Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1958, Blaðsíða 2

Frjáls verslun - 01.10.1958, Blaðsíða 2
Guðlaugur Þorvaldsson, viðskiptajrœð 'mgur: Heimsókn í þýzku hagstofuna Á síðustu áratugum hafa flestar menningar- þjóðir gert það að kappsmáli sínu að koma góðu skipulagi á skýrslusöfnun um atvinnuvegi sína og aðra þætti þjóðlífsins. Það virðist eiga jafnt við um þær þjóðir, sem lúta mikilli opinberri forsjá í efnahagsmálum, og hinar, sem kenndar eru við meira frjálsræði einstaklingsins. Orsak- irnar eru margar, en verða ekki raktar hér. Á það skal þó bent, að flestir aðilar í hverju þjóðfé- lagi hafa þörf fyrir „statistík“, og þess vegna á statistíkin erindi til flestra. Hagþekkingin krystallast í tölum, og þcssir krystallar eru nauð- synlegir hverjum þeim, sem um hagmál fjallar — löggjafanum við lagasetningu, starfsmönnum hins opinbera við stjórnarstörf, forstjóranum, sem skipuleggur rekstur fyrirtækisins og ein- staklingnum, sem ber eigin hag fyrir brjósti. Statistíkin fræðir bæði um aðferðirnar við að krystalla þessar tölur (tölfræði) og niðurstöð- urnar, sem fást (haglýsing). Hér á landi eru þessi mál á byrjunarstigi mið- að við það, sem er hjá mörgum hinna fjölmenn- ari nágrannaþjóð. Á sumum sviðum stendur íslenzk statistík þó á gömlum merg, og ástæða er til að tengja vonir við ýmsa nýja þætti henn- ar, sem eru að ná þroska. Eitt af því sem mest ríður á í því sambandi fyrir þjóðfélagið í heild, er það, að vel takist til um skipulagningu hinna tölfræðilegu mála, þannig að hver króna, sem til þeirra er varið, gefi ríkulegan ávöxt. Hafa verður þó í huga, að fáar jurtir dafna vel, ef ekki er hlúð vel að þeim á vaxtarskeiðinu. Þessari stuttu grein er ekki ætlað að fjalla um íslenzka statistík, heldur heimsókn í þýzku hagstofuna, sem er miðstöð slíkra mála í Vest- ur-Þýzkalandi. I kynnisferð, sem við fórum þrír — viðskiptafræðingarnir Svavar Pálsson, löggilt- ur endurskoðandi, Guðmundur H. Garðarsson, skrifstofustjóri Iðnaðarmálastofnunarinnar og undirritaður — að nokkru leyti á vegum I C A (International Cooperation Administration), dvöldumst við meðal annars hátt á aðra viku í þýzku hagstofunni í Wiesbaden. Vakti hún á ýmsan hátt athygli okkar, enda leggja Þjóðverjar mjög mikið upp úr sinni statistík. Glæsileg bygging — jagurt umhverfi. I fögru umhverfi við rætur Taunus-hæðanna er Wiesbaden, höfuðborgin í Hessen, einu sam- bandsríkjanna, sem mynda Vestur-Þýzkaland. Wiesbaden er J)ekkt borg margra hluta vegna og mikill ferðamannabær með um 250 þús. íbúa. Vöxt sinn og viðgang á borgin m. a. að þakka 27 uppsprettulindum, sem hafa gert Wiesbaden að einum frægasta heUsulindabæ Þýzkalands. Er vatnið notað bæði til drykkjar og baða í baráttunni gegn gigt og ýinsum efnaskiptasjúk- dómum. Loftslagið er milt og mjög hlýtt, en fyrir marga er það of rakt, og landslagið er ákaflega vinalegt. Örskammt er niður að Ilín og til smábæjanna í vínyrkjuhéraðinu þar. Eitt af því, sem setur svip á borgina, eru nýtízkulegar byggingar, svo sem Rhein-Main sýningarhöllin, ný verzlunarhús og gistihús við Wilhelmstrasse og Kirchgasse og síðast en ekki sízt þýzka hagstofan—Statistisches Bundesamt, sem vekur athygli allra, sem til Wiesbaden koma. Þessi hús eru mjög stílhrein og einíold í sniðum og stinga því í stúf við hinar fögru byggingar frá eldri tíma, en njóta sín vel innan um hina vel hirtu og fögru garða við Eriedrich-Ebert- Allée og Wilhelmstrasse. Á sama hátt og Wiesbaden er borg andstæðn- anna í byggingarlist er hún það líka í lifn- aðarháttum fólks. Æskan virðist hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá Bandaríkjamönnum, sem 2 PRJÁLS VEllZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.