Frjáls verslun - 01.06.1958, Side 28
Bandarísk kona segir frá:
Ilngur maður, sem koniinn var til að heimsækja
lö ára gamla dóttir rnína, sagðist vera frá New
York. Ég sagði honum þá, að við hjónin hefðum
búið þar þegar við vorum nýgift fyrir 18 árum
síðan. Ég sá að undrunarsvipur kom á andlit unga
mannsins. Næsta morgun sagði dóttir mín ásak-
andi: „Mamma, J)ú varst nærri búin að eyðileggja
allt saman fyrir mér. Ég var búin að segja hon-
um, að ég væri 18 ára, svo að nú varð ég auðvitað
að bæta við, að ég væri ekki hjónabandsbarn“.
SS&
Alexander:
Fáar hetjur fornaldar hafa verið dáðar til jafns
við Alexander mikla. Mun J)ctta eiga sinn J)átt
í því hve Alexandersnafnið er algengt.
En fleiri hafa gert nafnið frægt, en sá hinn mikli
frá Makedóníu, ])ótt með nokkuð mismunandi
hætti sé — mun hér getið nokkurra.
Rússar hafa átt þrjá keisara með Jæssu nafni,
Alexaijder I., II. og III. Þóttu þeir allir harð-
stjórar.
Páfar hafa borið nafnið, og er Alexander VI. fræg-
astur. Dó hann af eitri, sem hann hafði sjálfur
blandað, en talið er að hann hafi ætlað kardínálum
sínum blönduna. Sonurinn, Cesar Borgía, er frægur
fyrir hin óvönduðu meðöl, sem hann notaði í við-
leitni sinni til að leggja undir sig Ítalíu.
Serbar og Júgóslavar hafa átt sinn Alexander I.
og annan númerslausan. Báðir voru þeir myrtir.
Skotar hafa átt nokkra konunga með nafni
Alexanders og svo mætti lengi telja, J)ótt haldið
væri áfram með kóngafólk eitt saman.
Að lokuin má minna á Alcxandríu, borgina frægu,
sem sjálfur Alexander mikli stofnaði við Nílarósa
fyrir 2290 árum og gaf nafn sitt.
Vegageið með amerískum hraða:
Alaska Jijóðvegurinn tengir Alaska við vega-
kerl'i Ivanada og Bandaríkjanna. Var hann
byggður í miklum flýti á árinu 1942, einkum
til að greiða fyrir ílutningum til bandarísku
herjanna á Aleutaeyjum. Vegurinn nær frá
Dawson Creek í British Columbia til Fairbanks
í Alaska; samtals er vegurinn tæplega 2.700 km.
á lengd.
ssss
„Fer fram á að fá orlof mitt framlengt um fimm
daga. Hefi fundið engil“. Svohljóðandi símskcyti
sendi amerískur sjóliði til yfirmanns síns.
Hann fékk svarskeyti um hæl: „Tveggja daga
framlenging sam])ykkt, svo þér gefist kostur á að
ná til jarðar aftur“.
SSSs
Negraprestur var að tala yfir moldum sóknar-
barns síns: „Varla er hægt að segja að hann hafi
verið góður maður, ])ví hann gaf ekki Jesú hjarta
sitt, en hann var, ef ég mætti segja svo, mjög
virðingarverður syndari“.
28
FIiJÁLS VERZLUN