Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1958, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.10.1958, Blaðsíða 20
Landssamband ísienzkra verzlunarmanna (L.Í.V.) 1. júní 1957 var Lands- sambartd íslenzkra verzlun- armanna stofnað í Reykja- vík fyrir forgöngu Verzlun- armannafélags Reykjavík- ur. Að stofnuninni stóðu níu starfandi félög skrif- stofu- og verzlunarmanna í landinu. Stofnun L. í. V. átti sér alllangan aðdraganda. Ilafði lengi verið áhugi á því innan V.R. að mynd- uð yrðu heildarsamtök skrifstofu- og verzlunar- fólks í landinu. Það er þó fyrst árið 1955, eftir að V.R. varð hreint launþegafélag, að verulegur skriður komst á málið, enda vafasamur ávinningur að landssamtökum, sem vinnuveitendur áttu aðild að, ásamt launþegum. Einn aðalhvatamaður að stofnun L.Í.V. var fyrr- verandi formaður V.R. Guðjón Einarsson og mun hann hafa verið með þeim fyrstu sem fram komu með þá liugmynd. Þess má geta, að 1928 var stofnað Samband verzlunarmannafélaga á íslandi. Aðalhvatamaður að stofnun þess og formaður var Egill Guttormsson, núverandi stórkaupmaður í Reykjavík, en hann var um árabil ein aðaldrif- fjöður í félagsmálum verzlunarmanna. Þessu sam- bandi varð ekki langra Iífdaga auðið. Var það og reist á öðrum grundvelli en L.Í.V. nú, þar sem að því stóðu aðilar, sem áttu hinna ólíkustu hags- muna að gæta. Um tilgang L.Í.V. segir svo í lögum þess: Til- gangur sambandsins er að efla samtök skrifstofu- og verzlunarmanna, vera málsvari þeirra og hafa á hendi forystu í hagsmunamálum þeirra. Tilgangi sinum hyggst sambandið ná með því að: 1. Gangast fyrir stofnun verzlunarmannafélaga hvar sem er á landinu og greiða fyrir upptöku slíkra félaga í sambandið. 2. Hafa sem nánasta samvinnu við þau félög, sem í sambandinu eru, og styðja þau eftir mætti í hags- munamálum þeirra. 3. Vinna að því að fá fullkomna löggjöf um verzl- unaratvinnu og reyna að tryggja að réttur verzlun- armanna sé ekki fyrir borð borinn. Fylgjast með framkvæmdum laga er snerta verzlunarmenn á ein- hvern hátt. 4. Vinna að því að halda uppi fræðslustarfsemi fyrir verzlunarmenn, t. d. með því að sjá um að gefnir séu út ritlingar um verzlunarstarfsemi og ennfremur að halda uppi annarri fræðslustarfsemi, t. d. með fyrirlestrum kunnáttumanna og öðru, sem að gagni má koma. Eins og fyrr segir stóðu níu félög að stofnun L.Í.V. Síða.n hafa fyrir forgöngu sambandsins verið stofnuð sjö félög verzlunarmanna og má gera ráð fyrir, að fyrir lok þessa árs hafi félagafjöldinn innan L.Í.V. tvöfaldazt frá stofnþingi. Samtals munu þessi félög tclja á fimmta þúsund félags- menn. Eftirfarandi félög eru nú starfandi á landinu: Verzlunarmaimafélag Reykjavíkur „ „ Borgarness „ „ Akraness „ „ Snæfellinga „ „ Isafjarðar „ „ Húnvetninga „ „ Skagfirðinga „ „ Siglufjarðar „ „ Neskaupstaðar „ „ Vestur-Skaftfellinga „ „ Rangæinga „ „ Amessýslu „ „ Ilafnarfjarðar Skrifstofu- og verzlunarmannafélag Akureyrar „ „ Suðurnesja Félag verzlunar- og skrifslofumanna í Veslmannaeyjum. Eins og sjá má af þessari upptalningu eru nokk- ur héruð í landinu sem hin skipulögðu samtök ná enn ekki til. Að því er stefnt að svo verði hið allra fyrsta. Innan L.t.V. er starfandi nefnd, sem rannsakar möguleika á samningu og setningu nýrra laga um verzlunaratvinnu. Ýtarleg löggjöf um þetta efni er brýnt mál. Þá starfar nefnd að þýðingu og útgáfu fræðslu- rita. Þykir slík útgáfustarfsemi gefa góða raun i öðrum löndum. í þessum mánuði ferðast kunnáttumaður á veg- Sverrir Hermannsson, íorm. L. í. V. 20 FltJALS VEUZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.