Frjáls verslun - 01.10.1958, Page 3
eru þarna fjölmennir vegna hinnar mikln flug-
stöðvar, sem þeir hafa þar á næstu grösum,
og óneitanlega er skrýtið að sjá „stælgæja“ í
þröngum khakibuxum og kragalausum, litskrúð-
ugum jökkum, jórtrandi tuggugúmmí innan um
karlmenn í skítgljáandi leðurbuxum með axla-
bönd og fjaðrahatt, þótt þeim síðarnefndu virð-
ist fara ört fækkandi.
Þýzka hagstofan hefir til umráða nýtt stór-
hýsi við Gustav-Stresemans-Ring, skammt frá
aðaljárnbrautarstöðinni. Það var tekið í notkun
árið 1956, en áður voru hinar ýmsu deildir
stofnunarinnar á víð og dreif um borgina. Iíús-
ið er byggt með þarfir hagstofunnar fyrir augum.
Við aðalinnganginn er stór hestmynd úr steini,
og fer tvennum sögum af því, hvað sú mynd
eigi að tákna, en gárungarnir sjá þar samnefn-
ara hins opinbera í líki hests, sem spyrnir við
fótum og teygir upp hausinn, þegar á að teyma
hann áfram.
Meginbyggingin er fjórtán hæðir, og er sú
efsta inndregin. Þar uppi eru fundarsalir og
ákjósanlegur sólbaðstaður á þakinu. Hraðgeng-
ar lyftur eru milli hæða, en auk þess hæggeng-
ari, opnar lyftur, sem starfsfólkið kallar „pater
noster“, sem þægilegt er að grípa til, þegar fara
á milli tveggja eða þriggja hæða og ekki þykir
henta að bíða eftir hraðgengri lyftu. Iíerbergin
eru íburðarlaus og flest, með svipuðu sniði, þann-
ig að lítill sem enginn munur virðist vera gerð-
ur á aðbúnaði yfirmanna og undirmanna, þótt
samneyti þeirra á milli virðist þrengri stakkur
skorinn en tíðkast mun almennt hér á landi.
Allt verður að fara rétta boðleið.
Bókasafn er í stofnuninni og eins konar verzl-
anir, þar sem starfsfólkið getur keypt sér hress-
ingu og ýmsan smávarning án þess að þurfa að
fara of langt. Þar er jafnvel liægt að kaupa
áfenga drykki til að fara með heim.
Hver einasta gluggakista stórhýsisins er þétt-
setin pottablómum, og ber þar mikið á kaktus-
um og öðrum safaríkum jurtum. Starfsfólkið
hugsar sjálft um blómin, enda keypt fyrir þeirra
reikning. Lítill, en fallegur garður er milli aðal-
byggingarinnar og mjög snoturrar útbvggingar
(sést ekki á myndinni), þar sem matsalur stofn-
unarinnar er. Þar má sjá garðyrkjumann að
störfum allan guðslangan daginn, því að vitan-
lega hefir hagstofan sinn garðyrkjumann.
Stórt heimili — margt starfsfólk.
Statistisches Bundesamt er eins og stórt heim-
Skrifstofubygging vesiur-þýzku hagstofunnar í Wiesbaden
FHJÁLS VERZLUN
3