar DM 3,6 millj. 4. Rafmagnsútbúnaður, þar með efni í há- og lágspennulagningar DM 0.6 millj. DM 8.4 millj. Innflutningsleyfi og greiðsluheimildir fyrir þess- um vörum eru veitt á sama hátt og almennt tíðkast. Lán frá Bandaríkjunum í samningi um kaup á landbúnaðarafurðum frá Bandaríkjunum, sem undirritaður var 3. maí s. 1., er gert ráð fyrir vörukaupum sem hér segir. Ilveiti, hveitimjöl $ 0.8 millj. Bómull — 0.2-- Maís, kurlaður maís, maísmjöl — 0.7-- Bygg — 0.5--- Tóbak — 0.4-- Ávextir — 0.3-- Flutningsgjöld — 0.1---- Samtals $ 3.0 millj. Er hér um að ræða afurðir, sem til eru um- frambirgðir af í Bandaríkjunum. Undir ávaxta- liðinn falla sveskjur, döðlur og gráfíkjur, og af niðursoðnum ávöxtum blandaðir ávextir, perur, trönuber (cranberries) og ferskjur. Ennfremur er heimilt að kaupa sítrónur samkvæmt fyrra árs samningi. 16 FRJALSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.